Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.07.2006, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 20.07.2006, Blaðsíða 6
MANNLÍF OG FÓLKÁ SUÐURNESJUM Þótt Hljómar séu fyrir löngu búnir að stimpla sig inní tónlistarsögu fslands þá hefði fæstum dottið i huga að setja meðlimina sjálfa á safn. Erlingur Björnsson gítarleikari er reyndar ekki einn af safnmunum en fyrir mánuði síðan hóf hann störf hjá Byggðasafninu í Reykjanesbæ. Við hjá Víkurfréttum kíktum í heimsókn til hans í húsnæði Byggðasafnsins að Njarðarbraut 3 á Fitjum og spjölluðum við hann um nýja starfið. Erlingur sagði að honum hafi verið bent á að þessi staða væri laus og þar sem hann er sjálfur safnari í eðli sínu hentaði þetta honum vel. Erlingur, sem er fæddur á því herrans ári 1944, var leigubílstjóri um árabil en er orðinn slæmur í fæti og grínast með að bensínfóturinn væri ekki nógu öflugur til að vera leigubílstjóri áfram. Næt- urbröltið sem þeirri starfsgrein fylgir er líka ekki ákjósanlegt til lengdar. móti gestum og getur frætt fólk um munina ef þess er óskað og þarna kennir ýmissa grasa. Sófi sem Jörundur Hundadagakon- ungur lagði sig í, fyrirrennari segulbandsins sem tók hljóð við þá er oftast nóg að gera og lítill tími til að láta alla drauma rætast. Erlingur hefur fleiri áhugamál en tónlist, til dæmis bifreiðar og mótorhjól. Hljómar komu aftur saman til að fagna Texti og myndir: Magnús Sveinn Jónsson Þeir munir sem eru til sýnis á Fitjum eru mikið til úr Röstinni, en aðstaðan þar var heldur bágborin. Byggðasafnið er með muni á fleiri stöðum, en á Fitjum eru urn sexþús- und munir. Enn eru ýmsir minni munir á Vatnsnesvegi en stendur til að færa þá í hús- næðið á Fitjum. Skipasafnið í Duushúsum er einnig í eigu safnsins sem og poppminja- safnið en þar á Erlingur sjálfur nokkra muni. Húsnæði safns- ins og Fitjum er til bráðabirgða og er ekki eiginlegt safn heldur geymsla fyrir muni safnsins þótt gestir séu velkomnir. Erlingur segir að skemmtilegast væri að hafa stórt safn fyrir munina og hafa það í tengslum við Víkinga- þorpið og Stekkjakot. Söfn eru í stöðugri þróun og Erlingur er um þessar mundir að uppfæra safnið með því að skrá munina og staðsetningu þeirra í safninu. Hann tekur á upp á stálþráð, peningakassar úr tré og spænskur gítar frá átjándu öld eru dæmi um áhugaverða hluti sem finna má á Fitjum. Smithsonian safnið í Was- hington er einnig með hluta af sýningu sinni um víkingaskipið Islending á Fitjum og stendur til að gera þeirri sýningu hærra undir höfði með því að byggja hús yfir skipið og sýninguna. Erlingur hefur ekki lagt gítar- inn á hilluna og segir að gamall draumur sé að korna sér upp stúdíó aðstöðu í bílskúrnum heima. En eins og flestir kannast 40 ára afmæli sínu 2003 og ent- ist sú endurkoma í tvö ár. Það eru engir tónleikar á dagskránni sem stendur, en hver veit nema Erlingur hefji sólóferil einn dag- inn ef stúdíóið verður að veru- leika. Gestir eru velkomnir í hús Byggðasafnis að Njarðarbraut 3 á Fitjum. Það kostar ekkert inn og ágæt aðstaða er til að skoða munina, hátt til lofts og bjart. Húsið er opið almenningi í allt sumar en það lokar 1. septem- ber. Opnunartíminn er frá eitt til fimm alla daga. a5 flokka gamlar fermingarmyndir Heimir Stígsson er alltaf að fást við Ijósmyndir: Heimir Stígsson ljósmyndari nýtir einnig aðstöðu safns- ins á Fitjum þar sem hann flokkar myndir og skráir uppruna þeirra. Þegar Víkurfréttir bar að garði var hann að flokka gamlar ferm- ingarmyndir héðan af Suðurnesjum. Heimir, sem er fæddur 1933, var ljósmyndari frá 1961 og er í hópi reyndustu mynda- smiða landsins. Hann er part úr degi flesta daga að flokka myndirnar og segir að mikið verk bíði hans því rnjög mikið sé til af myndum sem þyrfti að flokka. Heimir segist hafa gaman að því að flokka myndir og tók hann flestar fermingarmyndirnar sjálfur enda var hann dug- legur að mynda í kirkjunum sem og annarstaðar. VIKURFRÉTTIR I 29. TOLUBLAÐ i 27.ARGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is •. LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.