Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 94

Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 94
endum hefur fjölgað í um 15.000 og fjölbreytnin er að aukast innanhúss. Aftur á móti eru nýjar leiksýningar fáar fyrir áramót þó að danssenan hafi sko sannarlega fundið sama- stað í húsinu. SOL eftir leikhópinn Sómi þjóðar stendur kannski efst á listanum og forvitnilegt verður að sjá hvað samstarfshátíðin Every- body’s Spectactular býður upp á í nóvember. Björn Ingi Hilmarsson leikstýrir tveimur barnaverkum í Þjóðleik- húsinu þennan vetur. Fyrst má nefna Oddur og Siggi sem mun byrja sína vegferð á Ísafirði í október en fyrir hið síðara er aftur leitað til Peters Engkvist, en Loft- hræddi örninn Örvar kom úr hans smiðju. Salka Guðmundsdóttir skrifar Skúmaskot fyrir Borgar- leikhúsið og leikverkið Íó eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur lítur dagsins ljós í Tjarnarbíó. Danshús og bíóleikhús Fagfólk innan sviðslistanna hefur verið hávært upp á síðkastið varðandi skammarlegan skort á húsnæði fyrir dansara og danshöf- unda á Íslandi. Nýlega misstu þau húsnæði sitt við Skúlagötu og eru þannig orðin húsnæðislaus. Enn og aftur. Listin fæðist ekki í tómarúmi og fæðingin verður gífurlega erfið ef húsnæði er af skornum skammti eða jafnvel ekki til staðar. Leikhúsaðdáendur ættu líka að fylgjast grannt með dagskránni í Bíó Paradís. Á síðustu misserum hefur húsið verið með sýningar í boði NT Live. Nú síðast var það hið óviðjafnanlega meistaraverk Tonys Kushner, Angels in America, sýning sem gekk fyrir fullu húsi í National Theatre í London en einungis fáar hræður mættu á útsendingar hérna heima. Næst á dagskrá er verð- launasýningin Yerma eftir Federico García Lorca í leikstjórn hins ástr- alska Simons Stone. Eftir áramót fá Íslendingar loksins að sjá verk eftir hinn goðsagnakennda Steph- en Sondheim þegar söngleikurinn Follies verður sýndur en stjörnum hefur rignt yfir sýninguna á síðustu dögum. Söngleikir og grímuleikir Hvað söngleikina á íslensku fjöl- unum varðar þá er auðvitað spenn- andi að Borgarleikhúsið taki Rocky Horror til sýningar en hættan er sú að verkið verði matreitt af of mikilli mildi ofan í áhorfendur. Verkið verður að staðsetja á jaðri samfélagsins hverju sinni. Eftir að hafa skrifað fína barnasýningu í fyrra tekur Guðjón Davíð Karls- son aftur upp pennann og mætir með glymskrattasöngleikinn Slá í gegn, byggðan á lögum Stuðmanna. En hvenær munum við sjá nýjan íslenskan söngleik? Með nýjum íslenskum lögum? Biðin ætlar að verða ansi löng. Nú er líka kominn sá tími að endurskoða verði umgjörð og kosningar Grímuverðlaunanna. Aðdragandi hátíðarinnar og síðan afhendingin sjálf var í súrrealískara lagi þar sem félagsfólk átti þess kost að kaupa atkvæðisrétt og tæplega fimmtíu ára gamalt verk fékk til- nefningu sem besta leikritið. Á hátíðinni fengu sumar sýningar óútskýranlega mörg verðlaun og einn hluti af stærra verki fékk verðlaun fyrir sýningu ársins. Ef ekkert verður að gert munu verð- launin missa alla virðingu innan sviðslistageirans fyrst og síðan hjá áhorfendum. Á öllum helstu leikhúsvígstöðvum á höfuðborgarsvæðinu eru listrænir stjórnendur og framkvæmdastjórar búnir að finna sinn takt, þess má geta að nýlega var Kristín Eysteins- dóttir endurráðin sem leikhússtjóri Borgarleikhússins, og yfirhöfuð endurspeglar leikárið framför frá því síðasta. Fögnum því og leikárinu! Gleðilegt nýtt leikár! Sumarið er senn á enda en lækkandi sól og komandi skammdegi boða sem betur fer nýtt leikár. Af ýmsu er að taka þetta árið og tímabært að rýna í þær sýningar sem sviðslistahaustið hefur upp á að bjóða. Væntanlegir hápunktar Ein athyglisverðasta sýning hausts- ins er án efa verðlaunaleikritið Faðirinn eftir franska leikskáldið Florian Zeller í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur, sem telst til bestu leikstjóra landsins. Sýningin verður í Kassa Þjóðleikhússins og leik- hópurinn er ekki af verri endanum en þar fer fremstur í flokki Eggert Þorleifsson í hlutverki André. Leik- ritið er vandað og vel skrifað, algjört gullegg fyrir leikara á borð við Egg- ert, Eddu Arnljótsdóttur og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur. Samtímapólitíkin verður svo sannarlega fyrirferðarmikil á fyrstu mánuðum leikársins. Bergur Þór Ingólfsson, sem má líka telja til landsins bestu leikstjóra, verður við stjórnvölinn í nýrri enskri leikgerð byggðri á 1984 eftir George Orwell. Áhugvert verður að sjá hvernig Þor- valdur Davíð Kristjánsson tæklar hlutverk hins efasemdafulla Win- stons. Þorleifur Örn Arnarsson og Mikael Torfason bjóða leikhúsgest- um í partí aldarinnar í Borgarleik- húsinu þar sem rannsóknarskýrsla Alþingis um orsakir hrunsins liggur til grundvallar. Þessum mönnum er ekkert heilagt og málefni líðandi stundar verða ekki tekin neinum vettlingatökum. Vonandi verður partíið samt ekki of mikil hug- myndafræðileg óreiða. Klassík í nýjum búning Pólitíkin leikur líka stórt hlutverk í Þjóðleikhúsinu á komandi mán- uðum. Fyrsta stóra sýning Þjóð- leikhússins er Óvinur fólksins eftir Henrik Ibsen í leikstjórn Unu Þor- leifsdóttur í nýrri þýðingu sem hún og nýliðinn Gréta Kristín Ómars- dóttir standa að. Setja má spurn- ingamerki bæði við ansi stirða þýð- ingu á titlinum sem og þá ákvörðun að breyta Pétri Stokkman í Petru. Slíkar grundvallarbreytingar á verkinu eru mjög viðkvæmar í með- förum og eru ekki endilega til bóta ef aðrar áherslubreytingar í hand- ritinu fylgja ekki með. Þó er mikið fagnaðarefni að Sólveig Arnars- dóttir sé að súa aftur á svið. Hafið eftir Ólaf Hauk Símonar- son verður endursviðsett, í tilefni sjötugs afmælis leikskáldsins, og er jólasýning Þjóðleikhússins. Leik- skáldið hefur víst endurunnið verkið en slíkt getur verið mjög vafasamt. Aftur á móti er alltaf hægt að treysta á Þröst Leó Gunnarsson til að koma áhorfendum á óvart enda einn af okkar allrabestu leikurum. Hörpu Arnardóttur hefur aftur verið treyst fyrir jólasýningu Borgarleikhússins enda var hennar útgáfa af Dúkku- heimili Ibsens eftirminnileg og vel gerð. Nú leitar hún enn lengra aftur í tímann og sviðsetur Medeu eftir Evrípídes en Hrafnhildur Hagalín sér aftur um leikgerð og þýðingu. Hlut- verk Medeu er falið Kristínu Þóru Haraldsdóttur en hún hefur verið á miklu flugi síðustu misseri. Köld geta kvennaráð verið en þessum konum er sko aldeilis treystandi til að koma með nýja sýn á klassíkina. Ný íslensk og endurkomur Leikskáldið framsækna Tyrfingur Tyrfingsson snýr aftur með nýtt leikverk að nafni Kartöfluæturnar í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar. Risaeðlurnar eftir Ragnar Bragason er lokaverk leikhúsþríleiksins hans og verður sýnt í Þjóðleikhúsinu. Þessar tvær sýningar eiga það líka sameiginlegt að marka endurkomu leikkvenna sem snúa aftur á svið í burðarhlutverkum. Sigrún Edda Björnsdóttir leikur aðalhlutverkið í Kartöfluætunum og Edda Björg- vinsdóttir sinnir því í Risaeðlunum. Eftir áramót snýr Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir líka aftur og þessu ber að fagna innilega. Þeim öllum. Því miður verður gamla platan að fá spilun enn á ný og hamra á þeirri nauðsyn að sinna íslenskri leikritun betur. Í Þjóðleikhúsinu má finna eitt nýtt leik- rit, eitt endurgert, tvö ný barnaleik- rit, eina leikgerð og glymskrattasöngleik. Borgarleikhúsið virð- ist standa sig aðeins betur með fjögur ný verk, eitt nýtt barna- leikrit og eina leik- g e r ð . T ja r n a r b í ó kemur nokkuð vel út úr þessari upp- talningu með allavega fjögur ný leikverk og eitt nýtt barnaverk, þessar tölur gætu breyst. Einnig er vert að nefna að áhorf- endur verða að vera duglegri að sinna þessum verkum með því að kaupa miða á ný íslensk verk. Blikur á lofti á Akureyri Splunkunýr atvinnuleikhópur var stofnaður fyrir norðan nú fyrir stuttu og nefnist Umskiptingar en þau frumsýndu nýtt verk fyrir stuttu. Svona lýsir einn af stofn- endunum forsendum hópsins: „Við erum alls ekki að fara gegn leikfélag- inu með því að stofna leikhóp, þvert á móti, því leikhús getur af sér leik- hús. Því meira og betra sem úrvalið er þeim mun meira fer fólk í leikhús þannig að aukin fjölbreytni er bara af hinu góða fyrir samfélagið hérna fyrir norðan.“ Við skulum vona að hópurinn verði innspýting í leikhúslífið á Akureyri því eins og áður hefur komið fram stendur Leikfélag Akur- eyrar á uggvænlegum tímamótum. Félagið er fjársvelt en framlög sveitar félagsins hafa staðið í stað allt of lengi. Af því leiðir að enginn fastur leikhópur hefur verið ráðinn. Að frá- töldum gestasýningum, ábreiðutón- leikum og endursýndum sýningum sem eru þó nokkrar eru einungis tvær nýjar leiksýningar, Kvenfólk og Sjeikspír eins og hann leggur sig, áætlaðar á þessu leikári. Aftur á móti má benda á að leikfélagið hefur sinnt grasrótinni afar vel með Borgarasvið- inu og námskeiðum fyrir yngra fólk. Slíkt er samt hreinlega ekki nóg fyrir atvinnuleikhús. Sjálfstæða senan og börnin Leikárið í Tjarnarbíó byrjar hægt en mikið er um vinsælar sýningar frá fyrra leikári sem er vel. Áhorf- Partí, pólitík og púður í vetur Nú líður að því að nýtt leikár gangi í garð og af því tilefni leit Sigríður Jónsdóttir leiklistargagnrýnandi yfir það helsta sem er í boði á komandi mánuðum hjá atvinnuleikhúsum landsmanna. Steinunn Ólína Þorsteinssdóttir snýr aftur í Þjóðleikhúsið í vetur í Efa. Hundur í óskilum æfir nú sýninguna Kvenfólk í Samkomuhúsinu á Akureyri. Galdrakarlinn í Oz mætir í Tjarnarbíó í vetur með öllum sínum ævintýrum. Ný leikgerð bókar Orwells 1984 er væntanleg á Stóra svið Borgarleikhússins. 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r50 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 9 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D B 2 -9 0 5 8 1 D B 2 -8 F 1 C 1 D B 2 -8 D E 0 1 D B 2 -8 C A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.