Fréttablaðið - 09.09.2017, Side 94
endum hefur fjölgað í um 15.000 og
fjölbreytnin er að aukast innanhúss.
Aftur á móti eru nýjar leiksýningar
fáar fyrir áramót þó að danssenan
hafi sko sannarlega fundið sama-
stað í húsinu. SOL eftir leikhópinn
Sómi þjóðar stendur kannski efst á
listanum og forvitnilegt verður að
sjá hvað samstarfshátíðin Every-
body’s Spectactular býður upp á í
nóvember.
Björn Ingi Hilmarsson leikstýrir
tveimur barnaverkum í Þjóðleik-
húsinu þennan vetur. Fyrst má
nefna Oddur og Siggi sem mun
byrja sína vegferð á Ísafirði í
október en fyrir hið síðara er aftur
leitað til Peters Engkvist, en Loft-
hræddi örninn Örvar kom úr hans
smiðju. Salka Guðmundsdóttir
skrifar Skúmaskot fyrir Borgar-
leikhúsið og leikverkið Íó eftir
Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur lítur
dagsins ljós í Tjarnarbíó.
Danshús og bíóleikhús
Fagfólk innan sviðslistanna hefur
verið hávært upp á síðkastið
varðandi skammarlegan skort á
húsnæði fyrir dansara og danshöf-
unda á Íslandi. Nýlega misstu þau
húsnæði sitt við Skúlagötu og eru
þannig orðin húsnæðislaus. Enn og
aftur. Listin fæðist ekki í tómarúmi
og fæðingin verður gífurlega erfið
ef húsnæði er af skornum skammti
eða jafnvel ekki til staðar.
Leikhúsaðdáendur ættu líka að
fylgjast grannt með dagskránni í
Bíó Paradís. Á síðustu misserum
hefur húsið verið með sýningar í
boði NT Live. Nú síðast var það hið
óviðjafnanlega meistaraverk Tonys
Kushner, Angels in America, sýning
sem gekk fyrir fullu húsi í National
Theatre í London en einungis fáar
hræður mættu á útsendingar hérna
heima. Næst á dagskrá er verð-
launasýningin Yerma eftir Federico
García Lorca í leikstjórn hins ástr-
alska Simons Stone. Eftir áramót
fá Íslendingar loksins að sjá verk
eftir hinn goðsagnakennda Steph-
en Sondheim þegar söngleikurinn
Follies verður sýndur en stjörnum
hefur rignt yfir sýninguna á síðustu
dögum.
Söngleikir og grímuleikir
Hvað söngleikina á íslensku fjöl-
unum varðar þá er auðvitað spenn-
andi að Borgarleikhúsið taki Rocky
Horror til sýningar en hættan er
sú að verkið verði matreitt af of
mikilli mildi ofan í áhorfendur.
Verkið verður að staðsetja á jaðri
samfélagsins hverju sinni. Eftir að
hafa skrifað fína barnasýningu í
fyrra tekur Guðjón Davíð Karls-
son aftur upp pennann og mætir
með glymskrattasöngleikinn Slá í
gegn, byggðan á lögum Stuðmanna.
En hvenær munum við sjá nýjan
íslenskan söngleik? Með nýjum
íslenskum lögum? Biðin ætlar að
verða ansi löng.
Nú er líka kominn sá tími að
endurskoða verði umgjörð og
kosningar Grímuverðlaunanna.
Aðdragandi hátíðarinnar og síðan
afhendingin sjálf var í súrrealískara
lagi þar sem félagsfólk átti þess kost
að kaupa atkvæðisrétt og tæplega
fimmtíu ára gamalt verk fékk til-
nefningu sem besta leikritið. Á
hátíðinni fengu sumar sýningar
óútskýranlega mörg verðlaun
og einn hluti af stærra verki fékk
verðlaun fyrir sýningu ársins. Ef
ekkert verður að gert munu verð-
launin missa alla virðingu innan
sviðslistageirans fyrst og síðan hjá
áhorfendum.
Á öllum helstu leikhúsvígstöðvum
á höfuðborgarsvæðinu eru listrænir
stjórnendur og framkvæmdastjórar
búnir að finna sinn takt, þess má
geta að nýlega var Kristín Eysteins-
dóttir endurráðin sem leikhússtjóri
Borgarleikhússins, og yfirhöfuð
endurspeglar leikárið framför frá
því síðasta. Fögnum því og leikárinu!
Gleðilegt nýtt leikár!
Sumarið er senn á enda en lækkandi sól og komandi skammdegi boða sem betur fer nýtt leikár. Af ýmsu er að taka þetta árið og tímabært að rýna í þær
sýningar sem sviðslistahaustið hefur
upp á að bjóða.
Væntanlegir hápunktar
Ein athyglisverðasta sýning hausts-
ins er án efa verðlaunaleikritið
Faðirinn eftir franska leikskáldið
Florian Zeller í leikstjórn Kristínar
Jóhannesdóttur, sem telst til bestu
leikstjóra landsins. Sýningin verður
í Kassa Þjóðleikhússins og leik-
hópurinn er ekki af verri endanum
en þar fer fremstur í flokki Eggert
Þorleifsson í hlutverki André. Leik-
ritið er vandað og vel skrifað, algjört
gullegg fyrir leikara á borð við Egg-
ert, Eddu Arnljótsdóttur og Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur.
Samtímapólitíkin verður svo
sannarlega fyrirferðarmikil á fyrstu
mánuðum leikársins. Bergur Þór
Ingólfsson, sem má líka telja til
landsins bestu leikstjóra, verður við
stjórnvölinn í nýrri enskri leikgerð
byggðri á 1984 eftir George Orwell.
Áhugvert verður að sjá hvernig Þor-
valdur Davíð Kristjánsson tæklar
hlutverk hins efasemdafulla Win-
stons. Þorleifur Örn Arnarsson og
Mikael Torfason bjóða leikhúsgest-
um í partí aldarinnar í Borgarleik-
húsinu þar sem rannsóknarskýrsla
Alþingis um orsakir hrunsins liggur
til grundvallar. Þessum mönnum er
ekkert heilagt og málefni líðandi
stundar verða ekki tekin neinum
vettlingatökum. Vonandi verður
partíið samt ekki of mikil hug-
myndafræðileg óreiða.
Klassík í nýjum búning
Pólitíkin leikur líka stórt hlutverk
í Þjóðleikhúsinu á komandi mán-
uðum. Fyrsta stóra sýning Þjóð-
leikhússins er Óvinur fólksins eftir
Henrik Ibsen í leikstjórn Unu Þor-
leifsdóttur í nýrri þýðingu sem hún
og nýliðinn Gréta Kristín Ómars-
dóttir standa að. Setja má spurn-
ingamerki bæði við ansi stirða þýð-
ingu á titlinum sem og þá ákvörðun
að breyta Pétri Stokkman í Petru.
Slíkar grundvallarbreytingar á
verkinu eru mjög viðkvæmar í með-
förum og eru ekki endilega til bóta
ef aðrar áherslubreytingar í hand-
ritinu fylgja ekki með. Þó er mikið
fagnaðarefni að Sólveig Arnars-
dóttir sé að súa aftur á svið.
Hafið eftir Ólaf Hauk Símonar-
son verður endursviðsett, í tilefni
sjötugs afmælis leikskáldsins, og er
jólasýning Þjóðleikhússins. Leik-
skáldið hefur víst endurunnið verkið
en slíkt getur verið mjög vafasamt.
Aftur á móti er alltaf hægt að treysta
á Þröst Leó Gunnarsson til að koma
áhorfendum á óvart enda einn af
okkar allrabestu leikurum. Hörpu
Arnardóttur hefur aftur verið treyst
fyrir jólasýningu Borgarleikhússins
enda var hennar útgáfa af Dúkku-
heimili Ibsens eftirminnileg og vel
gerð. Nú leitar hún enn lengra aftur
í tímann og sviðsetur Medeu eftir
Evrípídes en Hrafnhildur Hagalín sér
aftur um leikgerð og þýðingu. Hlut-
verk Medeu er falið Kristínu Þóru
Haraldsdóttur en hún hefur verið á
miklu flugi síðustu misseri. Köld geta
kvennaráð verið en þessum konum
er sko aldeilis treystandi til að koma
með nýja sýn á klassíkina.
Ný íslensk og endurkomur
Leikskáldið framsækna Tyrfingur
Tyrfingsson snýr aftur með nýtt
leikverk að nafni Kartöfluæturnar
í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar.
Risaeðlurnar eftir Ragnar Bragason
er lokaverk leikhúsþríleiksins hans
og verður sýnt í Þjóðleikhúsinu.
Þessar tvær sýningar eiga það líka
sameiginlegt að marka endurkomu
leikkvenna sem snúa aftur á svið í
burðarhlutverkum. Sigrún Edda
Björnsdóttir leikur aðalhlutverkið
í Kartöfluætunum og Edda Björg-
vinsdóttir sinnir því í Risaeðlunum.
Eftir áramót snýr Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir líka aftur og þessu
ber að fagna innilega. Þeim öllum.
Því miður verður gamla platan
að fá spilun enn á ný og hamra á
þeirri nauðsyn að sinna íslenskri
leikritun betur. Í
Þjóðleikhúsinu má
finna eitt nýtt leik-
rit, eitt endurgert,
tvö ný barnaleik-
rit, eina leikgerð og
glymskrattasöngleik.
Borgarleikhúsið virð-
ist standa sig aðeins
betur með fjögur ný
verk, eitt nýtt barna-
leikrit og eina leik-
g e r ð . T ja r n a r b í ó
kemur nokkuð vel
út úr þessari upp-
talningu með allavega
fjögur ný leikverk og
eitt nýtt barnaverk,
þessar tölur gætu
breyst. Einnig er vert
að nefna að áhorf-
endur verða að vera
duglegri að sinna
þessum verkum með
því að kaupa miða á
ný íslensk verk.
Blikur á lofti á
Akureyri
Splunkunýr atvinnuleikhópur var
stofnaður fyrir norðan nú fyrir
stuttu og nefnist Umskiptingar
en þau frumsýndu nýtt verk fyrir
stuttu. Svona lýsir einn af stofn-
endunum forsendum hópsins: „Við
erum alls ekki að fara gegn leikfélag-
inu með því að stofna leikhóp, þvert
á móti, því leikhús getur af sér leik-
hús. Því meira og betra sem úrvalið
er þeim mun meira fer fólk í leikhús
þannig að aukin fjölbreytni er bara
af hinu góða fyrir samfélagið hérna
fyrir norðan.“
Við skulum vona að hópurinn
verði innspýting í leikhúslífið á
Akureyri því eins og áður hefur
komið fram stendur Leikfélag Akur-
eyrar á uggvænlegum tímamótum.
Félagið er fjársvelt en framlög
sveitar félagsins hafa staðið í stað allt
of lengi. Af því leiðir að enginn fastur
leikhópur hefur verið ráðinn. Að frá-
töldum gestasýningum, ábreiðutón-
leikum og endursýndum sýningum
sem eru þó nokkrar eru einungis
tvær nýjar leiksýningar, Kvenfólk
og Sjeikspír eins og hann leggur sig,
áætlaðar á þessu leikári. Aftur á móti
má benda á að leikfélagið hefur sinnt
grasrótinni afar vel með Borgarasvið-
inu og námskeiðum fyrir yngra fólk.
Slíkt er samt hreinlega ekki nóg fyrir
atvinnuleikhús.
Sjálfstæða senan og börnin
Leikárið í Tjarnarbíó byrjar hægt
en mikið er um vinsælar sýningar
frá fyrra leikári sem er vel. Áhorf-
Partí, pólitík og
púður í vetur
Nú líður að því að nýtt leikár gangi í garð
og af því tilefni leit Sigríður Jónsdóttir
leiklistargagnrýnandi yfir það helsta
sem er í boði á komandi mánuðum hjá
atvinnuleikhúsum landsmanna.
Steinunn Ólína Þorsteinssdóttir snýr
aftur í Þjóðleikhúsið í vetur í Efa.
Hundur í óskilum æfir nú sýninguna Kvenfólk í Samkomuhúsinu á Akureyri.
Galdrakarlinn í Oz mætir í Tjarnarbíó
í vetur með öllum sínum ævintýrum.
Ný leikgerð bókar Orwells
1984 er væntanleg á Stóra
svið Borgarleikhússins.
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r50 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
2
-9
0
5
8
1
D
B
2
-8
F
1
C
1
D
B
2
-8
D
E
0
1
D
B
2
-8
C
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K