Víkurfréttir - 12.10.2006, Blaðsíða 16
1. SÆTIÐ ERFID
ión Gunnarsson, alþingismaður Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi gefur kost á sér í 1. sæti í
prófkjöri flokksins sem fram fer í byrjun nóvember.
Þar mun hann etja kappi við m.a. aðra sitjandi
þingmenn um efsta sætið á framboðslista
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir
komandi Alþingiskosningar. Víkurfréttir tóku Jón
tali, þar sem hann er eini Suðurnesjamaðurinn
sem sæist eftir 1. sæti á framboðslistanum.
Hvaða máli skiptir það fyrir
samfélag eitis og Suðurnes að
oddviti framboðs Samfylking-
arinnar komi þaðaní
„Það getur skipt talsvert miklu
eins og dæmin sanna því það
er hefð fyrir því að efstu menn
á framboðslistum í kjördæm-
unum komi fyrstir til greina
í ábyrgðarmestu stöður þegar
þingflokkar velja sér fólk til for-
ystu. Við vitum öll, sem höfum
fylgst með því hvernig þing
starfar að á þingi er ákveðin
goggunarröð ef svo mætti segja
og því framar sem maður er í
þeirri röð, því meiri möguleiki
á því að koma sínum málum í
framkvæmd.
Mikil ráðherraþurrð
þegar litið er til
Suðurnesja
Suðurnesin hafa ekki oft verið
í þeirri stöðu að eiga oddvita
framboðslista í þingkosningum
og við vitum einnig að það
hefur verið mikil ráðherraþurrð
þegar litið er til Suðurnesja. Við
erum búin að vera í nýju kjör-
dæmi í tæpt kjörtímabil og mik-
ilvægt að við vinnum vel með
félögum okkar annarsstaðar
í kjördæminu þó við þurfum
einnig að sjálfsögðu að gæta
þess að Suðurnes hafi þau áhrif
sem stærðin gefur tilefni til“.
Baráttan um 1. sætið
verður erfið
Verður það ekki erfiður róður
að ná 1. sceti? Nú eru nokkur
önttur stór nöfn og sitjandi
þingmenn sem jafnframt stefna
á það sceti.
„Það er aldrei létt að taka þátt í
prófkjöri og etja kappi við sam-
herja sína um sæti á framboðs-
listum. Við erum þrír sitjandi
þingmenn sem höfum gefið
kost á okkur í 1. sæti og einn
nýr frambjóðandi sem nefnir
1-2. sæti, þannig að það er al-
veg ljóst að baráttan um sætið
verður erfið. Það er mikilvægt
að við sem bjóðum okkur fram
náum að vinna þannig í próf-
kjörinu að ekki myndist stór sár
sem erfitt verður að græða, þar
sem mörg okkar sem tökum
þátt munum sitja á væntan-
legum framboðslista og þurfa
að vinna náið saman að því
markmiði að vera áfram stærsti
stjórnmálaflokkurinn í kjör-
dæminu. En því fylgir einnig að
Samfylkingin mun áfram eiga 1.
þingmann kjördæmisins sem er
einskonar verkstjóri fyrir allan
þingmannahóp kjördæmisins.
Kjörsóknin á Suður-
nesjum verði góð
Það sem mestu máli skiptir til
þess að ég nái góðum árangri í
prófkjörinu er að kjörsóknin á
Suðurnesjum verði góð og ekki
lakari en í öðrum hlutum kjör-
dæmisins því ég trúi því að ég
eigi góðan stuðning Suðurnesja-
manna sem þekkja mig og mín
verk.
Eru prófkjör eins og það sem
nú mun eiga sérstað íkjördcem-
inu ekki keppni á milli sveitar-
félaga/svœða urn að koma að
sínum manni? Er kjördcema-
skipanin eins og hún er núna í
raun ekki skekkja ogkjördcemið
ofstórt? Hvernig gengur þér að
kynna þig á Höfn í Hornafirði
eða á Klaustri og að sama
skapi hvaða möguleika á fólk
þaðan hér Suður með sjó?
„Jú vissulega snýst prófkjör eins
og við erum að fara í 4. nóvem-
ber örugglega að einhverju leiti
um sveitarfélög eða svæði og
ég heyri það nú þegar að slíkur
málflutningur er byrjaður um
allt kjördæmið. Það er svo sem
ekkert óeðlilegt við það, því
frambjóðendur á hverjum stað
þekkja best til í nágrenni sínu
og áherslur þeirra verða alltaf að
einhverju leiti svæðisbundnar
þó maður verði að gæta þess að
hafa hugann við allt kjördæmið
í störfum sínum. Ég þekki nú
mun betur til í hinum hlutum
kjördæmisins en ég gerði áður
og hef kynnst miklum fjöld
fólks sem er tilbúið til þess að
styðja mig til góðra verka inni á
þingi í framtíðinni.
Kjördæmaskipanin
er afar erfið
Kjördæmaskipanin er afar erfið
með þessi stóru og víðfeðmu
kjördæmi og algjörlega borin
von að þingmenn geti verið í
nánum tengslum við kjósendur
um allt kjördæmið. það er mín
skoðun að núverandi lands-
byggðarkjördæmi séu of stór og
við verðum að huga að breyt-
ingum í því efni. Kannski er
lausnin sú að gera landið að
einu kjördæmi og að kjósendur
raði á lista um leið og þeir kjósa.
það má segja að sú aðferð sam-
eini bæði uppröðun á lista og
kosningu til Alþingis og aðeins
þeir sem kjósa viðkomandi lista
komi þá að uppröðun hans.
Höfn í Hornarfirði svipar til
þeirra sveitarfélaga sem við
þekktum hér á Suðurnesjum
og sem byggðu afkomu sína að
mestu á sjósókn og vinnslu sjáv-
arafurða. Það sama gildir um
Vestmannaeyjar þó erfiðar sam-
göngur þangað geri aðstæður
talsvert frábrugðnar því sem
hér er. Mér hefur gengið vel
að kynna mig í öðrum hlutum
kjördæmisins og þar nýt ég
þess að sjálfsögðu að hafa verið
þingmaður þetta kjörtímabil.
Fyrir þá einstaklinga sem eru
að koma nýir inn í prófkjörið
skiptir máli að vera ófeimnir
við að hafa samband við fólk
annarsstaðar en í sínu nánasta
umhverfi því almennt má segja
að sú regla gildi að vel sé tekið á
móti símtali eða heimsókn.
Á þingi fer fram talsverð
togstreita milli kjördæma
Hver verða þtn helstu baráttu-
mál?
„Ég mun áfram berjast fyrir mál-
efnum kjördæmisins eins og ég
hef gert og þar eru málefni Suð-
urnesja ekki undanskilin. Við
verðum að gera okkur grein
fyrir því að á þingi fer fram tals-
verð togstreita milli kjördæma
um fjármagn og verkefni og við
sem eru þingmenn Suðurkjör-
dæmis verðum að sjálfsögðu að
taka þátt í þeim leik eða verða út-
undan sem að sjálfsögðu kemur
ekki til greina af minni hálfu'1.
Helstu baráttumálin
„Ef ég á að nefna einhver af
þeim málum sem snúa beint
að kjördæminu þá mun ég m.a.
berjast fyrir eftirfarandi málum:
Málefnum flugvallarins eftir við-
skilnað Bandaríkjamanna þar.
Mér líkar illa hvernig komið
var fram við starfsmenn sem
voru búnir að vinna mestan
sinn starfsaldur hjá þessum
vinnuveitanda og ríkið ætti að
sjá sóma sinn í því að koma að
málinu.
Framkvæmdum við nauðsyn-
legar vegabætur í kjördæminu
þ.m.t. Reykjanesbraut, Suður-
landsveg og Suðurstrandarveg
Málefnum símenntunarmið-
stöðva og háskólanámi í kjör-
dæminu.
Leiðréttingu á fjármagni sem fer
í rekstur Heilþrigðisstofnana,
þannig að það dugi til að standa
undir sjálfsagðri og lögskipaðri
þjónustu við íbúanna.
Að rekstur dvalar- og hjúkruna-
heimila verði tryggður og upp-
bygging þeirra í samræmi við
þörf.
Að staðir í kjördæminu og ein-
stök svæði innan þess njóti jafn-
ræðis við sambærilega staði ann-
arsstaðar á landinu þegar kemur
að afskiptum hin opinberá'.
Harður fyrir hönd
kjördæmisins
„1 stuttu viðtali er ekki hægt að
vera með tæmandi upptalningu,
en ég hef fengið orð fyrir það
á þinginu að vera harður fyrir
hönd kjördæmisins og tala máli
þess.
Ef við lítum hinsvegar yfir allt
sviðið þá mun ég berjast fyrir
meira réttlæti og jöfnuði fyrir
hinn venjulega vinnandi mann.
Ójöfnuður er alltaf að aukast og
við erum að sjá stéttaskiptingu
verða að veruleika í íslensku
þjóðfélagi. Ef til vill næst aldrei
VÍKURFRÉTTiR Á NETiNU •www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!
16 | VlKURFRÉTTIR 41. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR