Fréttablaðið - 04.09.2017, Síða 13

Fréttablaðið - 04.09.2017, Síða 13
89% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. Lesa bara FBL 66% Lesa bæði FBL OG MBL 23% Lesa bara MBL 11% Allt sem þú þarft ... *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup apr.-jún. 2017. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M Á n u D A G u R 4 . S e p T e M B e R 2 0 1 7 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson Það urðu tímamót nú um mánaðamótin þegar Umhverfisstofn-un tók þá ákvörðun að stöðva starfsemi kísiliðju United Silicon í Helguvík. Í fyrsta sinn fær stóriðja hér á landi ekki að hafa sína henti- semi og stjórnvöld grípa í taum- ana. Fram til þessa hafa íslensk stjórnvöld verið heimsfræg fyrir undirdánugheit við stóriðjuhölda („minimum red tape“). Kannski er þetta ásamt öðru til vitnis um að nú fari senn að ljúka kafla í atvinnusögu Íslendinga – stóriðju- kaflanum. Vonum það. Fyrsti áfanginn Þegar fyrsta skóflustungan var tekin að kísiliðjunni fyrir þremur árum var naumast þverfótað fyrir silkihúfum með skóflur – ráðherrar og sveitastjórnarmenn vildu allir fá mynd af sér að moka kolum til að knýja hjól atvinnulífsins. Allir töluðu um hversu gríðarlega stórt þetta yrði. Þannig sagði þáverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, meðal ann- ars við blaðamenn: „Þetta er auðvitað mjög gleði- legur dagur því hér er verið að taka skóflustungu að verksmiðju sem stefnt er að því að verði sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Þetta er líka fyrsti áfanginn í mjög mikilli uppbyggingu um allt land þannig að þetta er mjög gleðilegur dagur.“ Þetta er að sönnu hrollvekjandi ef rættist draumsýn ráðherrans um svona „uppbyggingu um allt land“ – United Silicon verksmiðjur í hverju holti með tilheyrandi brælu og almennu heilsuleysi. Og hver og ein auðvitað „sú stærsta sinnar tegundar í heiminum“ eins og skóflufólkið þrástagaðist á þennan „gleðilega dag“. Eins og það væri eftirsóknarvert markmið í sjálfu sér að hafa stærsta kísilver í heimi ofan í byggð. Enginn af þessum ráðamönnum virtist hugsa út í orkuþörfina sem þessu fylgdi eða reikna með öðru en öllum hugsanlegum en ósamþykktum virkjunum til að knýja herlegheitin. Enginn þeirra virtist hugsa út í þá mengun sem af muni hljótast; enginn virtist sjá það fyrir að verksmiðjan færi í þrot eftir þrjú ár. Og hefði á þeim tíma skapað sér nafn fyrir athuga- semdir Vinnueftirlitsins í 17 liðum vegna aðstöðu starfsfólks, skort á sérkjarasamningum, eldsvoða, ógreidd lóðagjöld, vanskil við verktaka og svo mikla mengun að íbúar í grennd fundu til veru- legra særinda í hálsi og annarra óþæginda. Var þó enn langt í land með að náð yrði markmiðunum sem for- sætisráðherrann var svo spenntur fyrir: að verksmiðjan yrði stærst í heimi; einungis er búið að byggja einn ofn af fjórum áformuðum; enn eru þarna bara 32 MW í stað áformaðra 128 MW og verður framleiðslugetan þá orðin 90.000 tonn; hætt við að íbúarnir fái þá aldeilis að kynnast því hvernig er að búa í 1,8 kílómetra fjarlægð við slíka iðju. Síðan ætlar Thorsil að reisa 110.000 tonna kísiliðjuver. Samanlagt munu verin brenna um 300.000 tonnum af kolum á ári. Kolum. Á Íslandi. Í ósátt við náttúruna Sú hugmynd að ausa slíku magni af kísílryki í vitin á íbúum í 1,8 kílómetra fjarlægð er svo sannar- lega „sú stærsta sinnar tegundar“; einhvers konar atlaga að heims- meti í frekju. Ekki ræður för umhyggja fyrir fólki, svo mikið er víst. Allt er þetta til marks um að í huga íslenskra ráðamanna hefur það löngum verið svo, að þegar rekast á hagsmunir almennings og hagsmunir stóriðju skuli stóriðjan njóta vafans. Um hagsmuni náttúr- unnar þarf ekki að fjölyrða. Margt bendir raunar til þess að íslenskir ráðamenn séu margir beinlínis andvígir náttúrunni og telji það sérstakt hlutverk sitt að stuðla að því að framkvæmdir séu ævin- lega gerðar í ósátt við náttúruna, og helst þannig að hún hljóti sem mestan skaða af. Annað sé aumingjaskapur. Vera má að þetta sé arfur hugsunarháttar þar sem sá þykir mestur bóndi sem tekst að beita fé sínu á sem mestan nýgræð- ing, og þá helst á örfoka land. Þetta kann að vera ýkjukennt tal en breytir ekki hinu að margt er enn á huldu um þetta ævin- týralega kísilklúður. Guðmundur Hörður Guðmundsson spyr ýmissa áleitinna spurninga um þetta brölt allt saman í grein í Stundinni frá 29. ágúst. Arion banki hefur að miklu leyti fjármagnað þetta fram- tak og lífeyrissjóðir hafa sett rúm- lega tvo milljarða í þessa hít – og í ljósi þessa fjárausturs úr sjóðum almennings hljótum við að mega vænta svara við að minnsta kosti helstu spurningunum sem vaknað hafa. Til dæmis: Hver á þetta? Guðmundur Hörður spyr: „Hverjir eru raunverulegir eigend- ur USI Holding BV, huldufélags- ins sem á stærstan hlut í United Silicon, og hvers vegna fela þeir sig í Hollandi, þekktu skattaskjóli?“ Hann spyr líka um það hver sé eigandi Geysis Capital, félags sem á lóðina í Helguvík, og hvort skattur af leigu lóðarinnar hafi verið greiddur hér á landi eða færður í skjól gegnum hollenska félagið USI Holding BV, sem er formlegur eigandi að Geysi Capital. Á íbúum Suðurnesja hafa dunið margvísleg áföll á umliðnum ára- tugum. Framsalskerfið á kvóta í sjávarútvegi hefur leikið svæðið grátt eins og aðrar sjávarbyggðir hér á landi; herinn fór og skildi eftir sig nokkra kakkalakka og guð má vita hvaða rusl grafið í jörðu; Sparisjóður Keflvíkinga var tæmdur af miklum dugnaði – og þannig mætti lengi telja. Lausnar- orðið í þessu vandræðum var jafnan eitt og aðeins eitt: stóriðja. Nú er komið á daginn hvað í henni felst: mengun, vondur aðbúnaður, leiðindi og ljótleiki. En það dug- mikla fólk sem þarna býr hefur náð að koma undir sig fótunum á ný þrátt fyrir öll þessi áföll. Og hvað varð þeim til bjargar? „Eitt- hvað annað“: Fólk sem hingað flykkist til að upplifa fjöll og dali, mela og klappir, vind og himin, eld og haf; náttúruna sem ráðamenn- irnir hafa hatast við svo lengi. „Stærsta sinnar tegundar“ Gríðarlegt magn af einnota plasti er urðað eða endar í hafinu sem er mikið áhyggju- efni. Samkvæmt könnun Náttúru- verndarsamtaka Íslands á viðhorfi almennings til ástands hafsins frá 2016 hafa 80 prósent Íslendinga miklar áhyggjur af plastmengun í hafinu, og er full ástæða til. Hafið er matarkista okkar en virðist um leið vera okkar ruslakista. Allir sjá að það fer ekki saman. Plastlaus sept- ember er árvekniátak sem hvetur fólk til að draga úr notkun á einnota plasti og bendir á leiðir til þess á vef- síðu sinni og Facebook síðu. Einnota plast er einungis notað í nokkrar mínútur, rétt á meðan drukkið er úr glasi eða borðað af diski, svo fer það í ruslið, eða í besta falli í endurvinnslu. Allt plast sem einhvern tíma hefur verið framleitt er þó enn til, það brotnar niður í minni einingar en eyðist ekki. Sum ríki hafa markað sér stefnu til að minnka plastnotkun enda er um að ræða vaxandi vandamál. Við getum sjálf ákveðið að minnka notkun á einnota plasti í okkar daglega lífi. Við getum valið vörur sem pakkað er í annars konar umbúðir, sleppt rörum og lokum þegar við kaupum drykki, farið með eigin ílát í verslanir sem það bjóða, keypt sápustykki í staðinn fyrir brúsa, valið grænmeti sem ekki er pakkað í plast. Áherslan er á einnota plast, engin ástæða er til að henda því plasti sem til er, reynum að nota minna en endurnotum og endurvinnum það plast sem fer um hendur okkar. Fjölmörg ráð er að finna á heimasíðunni plastlaussep- tember.is Plastlaus september hvetur okkur til að kaupa minna af einnota plasti í september. Við veljum verkefni við hæfi og hvort við tökum þátt í einn dag, eina viku, allan mánuðinn eða til frambúðar. Öll skref í átt að hreinni jörð eru mikilvæg skref hversu stór sem þau eru. Plastlaus september Elsa Þórey Eysteinsdóttir líffræðingur, í stjórn plastlauss september Enginn af þessum ráða- mönnum virtist hugsa út í orkuþörfina sem þessu fylgdi eða reikna með öðru en öllum hugsanlegum en ósamþykktum virkjunum til að knýja herlegheitin. Enginn þeirra virtist hugsa út í þá mengun sem af muni hljótast; enginn virtist sjá það fyrir að verksmiðjan færi í þrot eftir þrjú ár. Hafið er matarkista okkar en virðist um leið vera okkar ruslakista. Allir sjá að það fer ekki saman. 0 4 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D A 6 -9 8 A 0 1 D A 6 -9 7 6 4 1 D A 6 -9 6 2 8 1 D A 6 -9 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.