Fréttablaðið - 17.08.2017, Síða 75

Fréttablaðið - 17.08.2017, Síða 75
2999 kr.kg Ungnautasteikur, sérmeyrnað, Írland - 25 % Verð áður 3999 kr. kg gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menn- ingarkorts Reykjavíkur. Hvað? Svarthol - Álfrún Helga Örn- ólfsdóttir Hvenær? 20.30 Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu Útskriftarverk Álfrúnar Helgu Örn- ólfsdóttir úr meistaranámi í sviðslist- um er leikritið Svarthol, sem verður leiklesið í Tjarnarbíói. Leikarar: Sól- veig Guðmundsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Höfundur: Álf- rún Helga Örnólfsdóttir. Hvað? Tilraunauppistand á BAR 11 Hvenær? 21.30 Hvar? Bar 11, Hverfisgötu Tilraunauppistönd eru uppistönd þar sem nýir grínistar fá tækifæri til að spreyta sig og þeir reyndari prófa nýtt efni og halda sér í formi. Uppi- stand, töfrabrögð, spuni, tónlistar- grín og öll möguleg grínform geta verið sýnd. Hvað? Blómstrandi dagar Hvenær? 14.00 Hvar? Hveragerði Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er árlega aðra helgi eftir verslunar- mannahelgi. Fjölbreytt dagskrá er í bænum fyrir alla fjölskylduna. Áhugaverðar listsýningar og fjöl- breyttir tónlistarviðburðir eru í bænum þessa daga ásamt heilsu- tengdum atriðum fyrir alla aldurs- hópa. Í ár eru tónleikar með Jónasi Sig. og ritvélum framtíðarinnar, Ágústa Eva syngur lögin hennar ömmu og hljómsveitin Made in sveitin leikur á blómaballinu. Ísdagurinn hjá Kjörís verður á sínum stað og brennan í Lystigarðinum þar sem Sóli Hólm mun leiða brekku- sönginn. Hvað? My House - Hrefna Lind Lárusdóttir Hvenær? 18.00 Hvar? Sólvallagata 41 Persónulegt, almennt, hversdagslegt konfettí, tragíkómískt útgáfupartý vinýlplötu og ferðalag um húsið. Hvað? Karókíkvöld Hvenær? 20.00 Hvar? Loft, Bankastræti María Oddný verður kynnir kvölds- ins. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 55F i m m T U D A g U R 1 7 . á g ú s T 2 0 1 7 Ævintýrapersónur íslenska hönn- unarfyrirtækisins Tulipop prýða forsíðu nýjasta tölublaðs alþjóð- lega tímaritsins Kidscreen sem kom út í vikunni. Í tölublaðinu er umfjöllun um þau teiknimynda- verkefni sem kynnt verða á sýn- ingunni Cartoon Forum sem haldin verður í Frakklandi í september nk. og var Tulipop valið úr hópi 83 verkefna til að prýða forsíðu blaðsins. Tímaritið Kidscreen er leiðandi á alþjóðavísu í umfjöllun um afþreyingariðnað fyrir krakka. Tulipop hóf á síðasta ári undir- búning að framleiðslu 52 þátta teiknimyndaseríu fyrir sjónvarp í samstarfi við reynslumikla aðila úr teiknimyndageiranum. Nú er í framleiðslu svokallaður pilot þáttur fyrir sjónvarpsseríuna. Tobi Wilson, einn helsti handritshöf- undur hinnar vinsælu þáttaraðar The Amazing World of Gumball, skrifar handritið, hið virta fram- leiðslufyrirtæki Blink Industries í London er meðframleiðandi, og verðlaunaðir leikstjórar, Simon Cartwright og Nina Gantz, leik- stýra. Auk þess að vinna að undirbún- ingi fyrir framleiðslu teiknimynda- seríu fyrir sjónvarp þá er Tulipop með í framleiðslu sérstaka teikni- myndaseríu til dreifingar á netinu, en eins og tilkynnt var fyrr á árinu réð Tulipop fyrirtækið Wildbrain, sem er leiðandi í framleiðslu afþreyingarefnis fyrir vefmiðla, til að framleiða tíu þátta teikni- myndaseríu og stýra YouTube-rás Tulipop á heimsvísu. Ævintýrapersónur Tulipop á forsíðu Kidscreen, tímarits um afþreyingu krakka Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir hjá Tulipop hafa átt góðu gengi að fagna. 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 7 F -7 A 2 4 1 D 7 F -7 8 E 8 1 D 7 F -7 7 A C 1 D 7 F -7 6 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.