Fréttablaðið - 09.09.2017, Blaðsíða 36
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Við þurfum á Guði að halda. Guð er haldreipi mannsins í öllum aðstæðum lífsins, gleði
og sorg. Mér fyndist erfitt að horfast
í augu við líf mitt og framtíð án þess
að hafa trú og held að ég sé ekki
svo ólíkur öðru fólki,“ segir séra Jón
Ómar Gunnarsson, inntur eftir því
hvort nútímamaðurinn þurfi á Guði
að halda.
Hann er nýr prestur í Fella- og
Hólakirkju Efra-Breiðholts, sjálfur
Breiðhyltingur frá níu ára aldri, en
fram að því sleit hann barnsskónum í
Rockford, Illinois, stutt frá Chicago.
„Að alast upp í Bandaríkjunum gaf
mér að vera tvítyngdur og ég er enn
fljótur að aðlagast skammtastærð-
unum vestra, sem eru í fyrstu alltof
stórar en verða svo næstum of litlar,“
segir hann og hlær.
„Ég hef alltaf átt í stormasömu
sambandi við mat þótt ég hafi aldrei
verið feitur. Ég reyni að borða hollt
en það er erfitt í kirkjum þar sem
er mikið um bakkelsi, svo ég tali nú
ekki um skírnarveislurnar þar sem
presturinn þarf helst að smakka á
fjórum rjómatertum svo að ömm-
unum sárni ekki. Það bjargaði mér að
kynnast CrossFit sem var mér opin-
berun um að gaman væri í líkams-
rækt og dró úr samviskubitinu ef ég
sleppti mér í óhollustunni.“
Ósanngjörn umræða
Jón Ómar var prestur í Glerárkirkju
áður en hann steig í prédikunarstól í
Efra-Breiðholti. Hann er kvæntur og
eiga hjónin sex ára son.
„Það var góð lífsreynsla fyrir okkur
Reykvíkingana að búa á landsbyggð-
Séra Jón Ómar
brallar ýmislegt
með fjölskyldu
sinni um helgar.
Hann skírir í
dag og messar
á morgun, en
byggir oft úr
legókubbum
með syni sínum
á laugardags-
morgnum. Svo
fer fjölskyldan
í sund, hjólar,
fer í heimsóknir
eða slappar vel
af í rólegheitum
heima.
MYND/ERNIR
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
skyldur þeirra hjóna búsettar syðra.
Jón Ómar þekkir Efra-Breiðholt
eins og lófann á sér. Hann æfði sund í
Breiðholtslaug, sótti handboltaæfing-
ar hjá ÍR í Austurbergi og útskrifaðist
sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti.
„Ég er að mörgu leyti kominn heim
og kannast enn við marga. Umræðan
um hverfið er oft ósanngjörn. Sem
Breiðhyltingur var ég orðinn fimm-
tán ára þegar ég heyrði fyrst að
Breiðholtið þætti varasamt en hafði
þó aldrei lent í neinu. Hér er heldur
ekkert að óttast. Breiðhyltingar eru
kraftmiklir frumkvöðlar sem byggðu
sér þrjár kirkjur; sjálfbjarga fólk með
drauma og vonir um að byggja upp
gott hverfi og gerði það. Það talar
svo best fyrir hverfið að fólkið sem
byggði það upp býr hér enn og vill
helst ekki flytja.“
Efra-Breiðholt er nafli alheims-
menningar. Íbúarnir eru af ótal
þjóðernum og aðhyllast mismunandi
trúarbrögð. Sem stendur eru 50 pró-
sent íbúanna kristnir Íslendingar í
þjóðkirkjunni.
„Hér lifa allir í sátt og samlyndi og
ólík trúarbrögð stía íbúunum ekki
í sundur. Hverfiskirkjan er opin og
víðsýn og við gerum okkur far um
að taka vel á móti fólki, hvort sem
það er kristið eða ekki. Kærleikurinn
opnar enda faðm sinn fyrir öllum. Í
barnastarfið koma börn af mörgum
þjóðernum enda vilja flestir foreldrar
að börn þeirra taki virkan þátt í sam-
félaginu.“
Fékk köllunina í laganáminu
Jón Ómar fór í lögfræði eftir stúdents-
próf og sóttist námið vel.
„Í lögfræðinni fékk ég köllun um að
verða prestur. Mamma hafði kennt
mér bænir á bernskuárunum og ég
hafði sótt barnastarf kirkjunnar, en
eftir fermingu fannst mér ég útskrif-
aður úr kirkjunni, eins og gengur.
Ég hélt þó í trúna og fór áfram með
bænirnar þrátt fyrir að vera ekki
trúheitur. Svo urðu þessi vatnaskil
í lögfræðinni og ég fann að ég vildi
fara dýpra í trúna. Öll viðleitni til að
sporna við kölluninni olli mér innri
ófriði. Ég hafði fullvissu um að ég ætti
betur heima í kirkjunni.“
Um tvítugt starfaði Jón Ómar í
sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi,
þar sem hann var leiðtogi hópa tíu
ára stráka, og kemur enn að starfi
sumarbúðanna í dag.
„Í Vatnaskógi fékk ég mína bestu
starfsþjálfun til að verða prestur,
bæði trúarlega og félagslega. Þar var
áskorun að segja strákunum frá Jesú
án þess að það yrði yfirdrifið heldur
skiljanlegt, svo að þeir gætu tekið það
með sér sem veganesti. Á morgnana
lásum við vers úr Nýja testamentinu
og alltaf kom í ljós að þeir höfðu
helling að segja um innihaldið og
upplifanir sínar,“ segir Jón Ómar sem
byrjaði og endaði hvern dag í Vatna-
skógi með bæn.
„Bænin er haldreipi sem huggar og
róar sál okkar manna. Þótt allt annað
sé farið situr bænin eftir, eða samtal
manns við Guð. Meira að segja hjá
efasemdamönnum, sem afgreitt hafa
prest, kirkju og Biblíuna, situr bænin
föst í hjarta og er það síðasta sem
fólk grípur til þegar öll sund virðast
lokuð.“
Til staðar í gleði og sorg
Guð er til og engin tímaskekkja, segir
Jón Ómar; hann á líka erindi við
nútímafólk.
„Mannkynið glímir við flókinn
veruleika en ætíð sömu grund vallar-
spurningarnar: Hvað gerist þegar
ég dey? Til hvers er ég hér? Hvernig
varð þetta allt til? Nútíminn hafnar
hins vegar trúnni og við eigum öll að
verða vísindaleg. En er það tilviljun
að sólin rís að morgni og sígur að
kvöldi? Það er einmitt alls ekki til-
viljanakennt og hnígur allt að sama
grunni, sem er sköpunarverk Guðs.“
Jón Ómar segir vísindi vissulega
góð og hluta af Guðs sköpun en
komin sé oftrú á ung vísindin. Þau
hafi gefið okkur margt en líka leitt af
sér hörmungar.
„Það er erfitt að byggja líf sitt á
þeim efnislegu gæðum sem nútíminn
metur mest. Þau byggja á veikum
grunni og geta horfið á augnabliki.
Og þrátt fyrir gott sjálfstraust og
trú á eigin ágæti þætti mér erfitt að
grundvalla líf mitt á mér einum og
sjálfum, sem er bara lítið peð í stóra
samhenginu. Einmitt þess vegna er
allur grundvöllur lífs míns, hugsana
og gilda, í trúnni á Jesú Kristi. Það er
sá eini grundvöllur sem ekki er for-
gengilegur né brotnar, og þar liggur
fullvissan um að ég sé falinn elsku
hans, sem er uppspretta kærleikans í
okkar lífi. Þá skiptir ekki máli þótt illa
gangi og margt bjáti á.“
Boðskapur kristinnar trúar er
fagur og mannbætandi og sannarlega
ekkert til að skammast sín fyrir, segir
Jón Ómar.
„Íslendingar líta margir á trú
sem persónulegan hlut, en mættu
ófeimnir flíka trú sinni af stolti, rétt
eins og Bandaríkjamenn gera og gert
er í öðrum helstu trúarbrögðum
heimsins. Kristin trú hefur skilað
Íslendingum friðsælu og eftirsóknar-
verðu samfélagi og við mættum vel
tala meira og opinskár um okkar
þjóðartrú.“
Uppáhaldsvers Jóns Ómars í Nýja
testamentinu er frá Páli postula í
Rómverjabréfinu. Þar segir:
„Í öllu þessu vinnum við sigur því
ekkert getur aðskilið okkur frá kær-
leika Guðs sem birtist okkur í Kristi
Jesú.“
„Fyrir mér eru þessi orð lykil atriði í
trúnni. Það er sama hvað á dynur; við
erum í Hans höndum. Það veganesti
hef ég haft út í lífið og er þakklátur
foreldrum mínum fyrir að hafa kennt
mér bænir og kirkjunni fyrir að bjóða
mér í barna- og fermingarstarf svo
að ég gæti eignast þessa trú. Guð er
ekki æðri máttur sem setti okkur
inn og fór heldur er hann nálægur.
Kristin trú segir gegnumsneitt að
Guð skapaði manninn, elskar hann
og vill honum blessunarríkt og gott
líf. Í þjóðfélagi þar sem við sjáum
glansmyndir af öðrum á Facebook og
upplifum okkur minna virði, er gott
að leita í trúna sem segir beint út: Þú
ert dýrmæt sköpun Guðs og skiptir
máli. Það gæti reynst huggunarríkt
þeim sem þjást af kvíða í árangurs-
drifnu og kröfuhörðu þjóðfélagi sem
marga er að buga.“
Efasemdamenn eiga virðingu Jóns
Ómars sem segir þá oftar en ekki
trúaðri en þá sem segjast trúa.
„Það er mannlegt að efast og
sjálfur er ég stundum gripinn efa.
Efann leggur maður í hendur Guðs í
gegnum bænina. Við prestar gerum
okkur grein fyrir að Guð vinnur
verkið. Við tölum við fólk en búum
ekki til brú til hans heldur gerir hann
það í okkur. Ynni Guð ekki verkið
væri óvinnandi vegur fyrir okkur að
bera áfram söguna um Jesú, söguna
sem við höfum heyrt alla ævi en segir
okkur alltaf eitthvað nýtt um lífið,
dauðann og upprisuna; að við séum
ekki til einskis gerð og að það sé til-
gangur með þessu öllu.“
inni og dásamlegt að búa á Akureyri.
Þar eignuðumst við marga góða vini
og bærinn mun alltaf eiga sérstakan
stað í hjörtum okkar. Mér finnst að
allir Reykvíkingar ættu að prófa að
búa á landsbyggðinni, Ísland stækkar
þá í huga manns,“ segir Jón Ómar
sem þótti gott og gefandi að þjóna í
Glerárkirkju en stóðst ekki mátið að
sækja um þegar prestsembætti var
laust í Fella- og Hólakirkju, enda fjöl-
Bænin er haldreipi
sem huggar og róar
sál okkar manna. Þótt allt
annað sé farið situr
bænin eftir, eða samtal
manns við Guð.
Jón Ómar Gunnarsson
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-D
A
6
8
1
D
B
2
-D
9
2
C
1
D
B
2
-D
7
F
0
1
D
B
2
-D
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K