Víkurfréttir - 12.10.2006, Side 17
VIÐTAL: HILMAR BRAGIBÁRÐARSON
MYNDIR: HANS GUÐMUNDSSON
Jón Gunnarsson, alþingismaður.
fullur jöfnuður en við getum
barist fyrir því að ríkið auki ekki
á ójöfnuð með aðgerðum sínum
og mismuni fólki eins og hefur
gerst í tíð þessarar ríkisstjórnar.
Aðgerðir í skattamálum, barna-
og vaxtabótum, almannatrygg-
ingum, vaxtaákvörðunum og
verðtryggingu geta bætt kjör og
aukið jöfnuð og að því eigum
við að vinna. Við eigum alltaf
að spyrja okkur að því hvernig
aðgerðir ríkisins koma við fjöl-
skylduna og passa að hagsmunir
hennar séu teknir fram yfir sér-
hagsmuni annarra. Ef það hefði
verið gert þá hefði lækkun mat-
arverðs komið mun fyrr en nú
er raunin og það er óskiljanlegt
hvernig ríkisstjórnin dregur
lappirnar í málinu þannig að
lækkunin verði fyrst að veru-
leika korteri fyrir kosningar“.
Ekki verði drollað við
stofnun félags um eignir
á Keflavíkurflugvelli
Hver eru brýmistu verkefnin
sem ráðast þarf í á Suður-
nesjum sem þú munt beita þér
fyrir?
„Brýnustu verkefnin á Suður-
nesjum fyrir utan þau sem ég
nefndi hér að framan eru að
vel takist til í stofnun félags um
eignirnar á Keflavíkurflugvelli
og að ekki verði drollað í því
verkefni að koma þeim aftur í
notkun. Það er sannað að þeim
mun skemmri tími sem líður frá
því að herstöð er yfirgefin þar til
borgaraleg starfssemi tekur yfir
fasteignir og aðstöðu, þeim mun
meiri líkur eru á því að vel til
takist. Sveitarfélögin á svæðinu
eiga að koma að málinu með
beinum hætti og hafa veruleg
áhrif á framvindu málsins.
Umhverfisvernd samhliða
orkuframleiðslu
Umhverfisvernd samhliða skyn-
samlegri nýtingu ákveðinna
svæða til orkuframleiðslu er mik-
ilvægt verkefni sem nauðsynlegt
er að ná sátt um sem fyrst.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum
þurfa að gera samning um
menningarmál við Menntamála-
ráðuneytið, en þar sem slíkir
samningar hafa komist á hefur
menningarlífið tekið mikinn
kipp og auknir opinberir fjár-
munir komið frá ríki og sveitar-
félögum. Það sama gildir um
vaxtarsamning við Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið en slíkir
samningar hafa í auknum mæli
komið staðinn fyrir hefðbundið
atvinnuþróunarstarf og virðast
vera að skila árangri.
Helguvík sitji við sama
borð og aðrir kostir
Hver er stefna þín varðandi ál-
ver í Helguvík?
„Stefna mín varðandi fram-
kvæmdir í Helguvík hefur verið
skýr og gengur ekki í bága við
nýlega birta stefnu Samfylk-
ingarinnar í umhverfismálum
sem við birtum undir heitinu
“Fagra Island” . Ég hef sagt að
ef framkvæmdir í Helguvík og
orkuöflun þeim tengd, uppfylli
öll ytri skilyrði sem sett eru
STÆRSTA FRÉTTA- OC AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
af stjórnvöldum þá krefjist ég
þess að Helguvík sitji við sama
borð og aðrir kostir en sé ekki
útilokuð með sérstökum stjórn-
valdsaðgerðum vegna staðsetn-
ingar sinnar hér á Suðurnesjum.
Með öðrum orðum þá er ég bú-
inn að fá mig fullsaddan af því
að einhver ráðherra setji fótinn
fyrir Suðurnes og vísi atvinnu-
tækifærum annað“.
Ekki hlustað á
varnaðarorð okkar
Hvert á að stefna með gömlu
Herstöðina?
„Samfylkingin benti ítrekað
á það í aðdraganda síðustu al-
þingiskosninga að nauðsynlegt
væri að setja af stað vinnu sem
hefði það markmið að undirbúa
viðbrögð við minnkandi starfs-
semi Bandaríkjamanna og und-
irbúa hvernig við tækjum við
þeirri starfssemi sem þar færi
fram. Eins og stundum áður þá
var ekki hlustað á varnaðarorð
okkar og það er í raun dæmi-
gert fyrir vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar sem nú situ að fyrst nú,
þegar herinn er farinn og allar
byggingar auðar, skuli hún vera
að klóra sér í kollinum yfir því
hvað gera eigi við aðstöðuna.
Eins og ég nefndi þarf að drífa í
að stofna hlutafélagið um eign-
irnar og ég er satt að segja afar
hissa á að það hafi ekki verið
gert samhliða því að gengið var
frá samningi um eignirnar við
Bandaríkjamenn. Við þurfum
að gefa almenningi og fyrir-
tækjum kost á því að koma með
hugmyndir um atvinnustarfs-
semi eða aðra notkun svæðisins
og til greina kemur að efna til
opinnar hugmyndasamkeppni í
því sambandi.
Laða að og efla flug-
tengda starfssemi
Ég hef séð fyrir mér að hægt
verði að nýta eignirnar á vell-
inum bæði til að laða að og
efla flugtengda starfssemi og
einnig hef ég verið skotinn í hug-
myndum um mennta ogþjálfun-
arsetur. Ég kastaði því fram eftir
að ljóst var að Bandaríkjamenn
vildu fara, hvort ekki væri rétt
að nota þá samningsstöðu sem
enn var fyrir hendi til að semja
um að bandarískur háskóli setti
upp útibú á Keflavíkurflugvelli
í því tilbúna háskólaþorpi sem
þar er fyrir hendi og byði upp
á menntun í auðlinda- orku og
umhverfisfræðum sem höfðað
gæti til nemenda vítt og breytt
um heiminn.
Þetta mál er einstakt og afar
mikilvægt að vel takist til um
úrlausn þess. Hagsmunir Suð-
urnesja eru miklir í þessu máli
og það er skylda stjórnvalda að
taka fullt tillit til sjónarmiða
heimamanná'.
Búum að mikilli þekkingu
á jarðhitaverkefnum
Hvað á að gera í orkumálum á
Reykjanesskagaf
„Við eigum að halda áfram
að nýta þau svæði sem þegar
möguleikar fyrir hendi varðandi
ráðherradóm og auðvitað yrði
gerð krafa um slíkt. Mín störf á
þinginu og innan Samfylkingar-
innar hafa mikið verið á sviði at-
vinnu- og efnahagsmála og við
höfum sagt að við vildum sam-
eina öll atvinnuvegaráðuneytin
í eitt og ég get ekki neitað því
að það yrði afar áhugavert að
fá að glíma við það verkefni að
verða atvinnumálaráðherra. Það
sem skiptir þó fyrst og fremst
máli til skemmri tíma litið er
að ná saman sigurstranglegum
lista og hefja öfluga kosninga-
baráttu þannig að við vinnum
góðan kosningasigur næsta vor í
öllum kjördæmum. Það tryggir
Samfylldngunni það afl og þau
áhrif sem þarf til að mynda rík-
isstjórn og gerir okkur kleift að
hrinda stefnumálum okkar í
framkvæmd.
Það er kominn tími til að skipta
um ríkisstjórn og gefa ríkis-
stjórnarflokkunum frí. Að því
þurfum við öll að vinna og það
væri verðugt og skemmtilegt
verkefni að leiða Samfylking-
arfólk í kjördæminu til þess
nauðsynlega verks“, segir Jón
Gunnarsson, frambjóðandi
til fyrsta sætis á lista Samfylk-
ingarinnar í prófkjöri hennar
í Suðurkjördæmi í viðtali við
Víkurfréttir.
Sólheimar
fmiiBiilriigifultrúó
Óskað er eftir stuðningsfulltrúa til starfa á Sólheima.
Unnið er skv. vinnulotukerfi. Leitað er að einstaklingi
með góða almenna menntun og hæfni
í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar gefur Valdís í síma 480 4414
eða 861 9657 á milli kl. 8 og 17 virka daga.
í boði er áhugavert og krefjandi starf fyrir metnaðar-
fullan einstakling sem hefur áhuga á að vinna á
Sólheimum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Sólheimar
Sólheimar eru sjálfbært byggðahverfi í Árnessýslu. Á Sólheimum
er m.a. félagsþjónusta, garðyrkjustöð, skógræktarstöð, gistiheimilí,
verslun með helstu nauðsynjavörur, listhús og sex verkstæði sem
vinna að listsköpun og endurvinnslu. Ennfremur kaffihús, högg-
myndagarður, kirkja, sundlaug og umhverfissetrið Sesseljuhúsi.
www.solheimar.is
eru komin í nýtingu og standa
myndarlega við bakið á djúpbor-
unarverkefni sem hefði það að
markmiði að auka verulega ork-
una sem kæmi frá hverri holu.
Við eigum að hlífa ákveðnum
svæðum sem ekki hefur verið
hreyft við og horfi ég þá helst til
Brennisteinsfjalla og kappkosta
að saman fari útivera, náttúru-
vernd og skynsamleg nýting.
Við búum að feikimikilli þekk-
ingu á jarðhitanum á skaganum
og þurfum að auka við hana
þannig að sú mikla auðlind
sem við eigum nýtist okkur sem
best til framtíðar. Falleg nátt-
úra með óteljandi möguleikum
á útiveru, gönguleiðum og sögu-
skoðun bíður einnig upp á mikil
tækifæri til framtíðar og þeim
fjölgar alltaf sem gera sér grein
lyrir því hvað Reykjanesskaginn
hefur upp á mikið að bjóða.
Gerð krafa um
ráðherrasæti
Náirþú efsta sœti í kjördœminu
í prófkjörinu og Samfylkitigin
fer í ríkisstjórnarsamstarf í
vor. Gerirþú þá kröfu utn ráðu-
neyti?
„Eins og ég áður sagði þá munu
oddvitar kjördæmanna helst
koma til greina þegar þingflokk-
urinn velur fólk til trúnaðar-
starfa. Ef ég næ því sæti sem
ée stefni á þá eru raunverulegir
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 12. OKTÖBER 2006 17