Fréttablaðið - 17.08.2017, Page 70
E inleikjahátíðin Act Alone fór fram í fjórtánda skiptið um síðustu helgi á Suðureyri við Súgandafjörð. Þar eru íbúar um 270, og
talan margfaldast á þeim þremur
dögum sem viðburðirnir eiga sér
stað. Leikarinn Elfar Logi Hannes
son er potturinn, pannan og eldur
inn undir hátíðinni sem stækkar á
hverju ári. Hjarta hátíðarinnar er í
félagsheimili þorpsins sem tekur
tæplega 200 manns í sæti. En starfs
fólki hátíðarinnar tekst með ótrú
legum hætti að finna pláss handa
öllum þeim sem vilja sækja listvið
burðina sem eru í boði. Ókeypis
er inn á alla viðburði og unnið er
hörðum höndum við að hafa dag
skrána fjölbreytta.
Hugmyndafræði hátíðarinnar er
einföld: Eina reglan er að listafólkið
sem tekur þátt í hátíðinni þarf að
standa eitt á sviði og fremja sína
list. En allar góðar reglur er hægt
að beygja örlítið þó að yfirhöfuð
standist þær skoðun. Eins og áður
sagði fer hátíðin fram á Suðureyri
en einu sinni voru gerðar tilraunir
til að færa hátíðina til Ísafjarðar,
allavega að hluta. Þær hugmyndir
gengu ekki nægilega vel upp og með
hjálp ókeypis rútuferða frá Ísafirði
er leikur einn að komast yfir fjall s
skarðið.
Fiskur og fjallkonan
Hefð er nú orðin fyrir því að her
legheitin hefjist á fimmtudeginum
með heljarinnar fiskiveislu í boði
fyrirtækja á svæðinu og er góð
gætið auðvitað ókeypis. Löng röð
myndaðist við hlaðborðið og var
ekki óalgengt að sjá áhorfendur
mæta hálftíma fyrir sýningu til að
fá bestu bitana og sætin.
Fjallkonan eftir Heru Fjord í
leikstjórn Ragnheiðar Hörpu Leifs
dóttur var opnunarsýning hátíðar
innar. Í sýningunni vefur Hera eigin
reynsluheim saman við lífshlaup
langalangömmu sinnar, veitinga
konunnar Kristínar Dahlstedt,
sem fór ung til Danmerkur að læra
matseld og rak síðan veitingaþjón
ustu í Reykjavík við góðan orðstír.
Elfar Logi tók síðan sjálfur við með
einleiknum sínum um einbúann
Gísla á Uppsölum sem Þröstur Leó
Gunnarsson leikstýrði. Sú sýning
fór hringferð um landið á síðast
liðnu ári og allar líkur á því að fleiri
sýningar séu í kortunum. Eyrún Ósk
Jónsdóttir, rithöfundur og leikari,
lokaði síðan þessum fyrsta degi með
útiupplestri upp úr ljóðabók sinni
Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa,
sem hreppti Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar í fyrra.
Upplesturinn fór fram á leikvelli
bæjarins í stafni gamallar trillu við
kertaljós í ljósaskiptunum. Þetta
var ekki eina sýningin sem fór fram
undir óvenjulegum kringumstæð
um þar sem fegurð fjarðarins fékk
að njóta sín.
Listir á landsbyggðinni
Atvinnutækifæri listafólks utan
höfuðsvæðisins voru í brennidepli
á föstudeginum en þá var efnt til
málstofu um óstöðugan stuðning
ríkis og sveitarfélaga við listastarf
semi á landsbyggðinni. Gísli H.
Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðar,
setti þingið og Kolbrún Halldórs
dóttir, forseti Bandalags íslenskra
listamanna, stjórnaði umræðum.
Frummælendur voru Jón Páll Eyj
ólfsson, leikhússtjóri hjá Leikfélagi
Akureyrar, Karna Sigurðardóttir,
forstöðumaður Menningarstofu
Fjarðabyggðar, og Einar Þór Gunn
laugsson leikstjóri.
Upphaflega átti Halldór Hall
dórsson, oddviti Sjálfstæðisflokks
ins í Reykjavíkurborg og formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
að taka þátt í umræðum eftir fram
sögu frummælenda en afboðaði
komu sína. Teitur Björn Einarsson,
alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, tók hans stað.
Elfar Logi sat einnig fyrir svörum en
mætingin var því miður ekki nægi
lega góð þrátt fyrir mikilvægt mál
efni.
Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar
flokkanna var til umræðu og benti
Kolbrún á að listir hefðu orðið
undir eftir að skilgreining mála
flokksins um skapandi greinar
hefði verið víkkuð út. Í núverandi
mynd er hvergi fjallað um listir í
samstarfs yfirlýsingunni þrátt fyrir
að menning og menningararfleið
sé til umfjöllunar. Í sinni núverandi
mynd fer meira fyrir tæknigreinum,
verknámi og hönnun heldur en að
sérstaklega sé tekið tillit til listsköp
unar. Slíkt kemur niður á listafólki
og listinni sjálfri.
Jón Páll dró upp dökka mynd af
fjárhagsstöðu LA en fjárframlög til
félagsins hafa ekki hækkað í áratug,
aldrei hafi verið bætt fyrir 20% nið
urskurðinn eftir hrun og ekki er til
fjármagn fyrir fastráðinn leikhóp. Í
maí síðastliðnum lögðu forsprakkar
félagsins fram breytingartillögur
sem liggja nú á borði yfirvalda og
sagði Jón Páll að boltinn væri kyrfi
lega á þeirra velli en enn er fátt um
svör. Einar Þór benti á að sárlega
skorti rannsóknir á sviði listgreina
og þá sérstaklega hvað varðar kort
leggingu skapandi greina. Ekki var
umræðan öll biksvört en Karna,
nýráðinn forstöðumaður Menn
ingarstofu Fjarðabyggðar, benti á
að þolinmæði og þrautseigja skil
aði sér að lokum og að hennar starf
hafi verið skapað sérstaklega til að
styðja við menningu í Fjarðabyggð.
Listafólk, sem og stjórnarfólk, yrði
að skoða hvað vantaði í samfélagið
ekki endilega einblína á það sem
fólk vildi.
Pabbi, kona og skemmtun
Eftir fjörugar samræður var komið
að sýningardagskrá kvöldsins þar
sem Hannes Óli Ágústsson byrjaði
leikinn með einleiknum Hún pabbi,
sem sýndur var við góðan orðstír í
Borgarleikhúsinu á síðasta leikári.
Sýningin fjallar um samband Hann
esar Óla við pabba sinn sem gekkst
undir kynleiðréttingu kominn á
sextugsaldur. Áhorfendur slógust
síðan í ferð með kvenskörungnum
Guðríði Þorbjarnardóttur, leikin
af Þórunni Ernu Clausen, á ævin
týralegri leið hennar til fyrirheitna
landsins, Ameríku. Ólöf Arnalds
fyllti félagsheimilið með ljúfum
tónum með dyggri aðstoð Skúla
Sverrissonar þar sem angurværðin
réði ríkjum. Grínistinn Þorsteinn
Guðmundsson sló síðan botninn
í viðburðaríkan dag þar sem hann
skemmti áhorfendum konunglega
með gamansömum sögum af hvers
deginum.
Líflegur laugardagur
Börnin áttu sviðið á laugardags
eftirmiðdag en þrjár sýningar fyrir
fólk á öllum aldri byrjuðu þennan
lokadag hátíðarinnar. Íslenski fíll
inn ferðaðist alla leiðina frá brúðu
lofti Þjóðleikhússins til Suðureyrar
til þess að deila sinni reynslusögu.
Bernd Ogrodnik og Hildur M. Jóns
dóttir frömdu hetjudáð þegar fíls
kálfurinn Ayodele meiddist á ferð
sinni yfir Atlantshafið en snöggar
læknishendur komu honum aftur
upp á svið. Fjöllistamaðurinn Bas
ketball Jones sýndi sirkuslistir fyrir
gangandi vegfarendur við mikla
kæti. Greta Clough, forsprakki
norðlenska brúðuleikhússins
Handbendi, lokaði síðan barnadag
skránni með sinni túlkun á sögunni
um Búkollu en þar fengu litlu áhorf
endurnir tækifæri til að taka virkan
þátt í sýningunni.
Einleikir eru ekki einskorðaðir
við sviðið og sú staðreynd var sönn
uð þegar áhorfendur fengu tækifæri
til að hlusta á eitt af þremur útvarps
verkum á óvenjulegum stöðum.
Ausa Steinberg eftir Lee Hall og
Djúpið eftir Jón Atla Jónasson voru
spiluð í heimahúsum plássins en
Kvöldstund með Ódó eftir Ásdísi
Thoroddsen ómaði um þorpskirkj
una.
Félagsheimilið troðfylltist þegar
Sigurður Sigurjónsson steig á svið
í hlutverki sínu sem fúleggið Ove í
leikstjórn Bjarna Hauks Þórssonar.
Maður sem heitir Ove hefur gengið
fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu og
fleiri sýningar eru á dagskrá í haust.
Skáldið Kristín Eiríksdóttir var næst
á svið en hún las nýjustu ljóðabók
ina sína Kok, sem tilnefnd var til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
árið 2014, í heild sinni og af mikilli
list. Vonandi ekki í síðasta sinn því
lesturinn var kynngimagnaður.
Hinn landsþekkti tónlistarmaður
Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánson rifjaði
upp stef frá sínum áratugalanga
ferli og áhorfendur hikuðu ekki
við að taka undir lögin af miklum
krafti. Lokasýning hátíðarinnar var
dansverkið Vera eftir Unu Björgu
Bjarnadóttur en sviðsetningin var
vægast sagt eftirminnileg en hún
fór fram á grasbletti við hliðina á
félagsheimilinu. Tæknifólkið reisti
ljósabúnaðinn úti, stjórnborðinu
var skellt upp á næsta skúr og tón
listarkonan Sigrún Jónsdóttir spil
aði undir á meðan Una Björg framdi
sinn dans. Dansverkinu og hátíðinni
lauk síðan rétt eftir miðnætti við
mikið lófaklapp áhorfenda.
Fullt hús og framtíðin
Samkvæmt skipuleggjendum hátíð
arinnar var áhorfendamet slegið í ár
en óformleg talning gaf til kynna að
um 3.000 gestir hafi sótt viðburði á
Suðureyri um síðustu helgi. Á kvöld
sýningunum var iðulega fullt út úr
dyrum, stólapláss fullnýtt og ekki
óalgeng sjón að sjá fólk standa.
Skipuleggjendur Act Alone og þá
sérstaklega Elfar Logi Hannesson
eiga heiður skilið fyrir elju og ein
beittan vilja við að sinna sviðslistar
lífi á landsbyggðinni af þeim krafti
sem raun ber vitni. Vonandi sjá fleiri
sér fært að leggja land undir fót á
næsta ári og upplifa fjölbreyttar
sviðslistir í einstakri náttúrufegurð
Vestfjarða.
Fjölbreytt og spennandi einleikjahátíð í firðinum
Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins, skellti sér vestur til Suðureyrar við Súganda-
fjörð þar sem einleikjahátíðin Act Alone á heima. Sigríður segir frá því sem fyrir augu og eyru bar.
Eyrún Ósk Jónsdóttir, rithöfundur og leikari, les upp úr ljóðabók sinni Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa, á Act Alone hátíðinni. Mynd/ÁGúst AtLAson
Sigríður Jónsdóttir
skrifar
SAmStArFSyFirlýSing
ríkiSStJórnArFlokk-
AnnA vAr til umræðu og
benti kolbrún á Að liStir
heFðu orðið undir eFtir Að
Skilgreining málAFlokkSinS
um SkApAndi greinAr heFði
verið víkkuð út.
1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R50 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð
menning
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-8
4
0
4
1
D
7
F
-8
2
C
8
1
D
7
F
-8
1
8
C
1
D
7
F
-8
0
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K