Fréttablaðið - 04.09.2017, Blaðsíða 13
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
Lesa bara FBL
66%
Lesa bæði
FBL OG MBL
23%
Lesa bara MBL
11%
Allt sem þú þarft ...
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup apr.-jún. 2017.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M Á n u D A G u R 4 . S e p T e M B e R 2 0 1 7
Í DAG
Guðmundur
Andri Thorsson
Það urðu tímamót nú um mánaðamótin þegar Umhverfisstofn-un tók þá ákvörðun að stöðva starfsemi kísiliðju United Silicon
í Helguvík. Í fyrsta sinn fær stóriðja
hér á landi ekki að hafa sína henti-
semi og stjórnvöld grípa í taum-
ana. Fram til þessa hafa íslensk
stjórnvöld verið heimsfræg fyrir
undirdánugheit við stóriðjuhölda
(„minimum red tape“). Kannski
er þetta ásamt öðru til vitnis um
að nú fari senn að ljúka kafla í
atvinnusögu Íslendinga – stóriðju-
kaflanum. Vonum það.
Fyrsti áfanginn
Þegar fyrsta skóflustungan var
tekin að kísiliðjunni fyrir þremur
árum var naumast þverfótað fyrir
silkihúfum með skóflur – ráðherrar
og sveitastjórnarmenn vildu allir
fá mynd af sér að moka kolum til
að knýja hjól atvinnulífsins. Allir
töluðu um hversu gríðarlega stórt
þetta yrði. Þannig sagði þáverandi
forsætisráðherra, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, meðal ann-
ars við blaðamenn:
„Þetta er auðvitað mjög gleði-
legur dagur því hér er verið að taka
skóflustungu að verksmiðju sem
stefnt er að því að verði sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum.
Þetta er líka fyrsti áfanginn í mjög
mikilli uppbyggingu um allt land
þannig að þetta er mjög gleðilegur
dagur.“
Þetta er að sönnu hrollvekjandi
ef rættist draumsýn ráðherrans um
svona „uppbyggingu um allt land“
– United Silicon verksmiðjur í
hverju holti með tilheyrandi brælu
og almennu heilsuleysi. Og hver
og ein auðvitað „sú stærsta sinnar
tegundar í heiminum“ eins og
skóflufólkið þrástagaðist á þennan
„gleðilega dag“. Eins og það væri
eftirsóknarvert markmið í sjálfu
sér að hafa stærsta kísilver í heimi
ofan í byggð.
Enginn af þessum ráðamönnum
virtist hugsa út í orkuþörfina
sem þessu fylgdi eða reikna með
öðru en öllum hugsanlegum en
ósamþykktum virkjunum til að
knýja herlegheitin. Enginn þeirra
virtist hugsa út í þá mengun sem
af muni hljótast; enginn virtist
sjá það fyrir að verksmiðjan færi í
þrot eftir þrjú ár. Og hefði á þeim
tíma skapað sér nafn fyrir athuga-
semdir Vinnueftirlitsins í 17 liðum
vegna aðstöðu starfsfólks, skort
á sérkjarasamningum, eldsvoða,
ógreidd lóðagjöld, vanskil við
verktaka og svo mikla mengun
að íbúar í grennd fundu til veru-
legra særinda í hálsi og annarra
óþæginda.
Var þó enn langt í land með að
náð yrði markmiðunum sem for-
sætisráðherrann var svo spenntur
fyrir: að verksmiðjan yrði stærst í
heimi; einungis er búið að byggja
einn ofn af fjórum áformuðum;
enn eru þarna bara 32 MW í stað
áformaðra 128 MW og verður
framleiðslugetan þá orðin 90.000
tonn; hætt við að íbúarnir fái þá
aldeilis að kynnast því hvernig er
að búa í 1,8 kílómetra fjarlægð við
slíka iðju. Síðan ætlar Thorsil að
reisa 110.000 tonna kísiliðjuver.
Samanlagt munu verin brenna um
300.000 tonnum af kolum á ári.
Kolum. Á Íslandi.
Í ósátt við náttúruna
Sú hugmynd að ausa slíku magni
af kísílryki í vitin á íbúum í 1,8
kílómetra fjarlægð er svo sannar-
lega „sú stærsta sinnar tegundar“;
einhvers konar atlaga að heims-
meti í frekju. Ekki ræður för
umhyggja fyrir fólki, svo mikið er
víst. Allt er þetta til marks um að
í huga íslenskra ráðamanna hefur
það löngum verið svo, að þegar
rekast á hagsmunir almennings og
hagsmunir stóriðju skuli stóriðjan
njóta vafans. Um hagsmuni náttúr-
unnar þarf ekki að fjölyrða. Margt
bendir raunar til þess að íslenskir
ráðamenn séu margir beinlínis
andvígir náttúrunni og telji það
sérstakt hlutverk sitt að stuðla að
því að framkvæmdir séu ævin-
lega gerðar í ósátt við náttúruna,
og helst þannig að hún hljóti
sem mestan skaða af. Annað sé
aumingjaskapur. Vera má að þetta
sé arfur hugsunarháttar þar sem sá
þykir mestur bóndi sem tekst að
beita fé sínu á sem mestan nýgræð-
ing, og þá helst á örfoka land.
Þetta kann að vera ýkjukennt
tal en breytir ekki hinu að margt
er enn á huldu um þetta ævin-
týralega kísilklúður. Guðmundur
Hörður Guðmundsson spyr ýmissa
áleitinna spurninga um þetta brölt
allt saman í grein í Stundinni frá
29. ágúst. Arion banki hefur að
miklu leyti fjármagnað þetta fram-
tak og lífeyrissjóðir hafa sett rúm-
lega tvo milljarða í þessa hít – og
í ljósi þessa fjárausturs úr sjóðum
almennings hljótum við að mega
vænta svara við að minnsta kosti
helstu spurningunum sem vaknað
hafa. Til dæmis: Hver á þetta?
Guðmundur Hörður spyr:
„Hverjir eru raunverulegir eigend-
ur USI Holding BV, huldufélags-
ins sem á stærstan hlut í United
Silicon, og hvers vegna fela þeir sig
í Hollandi, þekktu skattaskjóli?“
Hann spyr líka um það hver sé
eigandi Geysis Capital, félags sem á
lóðina í Helguvík, og hvort skattur
af leigu lóðarinnar hafi verið
greiddur hér á landi eða færður
í skjól gegnum hollenska félagið
USI Holding BV, sem er formlegur
eigandi að Geysi Capital.
Á íbúum Suðurnesja hafa dunið
margvísleg áföll á umliðnum ára-
tugum. Framsalskerfið á kvóta í
sjávarútvegi hefur leikið svæðið
grátt eins og aðrar sjávarbyggðir
hér á landi; herinn fór og skildi
eftir sig nokkra kakkalakka og
guð má vita hvaða rusl grafið í
jörðu; Sparisjóður Keflvíkinga var
tæmdur af miklum dugnaði – og
þannig mætti lengi telja. Lausnar-
orðið í þessu vandræðum var
jafnan eitt og aðeins eitt: stóriðja.
Nú er komið á daginn hvað í henni
felst: mengun, vondur aðbúnaður,
leiðindi og ljótleiki. En það dug-
mikla fólk sem þarna býr hefur
náð að koma undir sig fótunum
á ný þrátt fyrir öll þessi áföll. Og
hvað varð þeim til bjargar? „Eitt-
hvað annað“: Fólk sem hingað
flykkist til að upplifa fjöll og dali,
mela og klappir, vind og himin, eld
og haf; náttúruna sem ráðamenn-
irnir hafa hatast við svo lengi.
„Stærsta sinnar tegundar“
Gríðarlegt magn af einnota plasti er urðað eða endar í hafinu sem er mikið áhyggju-
efni. Samkvæmt könnun Náttúru-
verndarsamtaka Íslands á viðhorfi
almennings til ástands hafsins frá
2016 hafa 80 prósent Íslendinga
miklar áhyggjur af plastmengun í
hafinu, og er full ástæða til. Hafið er
matarkista okkar en virðist um leið
vera okkar ruslakista. Allir sjá að
það fer ekki saman. Plastlaus sept-
ember er árvekniátak sem hvetur
fólk til að draga úr notkun á einnota
plasti og bendir á leiðir til þess á vef-
síðu sinni og Facebook síðu.
Einnota plast er einungis notað
í nokkrar mínútur, rétt á meðan
drukkið er úr glasi eða borðað af
diski, svo fer það í ruslið, eða í besta
falli í endurvinnslu. Allt plast sem
einhvern tíma hefur verið framleitt
er þó enn til, það brotnar niður í
minni einingar en eyðist ekki. Sum
ríki hafa markað sér stefnu til að
minnka plastnotkun enda er um að
ræða vaxandi vandamál.
Við getum sjálf ákveðið að
minnka notkun á einnota plasti í
okkar daglega lífi. Við getum valið
vörur sem pakkað er í annars konar
umbúðir, sleppt rörum og lokum
þegar við kaupum drykki, farið
með eigin ílát í verslanir sem það
bjóða, keypt sápustykki í staðinn
fyrir brúsa, valið grænmeti sem
ekki er pakkað í plast. Áherslan er á
einnota plast, engin ástæða er til að
henda því plasti sem til er, reynum
að nota minna en endurnotum og
endurvinnum það plast sem fer um
hendur okkar. Fjölmörg ráð er að
finna á heimasíðunni plastlaussep-
tember.is
Plastlaus september hvetur okkur
til að kaupa minna af einnota plasti
í september. Við veljum verkefni
við hæfi og hvort við tökum þátt í
einn dag, eina viku, allan mánuðinn
eða til frambúðar. Öll skref í átt að
hreinni jörð eru mikilvæg skref
hversu stór sem þau eru.
Plastlaus september
Elsa Þórey
Eysteinsdóttir
líffræðingur, í
stjórn plastlauss
september
Enginn af þessum ráða-
mönnum virtist hugsa út
í orkuþörfina sem þessu
fylgdi eða reikna með öðru
en öllum hugsanlegum en
ósamþykktum virkjunum
til að knýja herlegheitin.
Enginn þeirra virtist hugsa
út í þá mengun sem af muni
hljótast; enginn virtist sjá
það fyrir að verksmiðjan færi
í þrot eftir þrjú ár.
Hafið er matarkista okkar
en virðist um leið vera okkar
ruslakista. Allir sjá að það fer
ekki saman.
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
6
-9
8
A
0
1
D
A
6
-9
7
6
4
1
D
A
6
-9
6
2
8
1
D
A
6
-9
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K