Fréttablaðið - 17.08.2017, Síða 10
Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem
úthlutað verður árið 2018 í samræmi við ákvæði laga
nr. 57/2009.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, mánudaginn 2. október.
Starfslaun eru veitt úr sex sjóðum, þeir eru:
launasjóður hönnuða
launasjóður myndlistarmanna
launasjóður rithöfunda
launasjóður sviðslistafólks
launasjóður tónlistarflytjenda
launasjóður tónskálda
Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka:
● Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð eða fleiri,
falli vinnan undir fleiri en einn sjóð.
● Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn
launasjóð eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð.
● Starfslaun fyrir sviðslistahópa. Sviðslistahópaumsókn er
felld inn í atvinnuleikhópaumsókn.
Umsókn um starfslaun, lög og reglugerðir eru á vefslóðinni
www.listamannalaun.is. Nota þarf íslykil / rafræn skilríki við
umsóknina.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn
aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu vegna
síðustu úthlutunar hefur verið skilað til stjórnar
listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun
nr. 57/2009.
● Ferðastyrkir verða ekki veittir.
● Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum
í gegnum umsóknarkerfið.
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga
á skrifstofu Rannís, listamannalaun@rannis.is.
Stjórn listamannalauna, ágúst 2017
Umsóknarfrestur 2. október
Listamannalaun
2018
„Við getum ómöguleg séð að það geti
gengið upp að troða öllum þessum
íbúðum á þennan litla blett. Vegur-
inn annar varla bílaumferðinni við
núverandi ástand, við getum ekki
séð hvernig í ósköpunum hann ætti
að anna umferð eftir breytingar og
teljum slysahættu verða óboðlega
mikla,“ segir í athugasemd fjölskyldu
sem býr að Skógarvegi 14 um tillögu
að breyttu deiliskipulagi á götunni.
Tillaga um breytingar á deiluskipu-
lagi að Sléttuvegi 25-27 og Skógarvegi
4-10 í Fossvogsdal liggur fyrir skipu-
lagsstjóra Reykjavíkurborgar. Sam-
kvæmt núgildandi deiliskipulagi er
gert ráð fyrir að þar rísi á næstunni
hjúkrunarheimili, auk leiguíbúða og
þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða.
Reykjavíkurborg hefur samið við
Hrafnistu um rekstur heimilisins sem
einnig vill reka þar leiguíbúðirnar og
þjónustumiðstöðina.
Breytt tillaga að deiluskipulagi
felur í sér að heildarfjöldi íbúðaein-
inga verði allt að 289 í stað 212 íbúða
sem ákveðið hafði verið í fyrra deilu-
skipulagi. Þar af verði 99 rými í hjúkr-
unarheimilinu. Á móti kemur að
gert er ráð fyrir að hver íbúð verður
minni en áður var ráðgert. Þá er gert
ráð fyrir því að fyrirhuguð þjónustu-
miðstöð verði 1.900 fermetrar en
ekki 5.000 eins og ráðgert var í fyrra
deiliskipulagi.
Þessar breytingar sætta íbúar á
Sléttuvegi og Skógarvegi sig ekki við
og áður en frestur til að skila athuga-
semd rann upp höfðu fjórtán ein-
staklingar, eða fjölskyldur, gert alvar-
legar athugasemdir.
„Með svona heimilum fylgja rosa-
lega margir bílar sem er bara ekki
hægt. Auðvitað er gott að fá gamla
fólkið og það er bara fínt. En það er
leiðinlegt að það þurfi að auka bygg-
ingamagn svona svakalega mikið,“
segir Kjartan Freyr Kjartansson, sem
er formaður húsfélagsins við Skógar-
veg 12-14. Hann segir alla íbúa í hús-
inu vera sammála um að breytingin
sé eitthvað sem ekki sé hægt að sætta
sig við.
Kjartan Freyr segir við Frétta-
blaðið að nú þegar vanti heilmörg
bílastæði á svæðið og ástandið verði
hálfu verra ef byggt yrði samkvæmt
nýju tillögunni að deiliskipulaginu.
jonhakon@frettabladid.is
Frábiðja sér tugi nýrra
íbúða í Fossvogsdalinn
Vilji stendur til þess að byggja mun fleiri íbúðir fyrir aldraða í Fossvogsdal en
áður hafði verið áformað. Íbúar eru óhressir með tillöguna. Fjölskylda í hverf-
inu telur slysahættu geta orðið mikla. Annar íbúi óttast mikinn bílastæðavanda.
Ráðgert er að byggja hjúkrunarheimili og íbúðir fyrir aldraða rétt vestan við Landspítalann í Fossvogi. FRéttabLaðið/ERniR
Með svona heimil-
um fylgja rosalega
margir bílar sem er bara ekki
hægt.
Kjartan Freyr Kjartansson, formaður
húsfélagsins við Skógarveg 12-14
VI ÐSKI PTI Fjármálafyrirtækið
GAMMA Capital Management er
með 263 milljóna króna skortstöðu
í olíufélaginu N1, samkvæmt upp-
lýsingum frá Fjármálaeftirlitinu.
Fyrirtækið tilkynnti eftirlitinu um
skortstöðuna 10. ágúst síðastliðinn.
Taki fjárfestir skortstöðu í hluta-
bréfum félags skapast honum hagn-
aður við verðlækkun viðkomandi
bréfa. Með öðrum orðum veðjar
fjárfestirinn á að bréfin lækki í verði.
Samkvæmt nýrri reglugerð Evr-
ópusambandsins, sem tók gildi 1.
júlí, þarf fjárfestir að tilkynna Fjár-
málaeftirlitinu um skortstöðu í
bréfum félags þegar hún fer yfir
0,2 prósent af útgefnu hlutafé
félagsins.
Skortstaða GAMMA í N1 er 0,93
prósent af útgefnu hlutafé olíu-
félagsins eða sem jafngildir rúmum
263 milljónum króna. Hlutabréf
félagsins hafa lækkað um tæp tíu
prósent í verði það sem af
er ári. Samkeppnis-
eftirlitið fjallar nú
um fyrirhuguð
kaup félagsins á
Festi, sem rekur
meðal ann-
ars verslanir
Krónunnar
og ELKO.
– kij
GAMMA með 2,3
milljóna skortstöðu í N1
Eggert Þór Kristófers-
son, forstjóri n1.
263
milljóna skortstaða
Gamma í olíufélaginu N1.
0,93%
af útgefnu hlutafé N1.
STjórnSýSla Benedikt Jóhannsson,
fjármála- og efnahagsráðherra,
hefur skipað nýja stjórn Bankasýslu
ríkisins. Í stjórninni sitja Lárus L.
Blöndal hæstaréttarlögmaður sem
verður formaður, Margrét Krist-
mannsdóttir framkvæmdastjóri
er varaformaður og Almar Guð-
mundsson hagfræðingur. Vara-
maður er Egill Tryggvason við-
Lárus Blöndal formaður Bankasýslu ríkisins
Lárus L. blöndal,
stjórnarformaður
bankasýslu
ríkisins.
skiptafræðingur. Stjórnin er skipuð
til tveggja ára.
Kveðið er á um helstu verkefni og
markmið stofnunarinnar í lögum
um Bankasýslu ríkisins auk þess
sem gert er ráð fyrir að starfsemi
stofnunarinnar mótist af eiganda-
stefnu ríkisins í fjármálafyrirtækj-
um. Stjórnin er skipuð til tveggja
ára. – bb
1 7 . á g ú S T 2 0 1 7 F I M M T U D a g U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a Ð I Ð
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
0
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-A
1
A
4
1
D
7
F
-A
0
6
8
1
D
7
F
-9
F
2
C
1
D
7
F
-9
D
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K