Fréttablaðið - 09.09.2017, Side 104
Erlendar vefverslanir njóta mikilla vinsælda á Íslandi ef marka má tölur frá fyrirtækjum sem sjá um þjónustu tengda innflutningi. Sif
Rós Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjá TVG-Xpress, dótturfélags
TVG-Zimsen, segir mikla aukningu á
ASOS-sendingum til landsins á milli
ára. Sem dæmi var 200% aukning á
milli ágúst í fyrra og ágúst á þessu ári,
og 264% aukning frá júlí í fyrra til júlí
á þessu ári.
Þjónustan sem TVG-Xpress býður
upp á felur í sér að pakkinn sé keyrð-
ur út til kaupanda. Þegar pakkinn
er kominn heim að dyrum greiðir
viðskiptavinurinn 24% virðisauka-
skatt og tollafgreiðslugjald upp á
Landsmenn ólmir í að
versla á netinu
Innflutningsfyrirtæki hafa séð aukningu á milli ára á sendingum til
landsins frá vefverslunum á borð við ASOS. Oft er mun ódýrara að
versla á slíkum síðum en þó ekki alltaf eins og verðdæmin sýna.
Kammersveit
Reykjavíkur
Hummel & Beethoven
Harpa Norðurljós
10. september 2017 / 17:00
Reykjavík Chamber
Orchestra
Tveir septettar / Two Septets
www.kammersveit.is / harpa.is
NIKE Cortez
leðurskór
9.753 krónur á ASOS
(12.094 krónur með VSK)
12.995 krónur í Gallerí sautján
Dr. Martens
Flora-stígvél
16.024 krónur á ASOS
(19.869 krónur með VSK)
26.995 krónur í GS skóm
Kringlótt Jajo-
sólgleraugu frá
Ray-Ban
18.671 krónur á ASOS
(23.152 með VSK)
24.500 krónur í Optical Studio
Háir All Star
strigaskór frá
Converse
6.967 krónur á ASOS
(8.639 krónur með VSK)
11.995 krónur í Skór.is
Levi’s 519 Extreme
Skinny-buxur
11.843 krónur á ASOS
(14.685 krónur með VSK)
12.990 krónur í Levi’s búðinni
Gunnhildur Birna
förðunarfræðingur.
950 krónur. Spurð út í hvort hún
verði vör við að fólk gleymi að taka
þennan aukakostnað inn í dæmið
þegar það verslar á netinu og hvort
illa gangi stundum að innheimta
aukakostnaðinn svarar Sif neitandi.
„Nei, fólk setur það ekki fyrir sig að
greiða þennan kostnað. Sumir spyrja
kannski hvað þeir séu að borga fyrir,
og þegar við útskýrum að þetta sé
virðisaukaskattur þá skilur fólk
það,“ segir Sif sem upplifir að fólki
þyki þægilegt að versla á netinu og
fá varninginn heimsendan nokkrum
dögum seinna, og ekki skemmir fyrir
að oft á tíðum er ódýrara að versla á
netinu.
Meðfylgjandi fyrir ofan
er verðsamanburður á
nokkrum vörum sem
fást bæði á ASOS
og einnig í versl-
unum hér á landi.
Í sumum til-
fellum er dýrara
eða álíka dýrt
að versla á ASOS
þegar virðisauka-
skattur og tollaf-
greiðslugjald eru
tekin inn í dæmið.
En í öðrum tilfellum er
mun ódýrara að versla á
ASOS en Íslandi. Það borgar sig
því að gera verðsamanburð.
Verð, þægindi og vöruúrval
Förðunarfræðingurinn Gunnhildur
Birna Gunnarsdóttir er ein þeirra
sem versla reglulega á netinu. Spurð
út í af hverju hún kjósi oft að versla
á netinu segir hún: „Ástæðurnar
eru aðallega verð, þægindi og vöru-
úrval,“ segir Gunnhildur sem verslar
gjarnan á ASOS, Cult Beauty og Far-
fetch. „Auðvitað eru innlendar síður
líka meðal þeirra sem ég versla á
„online“, þá helst þegar það eru til-
boð eða útsölur í gangi.
Ég hef verslað á netinu í mörg ár en
undanfarið hefur það aukist mikið
þar sem ég sé einfaldlega meiri hag
í því en að versla hér heima. Ég geri
verðsamanburð þegar varan fæst líka
hér heima, en til að mynda keypti ég
íþróttaskó á netinu sem kostuðu um
12 þúsund krónur hingað komnir
en hefðu kostað mig talsvert yfir 20
þúsund krónur heima. Fyrir mér eru
svoleiðis dæmi „no brainer“. Hinn
póllinn er svo að auðvitað vill maður
styrkja innlenda kaupmenn og
það kostar yfirleitt meira
sem er allt í góðu, en
álagning þarf þá að
vera innan ákveð-
inna marka og
réttlætanleg.“
Spurð út í
helstu kosti og
galla sem fylgja
því að versla á
erlendum net-
s í ð u m s e g i r
G u n n h i l d u r :
„Helstu kostirnir
eru fyrst og fremst
verðið sem segir heil-
mikið, en á eftir fylgja þæg-
indin við að geta verslað að heiman
úr sófanum og náð í hlutinn í næsta
póstbox eða fengið hann sendan
heim. Vöruúrvalið er svo í mörgum
tilfellum mun betra. Gallarnir við
að versla á netinu eru svo auðvitað
að einstaka sinnum kemur fyrir að
varan henti manni ekki sem leiðir þá
oftast til þess að maður skilar henni
eða selur.“
gudnyhronn@365.is
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r60 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
2
-B
2
E
8
1
D
B
2
-B
1
A
C
1
D
B
2
-B
0
7
0
1
D
B
2
-A
F
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K