Fréttablaðið - 04.09.2017, Blaðsíða 4
BRATISLAVA
15. september í 4 nætur
Netverð á mann frá kr. 49.995 m.v. 2 í herbergi.Crowne Plaza Bratislava
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
Frá kr.
49.995
m/morgunmat
á flugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1
Heilbrigðismál Um 6.500 íbúar
á höfuðborgarsvæðinu hafa sagt
skilið við Heilsugæslu höfuðborgar
svæðisins (HH) á síðustu þremur
mánuðum og fært sig til einkarek
innar heilsugæslu á svæðinu með
tilheyrandi tekjuskerðingu fyrir
opinbera kerfið.
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborg
arsvæðisins segir þetta hafa mikil
áhrif á reksturinn hjá þeim og draga
þurfi saman seglin.
„Já, vissulega hefur þetta mjög
mikil áhrif á okkar rekstur. Fjár
mögnunarlíkan opinbera kerfisins
og einkareknu heilsugæslunnar
er nákvæmlega það sama og fjár
magn fylgir sjúklingi. Það er síðan
hverjum frjálst að velja þá heilsu
gæslu sem hann vill,“ segir Svanhvít
Jakobsdóttir, forstjóri HH.
Heilsugæslan rekur fimmtán
heilsugæslustöðvar víðsvegar á
höfuðborgarsvæðinu.
Um þrjátíu þúsund krónur fylgja
hverjum einasta skjólstæðingi til
heilsugæslunnar óháð því hvort
sjúklingur skrái sig á heilsugæslu
hjá hinu opinbera eða hjá einka
reknum stöðvum. Því hefur heilsu
gæslan misst um 195 milljónir
króna og þarf að haga seglum eftir
því.
Jónas Guðmundsson, fjármála
stjóri HH, segir það verkefni stofn
unarinnar að reksturinn taki mið af
þessum nýju aðstæðum.
Á einhverjum heilsugæslustöðv
um þurfi að draga saman seglin
og fækka starfsfólki. Hluti lækna
sem vinni nú á einkareknu heilsu
gæslustöðvunum hafi áður unnið
hjá HH og því hafi læknum fækkað
hjá þeim að undanförnu.
Guðjón Brjánsson, fulltrúi Sam
fylkingarinnar í velferðarnefnd
Alþingis, segir þetta geta haft mjög
neikvæð áhrif fyrir opinbera heil
brigðiskerfið. Hverjum sjúklingi sé
í sjálfsvald sett hvar hann skráir sig
til heimilislæknis.
„Við höfum séð dæmi þess í
Skandinavíu að opinberri heilsu
gæslu hafi verið lokað. Þetta gæti
haft neikvæð áhrif fyrir ákveðna
sjúklingahópa. Nú er hins vegar
opinberu heilsugæslunnar að sýna
það að hún getur veitt góða þjón
ustu til að keppa við þennan kúnna
hóp,“ segir Guðjón.
Markmið með þessum breyt
ingum er að gera heilsugæsluna að
fyrsta viðkomustað sjúklinga og
minnka þannig álag á Landspítal
ann sem og að allir einstaklingar
geti skráð sig til heimilislæknis.
sveinn@frettabladid.is
Hálft sjöunda þúsund yfirgefur
heilsugæslu fyrir einkastöðvar
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur misst 6.500 skjólstæðinga á síðustu mánuðum eftir að einka
reknar stöðvar tóku til starfa. Skjólstæðingarnir taka með sér um 200 milljóna króna framlag frá ríkinu.
Opinbera heilsugæslan þarf því að segja upp fólki. Mikil áhrif á reksturinn, segir forstjóri heilsugæslunnar.
Skjólstæðingar á biðstofunni í heilsugæslunni í Efstaleiti sem er ein 15 stöðva á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið/GVa
Fjármögnunarlíkan
opinbera kerfisins
og einkareknu heilsugæsl-
unnar er nákvæmlega það
sama og fjármagn
fylgir sjúklingi.
Svanhvít Jakobs-
dóttir, forstjóri
Heilsugæslu
höfuðborgar-
svæðisins
sAmgÖNgUr Rannsóknarnefnd
samgönguslysa (RNSA) leggur til að
innanríkisráðuneytið setji reglur
sem tryggi öryggi farþega um borð í
svokölluðum RIBslöngubátum. Er
það gert í ljósi tíðra slysa sem orðið
hafa á farþegum slíkra báta undan
farin ár.
Um miðjan síðasta mánuð skilaði
sjóslysasvið RNSA tveimur skýrslum
sem varða atvik á slíkum bátum.
Skýrslurnar voru birtar fyrir helgi.
Fyrra slysið var í september 2015
skammt frá Húsavík í Ömmu Kibbu
en báturinn er gerður út af Gentle
Giants – Hvalaferðum ehf. Báturinn
sigldi í kjölfar annars skips með
þeim afleiðingum að hann skall
niður. Farþegi kastaðist til og heyrði
hrygginn á sér brotna. Sá hefur verið
óvinnufær síðan þá.
Síðara slysið átti sér stað í maí
2016 um borð í bátnum Öldul
jóni sem er í eigu Ribsafari ehf. í
Vestmannaeyjum. Ölduhæð var
um 1,5 metrar og féll báturinn
niður í óvæntan öldudal, um þrjá
til fimm metra að sögn aðstoðar
skipstjóra, með þeim afleiðingum
að tveir farþegar fremst í bátnum
slösuðust. Annar farþeganna hlaut
brot í hryggjarlið og annar samfall
á hryggjarliðum.
Í báðum tilfellum er það mat
nefndarinnar að ástæða slysanna
hafi verið að bátunum hafi verið
siglt of hratt miðað við aðstæður.
Til að forða því að sambærileg
atvik eigi sér stað leggur RNSA til
að reglur verði settar um slík skip.
Þá er einnig lagt til að fjaðrandi sæti
verði tekin upp í frekari mæli. – jóe
Fjaðrandi sæti og reglur forði frekari hryggjarbrotum
Slys varð um borð í báti frá ribsafari í Eyjum. Fréttablaðið/ÓSKar FriðriKSSON
Farþegi kastaðist til og
heyrði hrygginn á sér brotna.
Sá hefur verið óvinnufær
síðan þá.
stjórNmál Björt framtíð vill að
brotaþoli njóti vafans í kynferðis
brotum, bæði í regluverkinu og
í framkvæmdinni. Þetta kemur
fram í stjórnmálaályktun ársfundar
flokksins sem fór fram um helgina.
„Það hefur alltaf staðið til hjá okkur
í Bjartri framtíð að taka fastar á
þessu,“ segir Nicole Leigh Mosty,
þingkona flokksins og varaformað
ur Allsherjar og menntamálanefnd
ar. Aðspurð um merkingu þessarar
ályktunar og hvort flokkurinn vilji
snúa við þeirri meginreglu að
maður skuli saklaus uns sekt hans
er sönnuð, segir Nicole að málefnið
hafi ekki verið ítarlega rætt á fund
inum. „Við náðum því miður ekki að
ræða þetta vel, við vorum að renna
út á tíma, segir Nicole Leigh Mosty,
en vísar til eldri ályktana flokksins
og stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
innar.
Í forgrunni ályktunar fundarins
eru þó málefni ráðuneytanna sem
flokkurinn fer með og er sérstak
lega lagt að ráðherrum flokksins að
hafa víðtækt samráð við hagsmuna
aðila og aðra stjórnmálaflokka við
undirbúning mála. Áhersla er lögð
á að ná sem mestri sátt um einstök
mál, í ljósi þess að ríkisstjórnin hafi
minnsta mögulega meirihluta. – aá
Björt framtíð vill að brotaþoli njóti
vafans í kynferðisbrotamálum
Nicole leigh Mosty, þingkona bjartrar framtíðar. Fréttablaðið/ErNir
stjórNsýslA Hanna Katrín Friðriks
dóttir, alþingismaður Viðreisnar,
vill að Ríkisendurskoðun rannsaki
aðkomu íslenska ríkisins að starf
semi verksmiðju United Silicon í
Helguvík. Hanna vill fá upplýsingar
um kostnað sem ríkið hefur lagt í
verkefnið og forsendur fyrir
umhverfismati.
Í fyrsta lagi vill Hanna fá upp
lýst hvaða ríkisstyrki fyrirtækið
hefur fengið í formi skattaívilnana,
í öðru lagi hvaða forsendur lágu að
baki umhverfismati og í þriðja lagi
hvernig eftirliti er háttað og hvort
ákveðið sé fyrir fram hve lengi aðil
ar fái að njóta vafans er upp koma
vandamál. – ebg
Vill rannnsókn
á United Silicon
Hanna Katrín
Friðriksdóttir
stjórNmál Halldór Auðar Svansson,
eini borgarfulltrúi Pírata í borgar
stjórn, gefur ekki kost á sér til áfram
haldandi setu í borgarstjórn eftir
kjörtímabilið.
„Á aðalfundi Pírata í Reykjavík til
kynnti ég nú rétt í þessu um erfiða
ákvörðun sem hefur verið lengi
í fæðingu,“ sagði Halldór í færslu
á Facebook í gær. Hann segist þó
munu starfa áfram í grasrót Pírata.
Þá eigi hann enn verk fyrir höndum
í borgarstjórn. „Stærsta verkefni mitt
verður að tryggja að kláruð verði
almenn lýðræðisstefna fyrir borg
ina,“ skrifar hann. – gar
Oddviti Pírata
ekki í framboð
4 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m á N U D A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-9
8
A
0
1
D
A
6
-9
7
6
4
1
D
A
6
-9
6
2
8
1
D
A
6
-9
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K