Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 33

Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 33
Skuld er ekki skömm! Að undanförnu hefur borið talsvert á fyrirspurnum frá neytendum í tengslum við endurfjármögnun fasteignalána enda hafa útlánsvextir flestra lánveitenda lækkað. Að mörgu er að hyggja í því sambandi og mikilvægt að neytendur séu meðvitaðir um réttindi sín ásamt þeim skyldum sem hvíla á lánveitendum. Hagsmunasamtök heimilanna hvetja lántakendur til ábyrgrar neytendahegðunar enda eru fasteignalán í flestum tilfellum einhverjar stærstu skuldbindingar venjulegs neytanda. Upplýsingar um lánakjör eru jafnan aðgengilegar á vefsíðum lánveitenda ásamt reiknivélum. Hinir ýmsu kostnaðarliðir geta verið lagðir á með ismunandi hætti og því ekki alltaf hægt að bera saman lánstilboð á vaxtaprósentunni einni saman. Samkvæmt lögum um neytendalán á jafnframt að upplýsa um árlega hlutfallstölu kost- naðar og heildarlántökukostnað að teknu tilliti til allra kostnaðarliða vegna lántöku og hvaða áhrif breytingar á vöxtum eða öðrum þáttum hafa á þann kostnað. Þegar um verðtryggð lán er að ræða skal einnig taka mið af áhrifum verðbólgu við slíka útreikninga og upplýsa neytendur um þá hækkun sem hún veldur á höfuðstól og greiðslubyrði þegar líður á lánstímann. Lánveit- anda ber jafnframt að útskýra alla samningsskilmála rækilega fyrir neytendum og áhrif þeirra, þar á meðal um skilyrði og heimildir til uppsagnar samnings og afleiðingar vanskila. - vegna endurfjármögnunar fasteignalána - VIÐVÖRUN TIL NEYTENDA! Uppgreiðslugjöld Neytendum er ráðlagt að kanna vel hvort eldri eða ný lán hafi að geyma skilmála um uppgreiðslu- gjald áður en ráðist er í endurfjármögnun. Aðeins er heimilt að krefjast uppgreiðslugjalds af lánum sem bera fasta vexti en óheimilt ef vextirnir eru breytilegir. Almennt er óheimilt að krefjast hærra uppgreiðslugjalds en sem nemur tjóni lánveitanda af uppgreiðslunni. Af lánum teknum eftir 1. nóvember 2013 er óheimilt að krefjast hærra uppgreiðslugjalds en 1% af fjárhæð endurgreiðslu ef meira en eitt ár er til loka lánstíma en annars 0,5%. Af fasteignalánum teknum eftir 1. apríl 2014 má uppgreiðslugjald ekki fara yfir 0,2% af endurgreiðslu fyrir hvert heilt ár sem eftir er af binditíma vaxta en þó aldrei meira en sem nemur kostnaði lánveitanda af uppgreiðslunni eða að hámarki 4% af endurgreiðslu. Þá er rétt að hafa í huga að ef ástæða fyrir uppgreiðslunni er gjaldfelling láns, svo sem vegna vanskila, er jafnan óheimilt að krefjast uppgreiðslugalds. Hagsmunasamtökum heim- ilanna hafa borist fyrirspurnir frá neytendum varðandi uppgreiðslugjöld þar sem slíkir skilmálar voru ekki kynntir sérstaklega fyrir neytendum við lántöku og ekkert upplýst um áhrif þeirra á umfang skuldbindinganna. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópuréttar getur upplýsingaskortur leitt til þess að staðlaðir skilmálar sem eru neytanda í óhag teljist vera óréttmætir en samtökunum er þó ekki kunnugt um að reynt hafi á slíkt fyrir íslenskum dómstólum. Skilyrði um önnur viðskipti Borist hafa ábendingar um að lánveitendur kunni að setja skilyrði fyrir endurfjármögnun eldri lána, svo sem að neytendur gangist undir samninga um ýmisskonar aðra og ótengda fjármálaþjónustu. Með nýlegum lögum um fasteignalán til neytenda var þó lagt bann við því að binda lánasamninga og lánstilboð slíkum skilyrðum. Er því rétt að vara neytendur við slíkum viðskiptaháttum en verði þeirra engu að síður vart er hægt að beina kvörtunum til Neytendastofu. Veðsetningarhlutföll Við nýja lántöku í tengslum við endurfjármögnun eldri veðlána getur skipt máli hversu hátt hlutfall nýrrar lánsfjárhæðar er af verðmæti fasteignarinnar. Samkvæmt nýlegum reglum um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda má það að hámarki nema 85% af markaðsverði eða 90% ef um er að ræða fyrstu kaup á fasteign. Sumir lánveitendur hafa strangari skilyrði um veðsetningarhlutföll, til dæmis að hámarki 60-75% eða þá að lánveiting umfram þau mörk sé með óhagstæðari vaxtakjörum. Er því rétt að neytendur kanni vel áður en þeir ráðast í endurfjármögnun hvaða áhrif slík skilyrði hafa við samanburð á vaxtakjörum. Frumrit eldri skuldabréfa Áður en gengið er frá endurfjármögnun er mikilvægt að fá að sjá frumrit þeirra skuldabréfa sem eldri lán byggjast á. Það er réttur þess sem greiðir upp skuldabréf að fá frumrit þess afhent enda kaupir hann það í raun og veru til baka með því að greiða upp skuldina, til dæmis með nýju lánsfé. Jafnframt er nauðsynlegt að frumriti sé framvísað svo hægt sé að aflýsa veðsetningu fasteignar sam- kvæmt veðskuldabréfi. Nokkuð hefur borið á því að frumrit liggi ekki fyrir þegar kemur að fullnustu eða uppgreiðslu lána og er því mikilvægt að neytendur gangi úr skugga um slíkt áður en nokkuð er gert sem kann að hrófla við þeim réttindum sem byggjast á frumriti veðskuldabréfs. Verðtrygging Loks vilja Hagsmunasamtök heimilanna vara við því að verðtryggð lán séu endurfjármögnuð til lengri tíma en eftir er af upphaflegum lánstíma. Slík framlenging á lánstíma eykur enn við söfnun verðbóta á höfuðstól og margfaldar endanlega greiðslubyrði. Hægt er að draga úr þessum áhrifum með því að gæta þess að nýtt lán sé ekki til lengri lánstíma en eftir er af eldra láninu. Einnig eru neytendur hvattir til að kynna sér eiginleika allra lánaforma sem í boði eru áður en tekin er ákvörðun um val á lánsformi til endurfjármögnunar. Auðvitað er það endanlegt markmið okkar að verð- trygging á lánum heimilanna eigi ekki að vera valkostur því á meðan lán heimilanna eru verðtryggð hafa ráðandi öfl á fjármálamarkaði ekki sama hag og við hin af því að halda verðbólgu í skefjun. Þannig virka alvöru hagkerfi eins og við viljum miða okkur við. Einnig má forðast þessa ókosti alfarið með óverðtryggðum lánum og eru neytendur því hvattir til að kynna sér eiginleika þeirra áður en tekin er ákvörðun um val á lánsformi til endurfjármögnunar. Að kynna sér vel skilmála um uppgreiðslugjöld Að vera á varðbergi gagnvart skilyrðum um önnur viðskipti Að gæta þess að frumrit eldri skuldabréfa fáist afhent Að vera meðvitaðir um ókosti höfuðstólsverðtryggingar Samtökin eru óháð hagsmunasamtök sem hafa barist fyrir réttindum neytenda á fjármálamarkaði frá 2009 Nánari upplýsingar á vefsíðu Hagsmunasamtaka heimilanna www.heimilin.is og heimilin@heimilin.is. NEYTENDUR ERU HVATTIR TIL: 0 9 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 1 1 2 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D B 2 -C 1 B 8 1 D B 2 -C 0 7 C 1 D B 2 -B F 4 0 1 D B 2 -B E 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.