Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 46

Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 46
Sjálf fer ég aldrei beinlínis eftir árstíðatísku í förðun en ég dett samt í annan gír á haustin en á sumrin og finnst þá skemmtilegra að nota dökka liti. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Hausttískan í förðun mun almennt einkennast af dekkri litum. Dökkur augn- farði og dökkur litur á varirnar verða áberandi og mattir litir víkja fyrir glossinu sem fær að njóta sín. Sjálf fer ég aldrei beinlínis eftir árs- tíðatísku í förðun en ég dett samt í annan gír á haustin en á sumrin og finnst þá skemmtilegra að nota dökka liti,“ segir Guðrún Sort- veit sem lauk námi í förðun fyrir þremur árum. „Ég hef alltaf haft áhuga á förðun og eftir að hafa fylgst með förðunarmyndböndum á YouTube ákvað ég að slá til og skráði mig til náms í förðunar- skóla. Frá því að ég útskrifaðist hef ég unnið við förðun og ýmis verk Fer eigin leiðir í förðuninni Guðrún Sortveit förðunarfræðingur spáir því að dökkir augnskuggar og varagloss verði áberandi í haustförðuninni. Hún segir að ljósir og mattir litir séu á útleið en hárauður komi sterkur inn. „Fyrir mér er mjög mikilvægt að vera með gott púður því ég er með olíumikla húð, auk þess sem augnabrúnavörur og sólarpúður koma sér alltaf vel. Síðan er ég alltaf með eitthvað á varirnar,“ segir Guðrún Sortveit förðunarfræðingur. Hárauður kemur sterkur inn, þá annaðhvort rauðar varir eða rauður augn- skuggi, að sögn Guðrúnar. MYND/GETTY Dökk augnförðun verður allsráðandi í haust. MYND/GETTY efni sem tengjast henni. Ég blogga á Trendnet.is og er með opinn Snapchat-aðgang fyrir þá sem vilja fylgjast með því sem ég er að gera. Í sumar hef ég einnig unnið sem flugfreyja og í haust held ég áfram námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands,“ segir Guðrún en hægt er að finna hana á Snapchat undir heitinu gsortveitmakeup. Hvaða litir koma nýir inn í haust? „Hárauður kemur sterkur inn, þá annaðhvort rauðar varir eða rauð- ur augnskuggi. Síðan eru klassísku haustlitirnir allaf mjög flottir og dökkar varir klikka aldrei. Ljósir litir detta út með haustinu.“ Hvaða snyrtivörur eru ómissandi í snyrtiveskið? „Fyrir mér er mjög mikilvægt að vera með gott púður því ég er með olíumikla húð, auk þess sem augnabrúnavörur og sólarpúður koma sér alltaf vel. Síðan er ég alltaf með eitthvað á varirnar. Það er þó ótrúlega mis- munandi hvað leynist í snyrtivesk- inu mínu því ég er dugleg að prófa nýjar snyrtivörur og skipta út. Það sem er í miklu uppáhaldi hjá mér núna er Urban Decay Bronzed sólarpúður, Sensai bronzing gel, Age Rewind hyljarinn frá Maybell- ine, Drops of Glow frá Body Shop og Monsiuer Big frá Lancôme. Ég elska ljómandi húð og fyrir mér er það alltaf flott.“ Hvaða snyrtivöru getur þú alls ekki verið án? „Það eru líklegast augnabrúnavörurnar mínar en ég nota helst augnabrúnavörur frá Urban Decay og síðan er nýja uppáhaldið mitt Drops of Glow frá The Body Shop, æðisleg vara sem gefur ótrúlega fallegan ljóma.“ Lumar þú á góðum förðunar- ráðum? „Já, ég mæli með að nota rakasprey. Sumir eru kannski hræddir við að nota það í gegnum alla förðunina en ég segi að það sé betra að nota meira af því en minna. Það frískar upp á alla förðunina og blandar öllu saman. Uppáhaldsrakaspreyið mitt þessa stundina er Ginzing rakaspreyið frá Origins.“ Hvaða mistök gera flestir þegar kemur að förðun? „Ég held að stærstu mistökin séu að fólk hreinsar ekki húðina nógu vel eftir förðunina en það er ótrúlega mikilvægt. Ég mæli með tvöfaldri hreinsun, þ.e. byrja á að taka farðann af og hreinsa húðina síðan mjög vel. Loks er mikilvægt að nota gott rakakrem.“ Hvernig færðu hugmyndir að flottri förðun? „Ég skoða netið mikið, t.d. Instagram, Pinterest og YouTube. Það eru svo margir flottir förðunarfræðingar sem gaman er að fylgjast með og fá innblástur frá. Þeir sem mér finnst standa upp úr á YouTube eru Pixiwoo-systurnar, Makeupshayla, Lily Pebbels, The Anna Edit, Tanya Burr, Desi Perkins, Lusterlux, Jachlyn Hill og margir fleiri. Ég mæli líka með að fylgjast með íslenskum You- Tuber-um.“ Netverslun á tiskuhus.is Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Nýjar haustvörur streyma inn - þar sem röddin þín hljómar SÖNGNÁM FYRIR ALLA Stúlknakór Reykjavíkur frá 5 - 17 ára Aurora 18 - 28 ára Vox feminae – fyrir konur 28 - 45 ára Cantabile – fyrir konur 45 ára og eldri Tækifæri til að búa sig undir kvennakóramótið í Reykjavík 2020 Ferðalög – Tónleikar – Raddþjálfun – Tónfræði -Stigspróf – Söngkort Söngskólinn Domus vox, Laugavegi 116 www.domusvox.is Umsóknir á rafrænreykjavik.is, domusvox.is og voxfeminae.is. Upplýsingar í síma 511-3737, 861-7328 og 893-8060 Innritun hafin! 12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . áG ú S T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 6 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 7 F -D 7 F 4 1 D 7 F -D 6 B 8 1 D 7 F -D 5 7 C 1 D 7 F -D 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.