Víkurfréttir - 20.07.2006, Blaðsíða 17
L
nýjustufréttir
ALLA DB.GA A VF.IS
- / .
^júkraþjáifari jiugái®
[Magnúsj
MAGNÚS TIL BJARGAR
Dómarar kappleikja
þurfa að vera í góðu
formi rétt eins og
hetjurnar sem etja kappi sín
á milli inni á vellinum. Þó er
það ekki algengt að dómarar
þurfi frá kappleik að víkja
sökum meiðsla en það gerðist
þó í viðureign Grindavíkur
og Fylkis sl. þriðjudagskvöld í
Landsbankadeild karla.
Jóhannes Valgeirsson dæmdi
leik liðanna en á 26. mínútu
leiksins þurfti Jóhannes aðhlynn-
ingu vegna meiðsla og hringt var
í Magnús Þórisson, sem dæmir
fyrir Keflavík, en hann var að
fylgjast með sínum mönnum
gegn Víkingum. Magnús brun-
aði af stað úr Reykjavík og
dæmdi síðari hálfleik með stakri
prýði.
Grindvíkingar fagna
aldarfjórðungs golfafmæli!
(MŒsíIMimaMMI
-Afmælismót næsta laugardag á Húsatóftavelli
Golfklúbbur Grinda-
víkur fagnar aldarfjórð-
ungsafmæli í sumar og
heldur af því tilefni afmælis-
mót 22. Gunnar Már Gunnars-
son, formaður GG undanfarin
sex ár er ánægður með starfið
í klúbbnum.
Hvað er helst á baugi á aldar-
íjórðungsafmæli GG?
Við ætlum að vera með þetta
afmælismót sem er laugardag-
inn 22. júlí og höfum í tilefni
af afmælinu látið merkja grín-
gaffla og grínmerki með logo
og aldri klúbbsins sem við
ætlum að gefa í teiggjöf í mót-
inu. Einnig er unnið að blaða-
útgáfu og stefnum við að því að
dreifa blaðinu í öll hús í Grinda-
vík ásamt því að dreifa því til
allra golfklúbba innan GSI. Vik-
una 23. júlí - 30. júlí bjóðum
við svo golfurum uppá að spila
völlinn okkar gegn 1.500 kr.-
flatargjaldi í stað venjulegs flat-
argjalds.
Þið stækkuðuð völlinn í 13
holur fyrir nokkrum árum. Er
draumur um 18 holur handan
við hornið?
Við stækkuðum völlinn í 13
holur fyrir ca. 6 árum síðan og
hefur verið umræða um það
hvort við getum farið í 18 holu
völl rekstrarlega séð. Það held
ég að sé raunhæfur möguleiki
fyrir G.G.
þar sem rekstur hefur gengið
ágætlega s.l. ár og fjölgun í
klúbbnum verið ör. Klúbbfé-
lagar í dag eru 200 talsins og tel
ég að við verðum komnir í 300
klúbbfélaga eftir ca 3-4 ár sem
gerir allan
rekstur auðveldari. Á þessum 3-
4 árum ættum við að geta byggt
hægt og rólega upp brautir sem
verða teknar í notkun eftir 5-7
ára tíma. Draumur minn er að
þegar 18 holu völlur verður að
veruleika að færa golfskálann í
íbúðarhúsnæðið á Húsatóftum
en þar hafa menn mun meiri
yfirsýn yfir allan völlinn en í nú-
verandi skála. Það hafa komið
fram óteljandi hugmyndir um
hvar brautir eiga að vera stað-
settar og engin niðurstaða
komin um það.
Hvernig gengur starfið hjá
GG?
Starfið hjá G.G gengur ágætlega.
Við erum styrktir duglega af
Grindavíkurbæ og öðrum fyrir-
tækjum hér í bæ. Eins og áður
sagði erum við komnir með á
3ja hundrað félaga í klúbbinn
ef svo mætti að orði komast og
vona ég að innan þessa tímara-
mma sem ég nefndi hér að ofan
verði kominn annar 18 holu völl-
urinn á Suðurnesjum.
Völlurinn okkar lítur mjög vel
út í dag, grínin aldrei verið betri
og hvet ég alla golfara til að nýta
sér lágt vallargjald í næstu viku
og prufa völlinn okkar.
Gríndvíkingurinn Gunnlaugur
Sævarsson er ótrúlegur kylfingur.
Hann hefur oröið klúbbmeistari
Golfklúbbs Grindavíkur í öll
þau átta ár sem hann hefur
tekið þátt í meistaramóti
klúbbsins. Hér er hann á mynd
með Kristjönu Eiðsdóttur sem
varð kvennameistari GG en
meistarmóti klúbbsins fór fram í
síðustu viku.
Það viðraði illa í meistaramóti GG í síðustu
viku en þrátt fyrir það var gleðin allsráðandi
eins og sjá má á þessari mynd.
ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU í BOÐI LANDSBANKANS
VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR 17