Víkurfréttir - 20.07.2006, Blaðsíða 16
ÍÞRÓTTIR í BOÐI
LANDSBANKANS
VF-sport
molar
Moye semur við
Tuebingen
Körfuknattleiksmaðurinn AJ
Moye sem lék með Keflvík-
ingum á síðustu leiktíð hefur
gert tveggja ára samning
við þýska úrvalsdeildarliðið
Walter Tigers Tuebingen. Á
síðustu leiktíð gerði Moye
28,9 stig að meðaltali í leik,
tók 10,7 fráköst og gaf 2,6
stoðsendingar að meðaltali
í leik. Sigurður Ingimund-
arson, þjálfari Keflvíkinga,
sagði við Víkurfréttir að
Moye væri duglegasti leik-
maður sem hann hefði hitt á
sínum ferli.
Kirkjumótið í pútti
Hið árlega Kirkjumót Pútt-
klúbbs Suðurnesja fer fram
sunnudaginn 23. júlí og hefst
með Guðsþjónustu kl. 13:00
á Mánatúni. Mótið er opið
öllum þeim sem vilja taka
þátt.
Calvin Davis til
Keflavíkur
Calvin Davis skrifaði í gær
undirsamningviðkörfuknatt-
leikslið Keflavíkur. Davis spil-
aði með Keflavík tímabilið
2000-2001 og var með 26.4
stig og 14.5 fráköst að með-
altali í 22 leikjum. Calvin
mun koma til með að styrkja
leikmannahóp Keflavíkur til
muna enda leikmaður með
reynslu en hann verður 29
ára á þessu ári.
Keflavík-KR á
þriðjudag
Keflavíkurkonur taka á móti
KR í Landsbankadeildinni
í knattspyrnu á þriðjudag.
Leikurinn hefst kl. 19:15 á
Keflavíkurvelli. Keflavík er
í 5. sæti Landsbankadeildar-
innar með 12 stig að loknum
níu leikjum en KR er í 3. sæti
með 18 stig. Fyrri leik liðanna
í deildinni lauk með 5-4 sigri
KR í vesturbænum eftir að
Keflavík hafði komist í 3-0.
Nína Ósk gerði tvö mörk í
leiknum og þær Ólöf Helga
og Danka Podovac gerðu sitt
markið hvor.
Grannasiagur í 3. deild
Hart verð ur barist á
Garðsvelli í kvöld þegar Víðir
tekur á móti GG frá Grinda-
vík. Leikurinn hefst kl. 20
á Garðsvelli en Víðismenn
verma efsta sæti A-riðils í 3.
deild með 17 stig eftir átta
leiki. GG hafa hins vegar 14
stig í 4. sæti deildarinnar og
geta með sigri komist upp að
hlið Víðismanna.
Efstur í íslandsmótinu
Gylfi Freyr Guðmunds-
son er efstur í fslands-
mótinu í Motocrossi
með 126 stig þegar tveimur
umferðum er lokið. Gylfi
sigraði aðra umferð mótsins
með nokkrum yfirburðum
en mótið fór fram í Álfsnesi í
Reykjavík sl. sunnudag.
„Um morguninn var mikil drulla
á brautinni en sólin kom svo
upp og þurrkaði hana og mótið
varð því skemmtilegra," sagði
Gylfi sem er á sínu þriðja ári í
meistaraflokki en hann hefur
fimm ára reynslu í motocross-
inu. Keppt var í þremur um-
ferðum á mótinu þar sem Gylfi
varð tvisvar sinnum í fyrsta sæti
og einu sinni í öðru sæti sem gaf
honum 72 stig fyrir allt mótið.
Félagi Gylfa, Aron Ómarsson,
varð fyrir því að hjól hans bilaði
og lauk hann keppni á lánshjóli
og náði sér ekki á strik. Aron
er í áttunda sæti íslandsmótsins
með 71 stig þegar tvær umferðir
eru eftir. Á meðan Aron var í
basli gekk allt upp hjá Gylfa en
hann er einbeittur og stefnir að
því að hampa Islandsmeistaratitl-
inum á heimavelli. „Ég var í 4.
sæti á fslandsmótinu eftir fyrstu
umferð en nú eru tvær umferðir
eftir og síðasta mótið fer fram á
Sólbrekkubraut í Reykjanesbæ,”
sagði Gylfi en hann ekur á
Honda CRF 450 sem er um 55
hestafla motocrosshjól. Þriðja
umferðin fer fram á Akureyri
þann 5. ágúst og lokakeppnin á
Sólbrekkubraut.
Meiðslahryna
í 2. deild
Knattspyrnuliðin Njarðvík og Reynir hafa fengið sinn
skerf af meiddum leikmönnum í sumar og sjaldan
náð að stilla upp sínu sterkasta liði. Þrátt fyrir
meiðslin öll eru liðin í toppbaráttunni í 2. deild, Njarðvík-
ingar á toppnun og Sandgerðingar í þriðja sæti deildarinnar.
Bæði lið eiga leiki á laugardag, Reynismenn taka á móti Sindra
kl. 14 og Njarðvíkingar mæta KS/Leiftri á Ólafsfirði einnig kl.
14. Kristján Jóhannsson, leikmaður Reynis, er frá út tímabilið
með slitið krossband, Georg Birgisson er meiddur á hásin,
Sveinn Vilhjálmsson og Ólafur Berry eru báðir meiddir og þá
er óvíst hvort skoski markvörðurinn Christopher verði góður
fyrir helgina en hann meiddist gegn Aftureldingu í síðasta leik.
Hjá Njarðvíkingum er fyrirliðinn Snorri Már Jónsson fótbrot-
inn og Bjarni Sæmundsson missir af næstu tveimur leikjum.
Þá hefur Finnur Þórðarson ekkert leikið með Njarðvíkingum
í sumar sökum meiðsla. „I fótboltaliði í þessari deild er maður
sjaldnast með 18-20 manns sem eru svipað góðir eins og í efstu
deild. Róðurinn verður því þyngri fyrir vikið þegar lykilmenn
meiðast en við vælum ekkert yfir þessu og berjumst bara af
krafti," sagði Gunnar Oddsson, þjálfari Reynis. „Það er alltaf
gaman að fara norður,“ sagði Helgi Bogason, þjálfari Njarðvík-
inga. „KS/Leiftur hafa einnig átt við meiðsli að stríða en eru að
fá menn til baka og ég býst við hörkuleik,“ sagði Helgi.
Fyrst bikar svo derby
Bæði Suðurnesjaliðin í
Landsbankadeild karla
gerðu jafntefli á þriðju-
dagskvöld. Grindavík og Fylkir
skildU jöfn 1-1 á Grindavík-
urvelli og Keflvíkingar gerðu
einnig 1-1 jafntefli gegn Vík-
ingum í Reykjavík.
Ray Anthony Jónsson gerði sitt
fyrsta mark í sumar er hann jafn-
aði metin fyrir Grindavík gegn
Fylki en Guðmundur Steinars-
son kom Keflvíkingum í 1-0 í
Reykjavík áður en heimamenn
náðu að jafna. Næsti leikur
í Landsbankadeildinni er ná-
grannaslagur Grindavíkur og
Keflavíkur og vonast allir til
þess að sá leikur hafi upp á fleira
að bjóða en fyrri leikur liðanna í
sumar. Þeim leik lauk með 1-1
jafntefli í þungum og óspenn-
andi leik. Derbyslagurinn fer
fram þann 31. júlí n.k. á Keflavík-
urvelli en næsti leikur Keflavík-
urliðsins er á sunnudag í VISA
bikarkeppninni þegar þeir halda
upp á Skipaskaga og mæta þar
ÍÁ kl. 19:15. „Þetta er spennandi
verkefni, kannski er þetta eini
bikarinn sem er eftir sem liðin
eiga möguleika á,“ sagði Krist-
inn Guðbrandsson, aðstoðar-
þjálfari Keflavíkur. „Það er fullt
af frábærum fótboltamönnum í
Skagaliðinu og þeir eiga mikið
inni. Við þurfum að mæta þeim
af krafti á sunnudag,“ sagði
Kristinn og vildi meina að síðan
tvíburarnir Arnar og Bjarki
hefðu tekið við ÍA heíði leikstíll
liðsins breyst. „Það er kominn
meiri bolti í Skagamenn en við
þurfum að loka á lykilmenn hjá
þeim eins og Þórð og Bjarna að
ógleymdum tvíburunum. Það
er jákvætt að við erum að skora
í öílum leikjum og ég á von á því
að við lendum í hörkuleik gegn
ÍA,“ sagði Kristinn að lokum.
Birtir til í Evrópukeppninni
Vonarneisti hefur vaknað
í leik íslenska U 20 ára
liðsins á Evrópumótinu
í körfuknattleik en mótið fer
fram í Portúgal. íslenska liðið
tapaði öllum þrem Ieikjum
sínum í riðlakeppninni en
vann fyrsta leikinn í milliriðl-
inum á þriðjudag gegn Sló-
vökum 71-68.
Jóhann Árni Ólafsson, leik-
maður Njarðvíkinga, hefur verið
að standa sig vel ytra og gegn
Slóvökum setti hann niður 29
stig á 36 mínútum. Jóhann er
sem stendur í þriðja sæti yfir þá
leikmenn sem gera flest stig að
meðaltali í leik með 21,8 stig á
leik. Næsti leikur Iiðsins er gegn
Irlandi í dag og síðasti leikurinn
í milliriðlinum er gegn heima-
mönnum í Portúgal. U 20 ára
liðið getur með hámarksárangri
úr milliriðlum náð 9. sæti í mót-
inu.
U 18 ára lið karla hefur svo lokið
einum leik í Evrópukeppninni
og töpuðu stórt gegn
Spánverjum í fyrsta leik, 55-98,
en þeir keppa í A-deild en U 20
í B-deild.
Nínaí
Knattspyrnukonan Nína
Ósk Kristinsdóttir, sem
leikur með Keflavík, er
nú stödd á Norðurlandamót-
inu í Noregi þar sem íslenska
U 21 liði hefur leikið tvo leiki.
Nína hefur ekki átt sæti í byrj-
unarliðinu en hefur komið inn
á í báðum leikjunum sem vara-
Noregi
maður. Fyrsti leikur liðsins var
gegn heimamönnum í Noregi
sem ísland vann 3-2. Bandaríkja-
menn leika sem boðsgestir á
mótinu og gerði íslenska liðið 1-
1 jafntefli við það bandaríska en
varð að lúta í lægra haldi eftir
vítaspyrnukeppni.
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • IESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!
16 IVÍKURFRÉTTIR I (ÞRÚTTASÍÐUR