Víkurfréttir - 24.08.2006, Side 15
Horft til vesturs úr Eldborgarhrauni
yfir Hvammahraun. í baksýn má sjá
Kleifarvatn og Sveifluháls.
Landvernd, Leiðsögumenn
Reykjaness, Ferðafélag íslands
og Ferlir stóðu saman fyrir ferð
í Brennisteinsfjöll. Ferðin var liður í
að kynna framtíðarsýn Landverndar
um Reykjanesskaga sem Eldfjallagarð
og Fólkvang. Nánar verður fjallað um
framtíðarsýn Landverndar í Norræna-
húsinu þann 7. september n.k.
Áður en haldið var á stað hélt Ari
Trausti Guðmundsson erindi um mótun
og myndun Reykjanesskagans. Ari Iagði
árherslu á að skoðaþyrfti Reykjanesskag-
i ann með heildstæðum hætti og skil-
j greina hvaða svæði skuli nýtt og hvað
j skuli verndað. Ari Trausti dró fram jarð-
fræðilega sérstöðu Reykjanesskágans og
| taldi hann hafa umtalsvert verndargildi,
ekki síst Brennisteinsfjöllin sjálf, þar
sem um er að ræða eina staðinn í heim-
| inum þar sem úthafshryggur gengur
! á land. Þá íjallaði Eyjólfur Sæmunds-
i son um Brennisteinsfjöllin og tók hann
J undir með Ara Trausta hvað varðar að
jjl.skoða þurfi Reykjanesskagann með !
S heildstæðum hætti. Áður en ráðist yrði I
' í slíka skoðun vildi hann þó byrja á að j
J friða Brennisteinsfjöllin, eins og Um-
hverfisstofnun lagði til í tillögu sinni að j
náttúruverndaráætlun.
1 Gangan yfir Brennisteinsfjöll er frekar [
I erfið þar sem ganga þarf yfir úfin hraun |
i og langar vegalengdir. Alls voru ferða-
! langarnir 21 talsins og má ætla að
! sjaldan hafi farið jafn stór hópur yfir
| þessi fjöll enda svæðið nánast óþekkt af
j öllum almenningi.
Mikilfenglegt útsýni
Ferðin hófst austan við Kleifarvatn og
, var gengið upp með Hvammahrauni
\ (Hvannahraun). Þegar komið er upp
í Eldborgir blasir við ótrúlegt útsýni.
í suðaustri eru Vestmannaeyjar og
Surtsey. I austri sést yfir suðurlandið
með Eyjafjallajökul við sjónarrönd og í
norðvestri sést yfir Faxaflóann þar sem
Snæfellsjökull sést á góðum degi.
Gengið um hraunmyndanir
og víðerni
Reykjanesskaginn nýtur þeirrar sér-
stöðu að vera eini staðurinn í heiminum
þar sem sjá ma með berum augum
hvar úthafshryggur gengur á land með
eldsumbrotum og jarðhræringum. Jarð-
eldar og jarðhiti setja sinn svip á Brenni-
steinsfjöll en þar er að finna mikilfeng-
legar gígaraðir, hrauntraðir, hraunhella
og móbergsmyndanir svo fátt eitt sé
nefnt.
Svæðið frá Stóra Kóngsfelli, vestan
Bláfjalla, suður og vestur fyrir Brenni-
steinsljöll eru ósnortin víðerni, Þessi
víðerni eru eina ósnortna eldstöðvar-
iáííMSfEíaiiaí
.-'f'.i
kerfið á Reykjanesskaganum þar sem
öðrum keríum hefur verið raskað með |
mannvirkjagerð af ýmsu tagi. Einu sjá-
anlegu ummerki mannsins í Brenni-
steinsfjöllum má rekja til námuvinnsl-
unnar sem var lögð af 1882. Nokkrir
steinar og lítill ofn, gamlar götur og
tóftir frá tíð námuverkamanna í brenni-
steinsnámunum. Fornar gönguleiðir,
s.s. Selvogsgatan (Hlíðavegur) koma
inn á íjöllin.
Úr Eldborgum var gengið í norðaustur
yfir Kistu að Kistufelli og áð við Kistu-
fellsgíg sem líkja má við ofur vaxið
hringleikahús rheð mikilfenglegum grá-
grýtis kraga og stöllum. Kyrrðin í mos-
anum er alger og þegar horft er upp á
grágrýtis hamrana fyllist maður lotn-
ingu yfir sköpunarverkinu. Frá Kistu-
félli var haldið eins og leið lá í Brenni-
steinsnámurnar og skoðaðar minjar
um námuvinnslu. Þá var gengið í átt
að Grindarskörðum, fram-hjá Syðstu-
bollum og niður um Kerlingarskarð;
Þegár komið var í Kerlingarskarð voru
ferðalangar bæði sælir og þreyttir enda
20 km ganga að baki.
Þeir sem þarna fóru vitá að Brenni-
steinsfjölþhafa að. geyma fjölmargar I
náttúruperlur, hér í túnfætinum heima |
hjá okkur.
o
o
UaMlDQDOD
í Garði, Sandgerði og Reykjanesbæ
Skátadagurinn verður haldinn við skátaheimili Heiðabúa í Reykjanesbæ, Hringbraut 101, næstkomandi
laugardag 26. ágúst milli kl. 14:00 og 17:00.
Ásamt því að skrá í skátastarfið munum við grilla fyrir gesti og gangandi og leyfa þeim sem vilja að spreyta sig
á skemmtilegum póstaleik.
Skátafundir hefjast síðan mánudaginn 28. ágúst og eru fundatímar kynntir í skólum bæjarfélagana auk þess sem allar
upplýsingar eru á vef félagsins www.skatafelag.is.
Einnig er hægt að skrá sig á nýrri vefsíðu skátafélagsins www.skatafelag.is eða með því að hringja í starfsmann félagsins
í síma 860 4470 (Gréta).
Skátastarfið er fyrir alla krakka á aldrinum 9-18 ára.
„Skátastarf sjálfstæður lífstíll"
Árgjaldið er kr. 9.500,-
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGA8LAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRÉTTIR ! FIMMTUDAGURINN 24.ÁGÚST 2006I 15
g'aii—M«MW.II,l 11, iMW.1W MMl