Fréttablaðið - 09.09.2017, Blaðsíða 82
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Ingvars Ragnarssonar
Kaplaskjólsvegi 31.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11G,
blóðlækningadeildar Landspítala, fyrir einstaka umönnun.
Hanna Björk Baldvinsdóttir
Sigrún Elfa Ingvarsdóttir Árni Haraldur Jóhannsson
Fríða Ragna Ingvarsdóttir
Elfa Rut Klein
Katla Rut Jónsdóttir
Tinna Rut Jónsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður míns, tengdaföður, afa og
langafa,
Lárusar Sigurgeirssonar
húsgagnasmíðameistara,
Fálkagötu 30,
síðast til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík fyrir
einstaka umönnun og hlýju.
Gunnar Lárusson, Erna Reynisdóttir
Lilja Hrönn Gunnarsdóttir
Bryndís Gunnarsdóttir, Mikael Páll Pálsson
Ingvi Brynjar Ingvason
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Edda Dagbjartsdóttir
lést á Droplaugarstöðum 24. ágúst sl.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks
Droplaugarstaða í Reykjavík fyrir
einstaka umönnun og hlýhug.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hrannar Jónsson Kristín Þórðardóttir
Helga Jónsdóttir
Jón Þór Hrannarsson Brynja D. Björnsdóttir
Kolbrún Sif Hrannarsdóttir Andri Ingvason
Jón Otti Sigurjónsson
Axel Óli Sigurjónsson
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi og langafi,
Halldór Geir Halldórsson
rafvirki,
áður Fossvogsbletti 2a, Rvk, núna
Öldugerði 11, Hvolsvelli.
lést 30. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Lundi.
Útförin fer fram í Grensáskirkju mánudaginn
11. september kl. 13.00.
Auður Friðgerður Halldórsd. Jens Sigurðsson
Halldór Geir Jensson Birgitta Rut Birgisdóttir
Sigurður Kristján Jensson Sigrún Elva Guðmundsd.
Rúnar Smári Jensson
Kristín Anna Thorlacius Jensdóttir
Auður Ebba Thorlacius Jensdóttir
og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra
sem sýndu vináttu og hlýju
vegna andláts og útfarar
Aðalsteins Hjörvars
Friðfinnssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks
lungnadeildar Landspítala í Fossvogi
og Vífilsstaða fyrir einstaka hlýju og
umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Elsa Pétursdóttir
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Sýningin er nokkurs konar sam-tal milli tveggja staða, suður-ríkja Bandaríkjanna og Íslands og stemningin sem ég upplifði þar. Þetta eru þeir tveir staðir sem eru mér kærastir,“ segir
Friðgeir Helgason ljósmyndari um ljós-
myndasýninguna Stemningu sem hann
opnar í Listasafninu á Akureyri, Ketil-
húsi klukkan 15 í dag. „Myndirnar voru
teknar á árunum 2008-2013 þegar ég
þvældist um þessi svæði. Sumir mundu
segja: Hva, Louisiana og Ísland eiga ekk-
ert sameiginlegt en þeir eiga mig sam-
eiginlegan því ég ólst upp á Íslandi og
bjó í sextán ár í New Orleans.“
Landslagið sem myndirnar birta
er býsna ólíkt. „Louisiana er flatt eins
og pönnukaka, það er ekki einu sinni
Himmel bjerg þar heldur mikið fenja-
svæði sem er á hraðri leið að sökkva í
sjóinn. Bara að hverfa. Olíufélögin eru
búin að grafa svo mikið af skurðum
þarna og eyðileggja heilu svæðin. Sýn-
ingin er smá ádeila á hvernig maðurinn
fer með náttúruna og hins vegar hversu
hjálparlaus við erum gagnvart henni því
í raun og veru höfum við enga stjórn á
henni. Þarna eru nokkrar myndir af eld-
fjöllum á Íslandi, meðal annars af Eyja-
fjallajökulsgosinu. Samt er þetta ekki
áróður sem er í andlitinu á fólki heldur
undiralda þegar að er gáð.“
Sjálfur er Friðgeir úr Vestmanneyjum
og byrjaði eiginlega ævi sína á að lenda
í miklum náttúruhamförum. „Ég flutti
frá Eyjum gosnóttina 23. janúar 1973
í Breiðholtið. Fyrsta ljósmyndasýning
mín var Breiðholtssýning sem var á
Listahátíð Reykjavíkur 2010 og mynd
eftir mig var valin einkennismynd
hátíðarinnar það árið. Afi minn með
haglarann úti á svölum.“
Myndirnar á Stemningu voru allar
teknar á Kodakfilmu og Friðgeir prent-
aði þær í stækkara upp á gamla mátann.
„Það jafnast fátt á við að keyra stefnu-
laust um þjóðvegi með gamla góða
Pent axinn og slatta af filmum í skottinu.
Stoppa í vegasjoppum, fá sér í gogginn
og spjalla við innfædda,“ segir hann.
Friðgeir hefur búið í Bandaríkjunum
í þrátíu ár og er á förum heim til LA eftir
að hafa verið yfirkokkur á Hótel Flatey
í sumar. „Besta leiðin til að vera ekki
sveltandi listamaður er að vera kokkur
líka,“ segir hann sposkur.
Tvær sýningar verða opnaðar í Lista-
safninu á Akureyri, Ketilhúsi, klukkan
þrjú í dag, auk Stemningar er það Jafn-
vægi – Úr jafnvægi eftir myndlistarkon-
una Rúrí. gun@frettabladid.is
Undiralda þegar að er gáð
Á sýningunni Stemningu sem opnuð er í Listasafninu á Akureyri í dag er Friðgeir Helga-
son með ljósmyndir frá þeim stöðum sem honum þykir vænst um, Íslandi og Louisiana.
„Þegar ég vinn að minni list þá nota ég bara filmu, það kemur ekkert annað til greina. Ég er samt ekkert á móti stafrænu tækninni í
myndatökum. Þetta er bara svipað og þegar listmálarar velja sína pensla,“ segir Friðgeir. Mynd/Magnús Helgason
ein myndanna á sýningunni: Hekla. Mynd/Friðgeir Helgason
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
2
-8
1
8
8
1
D
B
2
-8
0
4
C
1
D
B
2
-7
F
1
0
1
D
B
2
-7
D
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K