Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 40
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Hluti skipuleggjenda og þátttakenda á Rokkhátíð æskunnar sem fer fram á KEX Hosteli á morgun. Í efri röð f.v. eru
Benedikt Reynisson frá KEX Hosteli, Kristín Björk Kristjánsdóttir, einnig þekkt sem Kira Kira, DJ Silja Glømmi og Karen
Briem sem stýra einni smiðjunni. Í fremri röð er hljómsveitin Smekkur sem kemur fram á morgun. MYND/VILHELM
Skemmtilegar smiðjur eru í boði
fyrir krakka á öllum aldri.
Hljómsveitin RuGl var ein þeirra sveit sem kom fram á síðasta ári.Lokatónleikar rokksumarbúða Stelpur rokka! voru vel sóttir í sumar. MYND/ERNIR
Líf og fjör enda fá allir að fikta.
Rokkhátíð æskunnar verður haldin í annað sinn á KEX hosteli á morgun, sunnudag.
Dagskrá hátíðarinnar er samansett
af lifandi tónlistaratriðum í bland
við gagnvirka fræðslu og vinnu-
smiðjur þar sem krakkar fá að fikta
í hljóðfærum sem búin eru til úr
ávöxtum, gera barmmerki, grúska
í raftónlist, þeyta skífum og margt
fleira, segir Benedikt Reynisson frá
KEX hosteli. „Rokkhátíð æskunnar
er haldin af Heimilislegum sunnu-
dögum hér á KEX í náinni sam-
vinnu við sjálfboðaliðasamtökin
Stelpur rokka!, líkt og í fyrra. Okkur
langaði til að búa til skemmtilegan
grundvöll fyrir krakka til að rokka
og leituðum því til Stelpur rokka! á
síðasta ári en þær eru búnar að vera
með öflugt starf undanfarin 5-6 ár.
Það er aðdáunarvert að sjá hversu
mikill kraftur er í þeim enda hefur
tónlistarlandslagið breyst mikið
hér á landi með tilkomu þeirra.“
Fjölbreytt dagskrá
Dagskráin stendur yfir frá kl. 13
til 15.30 og skiptist hún í tvennt,
tónleikaprógramm í bókahorninu á
KEX hosteli og smiðjur og kynn-
ingar í Gym & Tonic salnum.
„Tónleikadagskráin hefst kl. 14 og
skartar hljómsveitunum Chicken
Darkness, Jens og Smekk sem allar
koma úr rokkbúðum sumarsins
hjá Stelpur rokka! Áttan mætir líka
og hljómsveitin Gróa sem varð til í
rokkbúðum Stelpur rokka! og spilar
m.a. á Iceland Airwaves í ár.“
Í Gym & Tonic salnum verður
öllu rólegri stemning. „Þar ætla
Stelpur rokka! að vera með kynn-
ingu á starfi sínu og munu m.a.
kenna krökkum að gera eigin barm-
merki og ýmislegt fleira. Raftón-
listarkonan Kira Kira kennir trixin
á bakvið raftónlist og allir fá að
fikta. DJ Silja Glømmi verður með
plötusnúðasmiðju, Skema kynnir
ýmisleg tækniundur sem gera
krökkum kleift að búa til tónlist og
tónlistarsmáforritið Mussila verður
kynnt fyrir börnum en fyrirtækið
gerði nýlega samning við leikfanga-
keðjuna Hamley’s um dreifingu og
þróun á forritinu.“
Þetta er annað árið í röð sem
hátíðin er haldin og segir Benedikt
að aðsóknin hafi verið góð í fyrra og
að allir hafi skemmt sér vel. „Þetta
tókst bara nokkuð vel hjá okkur
í fyrra. Hátíðin var aðeins lengri
þá, eða frá kl. 13-16.30, en núna
ætlum við að hafa hana styttri og
hnitmiðaðri. Ég hugsa að um 400
manns hafi mætt hér á síðasta ári
og við eigum von á góðri aðsókn á
morgun.“
Frábært starf
Eins og fyrr segir sækja KEX liðar í
smiðju stelpnanna hjá Stelpur rokka!
en það eru sjálfboðaliðarekin samtök
sem starfa af femínískri hugsjón við
að efla stelpur, konur, trans og kyn-
segin einstaklinga í gegnum tónlistar-
sköpun að sögn Benedikts. „Kjarninn
í starfi samtakanna er rokksumar-
búðirnar en þar læra stelpur á hljóð-
færi, að spila saman í hljómsveit um
leið og þær kynnast farsælum tón-
listarkonum, fræðast um ólíkar hliðar
tónlistar og jafn réttisstarfs. Í lokin
koma þær svo fram á lokatónleikum
fyrir framan fullan sal fjölskyldna
og vina. Mér skilst að rúmlega 500
þátttakendur hafi tekið þátt í rokk-
búðunum undanfarin sumur og þar
hafi myndast yfir 100 hljómsveitir.
Sannarlega frábært starf sem þar er
unnið.“
Ókeypis er inn á hátíðina og allir eru
velkomnir. Nánari upplýsingar má
finna á Facebook-síðu KEX hostels.
Kraftmiklir krakkar rokka
Annað árið í röð stendur KEX hostel fyrir Rokkhátíð æskunnar í nánu samstarfi við Stelpur rokka!
Boðið verður upp á lifandi tónlistaratriði, gagnvirka fræðslu, skemmtilegar smiðjur og nóg af fikti.
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Sérblað um jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna
og viðskiptavina kemur út 30. september.
Áhugasamir hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími/Tel: +354 512 5429
jonivar@365.is
Í þessu blaði er hægt að kaupa auglýsingar sem og kynningar.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-E
9
3
8
1
D
B
2
-E
7
F
C
1
D
B
2
-E
6
C
0
1
D
B
2
-E
5
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K