Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 82

Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 82
Inspector clouseau – the pInk panther Þessi franska lögga úr The Pink Panther myndunum var alltaf að detta og rústa hlutum. Hann átti líka rosalega erfitt með að bera fram orð á ensku því að hann var með svo hrikalega mikinn franskan hreim. Clouseau kallinn hélt líka að hann væri gríðarlega fær í bar- dagalistum en hann var það í raun alls ekki. Hann var samt hátt settur rannsóknarlögreglumaður þrátt fyrir þetta allt og náði alveg að rann- saka þessi mál sín. Við skulum gefa honum 3 á vitleysinga-skalanum. Bestu vitleysingar hvíta tjaldsins Frank DreBIn – nakeD Gun Frank Drebin var rosalega svipaður Clouseau – lögga í hæstu röðum sem var alltaf að slasa sjálfa sig og aðra. Sérstaklega slasaði hann félaga sinn, Nordberg (leikinn af OJ Simpson), mjög oft. Já, og slasað fólk eða gamlar konur. Þær fengu að kenna á því. En eins og Clouseau kláraði Frank Drebin málið, fjandinn hafi það og var hálfgerð „action hero“ þegar best lét. Gefum honum 5 á skalanum okkar. ZoolanDer Módelið vitlausa átti erfitt með að tjá sig – hann var ekki með neitt áberandi góðan orðaforða og átti erfitt með að greina módelbygg- ingar frá alvöru byggingum. En hann þurfti ekki á því að halda – hann er módel og þarf ekki að vita neitt. Það eina sem hann þarf að geta er að vera fáránlega myndarlegur, setja upp góðan svip og ganga á tískupallinum. Við skulum smella 7 á Zoolander. harry Dunne oG lloyD chrIstmas – DumB anD DumBer Þessir samrýmdu félagar voru auðvitað algjörlega nautheimskir og með þroska á við svona 11 ára dreng. Þeir eru næstum því algjör- lega fullkomnir vitleysingar og þar að auki eru þeir frekar slæmar manneskjur – en þeir ná samt ein- hvern veginn að komast óskadd- aðir úr ferðalagi sínu til Aspen og því að verða fyrir barðinu á glæpa- mönnum. Harry og Lloyd fá 8. BrIck tamlanD – anchorman Þessi veðurmaður var gríðarlega vitlaus, það er eiginlega móðgandi hvað hann var vitlaus. Hvernig fékk hann þessa vinnu? Þetta er tía. ZoolanDer er svaka vItlaus en þarF svo sem ekkI að vIta neItt veranDI svona FáránleGa mynDarleGur. Inspector Jacques clouseau var hrakFalla- Bálkur oG vItleysInGur – en leystI líka málIn sem hann rannsakaðI. harry Dunne oG lloyD chrIstmas vIta náttúru- leGa ekkI krónu, eIGInleGa alveG FullkomnIr vItleys- InGar. Hvað er skemmtilegra en góðir vitleysingar í gamanmynd? Þeir gefa lífinu lit með heimskupörum sínum og það er svo þægilegt að vitna í alla þvæluna sem þeir hafa sagt í partíum. Lífið telur hér upp nokkra af þeim allra bestu sem allir ættu að muna eftir. 1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R62 l í F I ð ∙ F R É t t A B l A ð I ð 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 0 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 7 F -A 1 A 4 1 D 7 F -A 0 6 8 1 D 7 F -9 F 2 C 1 D 7 F -9 D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.