Fréttablaðið - 09.09.2017, Side 26
Steindi er einn þekktasti gamanleikari þjóðarinnar. Ferillinn spannar áratug. En upp á síðkastið hefur hann verið að færa sig út fyrir þægindarammann.
Úr gríninu sem er honum eðlislægt,
kannski meira að segja náðargáfa.
Yfir í dramatík. Og hann lofar góðu
í hlutverki ungs manns sem missir
tökin í kvikmyndinni Undir trénu,
í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sig-
urðssonar.
„Það var slegist um þetta hlut-
verk. Haddi bauð mér að koma
í prufu. Ég hef ekkert oft farið í
prufur og finnst það óþægilegt. En
Haddi hafði eitthvert sérstakt lag á
mér og mér gekk vel,“ segir Steindi.
Honum er létt eftir hátíðarfrum-
sýningu myndarinnar sem var í
vikunni í Háskólabíó. Eftir sýningu
myndarinnar risu gestir úr sætum
og fögnuðu með lófataki.
Sjálfsgagnrýninn
Fyrsta kvikmynd Hafsteins Gunn-
ars, Á annan veg, kom út árið 2011.
Myndin hlaut viðurkenningar og
verðlaun og var endurgerð í Banda-
ríkjunum undir heitinu Prince Aval-
ance. Þá sendi Hafsteinn Gunnar frá
sér París norðursins árið 2014 sem
einnig naut mikillar velgengni.
„Haddi er magnaður leikstjóri.
Hann hafði mikla þolinmæði fyrir
mér. Ég hef alltaf verið mjög efins
og fæ verkefni á heilann. Eftir hvern
tökudag fór ég yfir daginn á leiðinni
heim í Mosfellsbæ. Mér finnst gott
að hafa þennan tíma til að afgreiða
mál dagsins meðan ég keyri. En ég
á það til að verða sjálfsgagnrýninn
og rífa mig niður. Ég er auðvitað að
vinna í þessu. En ég hringdi í Hadda
að ég held alla tökudaga þegar ég
var kominn heim. Það er merkilegt
að hann hafi nennt þessu og haldið
andliti,“ segir Steindi og hlær að
sjálfum sér.
„Haddi er góður leikstjóri, hann
fer í gegnum hlutina. Æfir vel fyrir
tökurnar, fyrst í samlestri og svo á
tökustað. Hann fyllir meira að segja
efins mann eins og mig sjálfsöryggi.
Hann fullvissaði mig í hverju sím-
tali um að ég væri að gera rétt. Það
er hans helsti kostur. En svo sagði
hann mér seinna að hann sjálfur
hefði verið meira og minna hræddur
allt ferlið um sín störf. Svona erum
við öll sem störfum í þessum bransa.
Við erum hrædd. Það er vel hægt
að skilja. Ef þú setur fram eitthvað
sem þér þykir vænt um þá ertu ekki
rólegur yfir því eða kærulaus.
Ég held að ef þú ert óttalaus ættir
þú kannski að snúa þér að ein-
hverju öðru. Þú þarft að vera þjáður
í því sem þú ert að gera. Annars er
enginn drifkraftur og þú spyrð þig
ekki mikilvægra spurninga,“ segir
Steindi.
Með tuttugu „sálfræðinga“
Steindi leikur ungan mann sem
lendir í forræðisdeilu eftir að kær-
asta hans og barnsmóðir kemur að
honum að horfa á kynlífsmynd-
band. Hann missir tökin og flytur
heim til foreldra sinna sem standa
í nágrannaerjum vegna trés í garð-
inum. Foreldrana leika þau Sigurður
Sigurjónsson og Edda Björgvins-
dóttir. „Undir niðri er mikill harmur
sem ekkert er rætt um. Fólk er ekki
á staðnum og allra síst Atli sem ég
leik. Það að ræða ekki málin og
takast ekki á við þau er alltaf til ills.
Atli missir algjörlega þráðinn, hann
verður fjarrænn og það springur
allt í háaloft. Hjá honum og líka í
kringum hann. Hann verður þessi
lúser sem stendur í forræðisdeilu.
Ég er allt öðruvísi gerður. Ég held
að ég tali nærri því allan sólar-
hringinn,“ segir hann og glottir.
„Ég er mjög opinn og ræði allt. Og
svo finnst mér ég eiga svo góða vini
og vinkonur að, eins og ég sé með
svona tuttugu sálfræðinga í kringum
mig,“ segir Steindi sem samt fann
fyrir því að verða svolítið fjarrænn
og þungur í æfingum og tökuferlinu
fyrir myndina.
Saknaði dótturinnar
Steindi er í sambúð með Sigrúnu
Sigurðardóttur og eiga þau eina
dóttur, Ronju Nótt, sem nú er
þriggja ára. „Ég sá dóttur mína lítið í
æfingaferlinu og tökunum. Hún var
sofandi þegar ég fór út á morgnana
og ég kom ekki aftur fyrr en hún var
farin í háttinn. Ég var miður mín og
saknaði hennar, þetta lagðist þungt
á mig. Hún var svo lítil, bara tveggja
ára, og á þessum tíma í lífi barna
gerist svo margt. Mér fannst ég
bara missa ansi stóran hluta úr lífi
hennar. Kærastan mín sagði mér á
einum tímapunkti að ég væri bara
korter í alvarlegt þunglyndi. Það er
vont að koma sér í svona stöðu. Ég
var feginn þegar ég losnaði úr henni
og gat farið að sinna dóttur minni
aftur. Ég reyni svo að láta þetta ekki
gerast aftur. Þetta er það sem skiptir
máli. Við erum miklir vinir, ég og
Ronja Nótt. Ég er með reglu núna
sem mér finnst að allir í mínum
bransa ættu að hafa. Ég tek vinnuna
ekki með mér heim. Ég labba aldrei
inn á heimilið í símanum. Ég klára
það sem ég þarf að ræða úti í bíl. Svo
geng ég inn og hef athyglina á fjöl-
skyldunni.“
Og svo fer bara allt í bull
Steindi á sjálfur gott bakland. For-
eldrar hans eru Sigríður Edda
Valgeirsdóttir og Steinþór Stein-
þórsson. „Ég er mikill mömmu- og
pabbastrákur. Þau voru mætt allra
fyrst á frumsýninguna og hreinlega
Fór á íbúfen
kúrinn
Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur
sem Steindi Jr., sýnir á sér nýja hlið í sínu
fyrsta dramatíska hlutverki í kvikmyndinni
Undir trénu. Hlutverkið reyndi á. Hann var
lengi fjarvistum frá ungri dóttur sinni. Þá
þurfti hann að létta sig umtalsvert og fór
heldur óhefðbundna leið til þess.
„Kærastan mín sagði mér á einum tímapunkti að ég væri bara korter í alvarlegt þunglyndi,“ segir Steindi sem ætlar ekki að láta það gerast aftur að vera lengi frá dóttur sinni. Fréttablaðið/SteFán
Ég er með reglu núna
Sem mÉr finnSt að
allir í mínum branSa
ættu að Hafa. Ég tek
vinnuna ekki með mÉr
Heim. Ég labba aldrei
inn á Heimilið í Sím-
anum. Ég klára það Sem
Ég þarf að ræða úti í
bíl. Svo geng Ég inn og
Hef atHyglina á fjöl-
Skyldunni.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Snyrtistofan Ha lik
Okkar sérsvið er háræðaslitsmeðferðir !
Við vorum að flytja í nýtt og enn
glæsilegra húsnæði í Hlíðasmára 9 í Kópavogi.
Opnum á ný mánudag 11. september
Fyrir Eftir
Erum flutt í
Hlíðasmára 9
ATHUGIÐ !
Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-B
7
D
8
1
D
B
2
-B
6
9
C
1
D
B
2
-B
5
6
0
1
D
B
2
-B
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K