Fréttablaðið - 04.09.2017, Side 10

Fréttablaðið - 04.09.2017, Side 10
100.000 kr. inneign hjá Hólf & Gólf? Vinnur þú Taktu mynd af rými sem þarfnast yfirhalningar, hvort sem það er baðherbergi, stofa, eldhús eða annað. Settu myndina á Instagram og merktu: #bykotrend Föstudaginn 22. september verður heppinn vinningshafi dreginn úr pottinum. Svana Lovísa Kristjánsdóttir hjá Svart á hvítu verður gestadómari og verður hægt að fylg jast með leiknum á www.trendnet.is /svartahvitu/ á facebook síðu BYKO og Instagram. Snapchat: svartahvitu NÝTT BLAÐ HÓLF OG GÓLF BREIDD #bykotrend SAMGÖNGUR Öryggismönnun á skipum sem annast farþegaflutn- inga hérlendis er undir lágmarki og þörf á að grípa til aðgerða til að bregðast við stöðunni. Af þeim sökum hefur Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) lagt til við Samgöngustofu að forsendur þess efnis verði endurskoðaðar. Tilefni tillögunnar er atvik sem átti sér stað í ágúst í fyrra um borð í hvalaskoðunarbátnum Hauki, sem gerður er út af Norðursiglingu á Húsavík. Þrjátíu og þrír farþegar voru um borð en aðeins tveir skip- verjar. Afgasrör bátsins fór í sundur og við það fylltist vélarrúm bátsins af reyk. Björgunarsveitir voru kall- aðar út en báturinn náði að sigla klakklaust aftur til hafnar. Skipstjóri bátsins var jafnframt vélstjóri hans og kemur fram í skýrslu RNSA um atvikið að hann telur mönnun vera ábótavant. RNSA tekur undir þau sjónarmið og beinir tilmælum til Samgöngustofu að tryggja mönnun á farþegaskipum. Annarri skýrslu um atvik á sama báti var einnig skilað í síðasta mán- uði. Þá hafi hann tekið niðri á skeri við Lundey. Högg kom á skipið en ekki varð vart við leka. Orsök slyss- ins var óvarleg sigling skipstjóra og beinir nefndin þeim tilmælum til útgerðarinnar að skipstjórum verði gert skylt að sigla eftir fyrir fram merktum og öruggum siglinga- leiðum til að tryggja öryggi. – jóe Eldur í hvalaskoðunarbáti sem áður steytti á skeri Útgerð Hauks á einnig bátana Knörrinn og Fjald. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓNAS EMILSSON NORÐUR-KÓREA Yfirvöld í Norður- Kóreu sprengdu í gær vetnis- sprengju og var hún sú öflugasta sem ríkið hefur sprengt hingað til. Tæpt ár er liðið frá síðustu kjarn- orkutilraun ríkisins. Síðla laugardagskvölds, að íslenskum tíma, tilkynntu norður- kóresk stjórnvöld að þau hefðu smíðað háþróaða vetnissprengju. Sprengjan var síðan sprengd neðan- jarðar í norðurhluta landsins nokkr- um tímum síðar. Talið er að kraftur sprengjunnar hafi verið á bilinu fimmtíu til hundrað kílótonn. Til samanburðar var sprengjan sem varpað var á Hiroshima fimmtán kílótonn. Stærsta sprengja sem Norður-Kórea hafði sprengt hingað til var rúm fimmtán kílótonn. Þetta er fyrsta slíka tilraunin sem Norður-Kórea gerir frá því að Donald Trump kom sér fyrir í Hvíta húsinu. Talið er ljóst að henni hafi verið ætlað að senda skýr skilaboð til Bandaríkjanna. Klukkustundum áður en hún sprakk hafði Trump rætt símleiðis við japanska starfs- bróður sinn, Shinzo Abe. Á undan- förnum vikum og mánuðum hafði aukið púður verið sett í eldflaugatil- raunir norðurríkisins. Kim Jong-un hefur fullyrt að þess sé ekki langt að bíða að ríki sitt verði fært um að flytja kjarnorkuvopn með slíkum flaugum. „Bandaríkin íhuga nú, í bland við aðrar mögulegar aðgerðir, að hætta öllum viðskiptum við ríki sem skipta við Norður-Kóreu,“ tísti Donald Trump í gær vegna tilraun- arinnar. Líkt og við var að búast fór hann mikinn á samskiptamiðlinum. Sagði hann meðal annars að landið væri mikil ógn við öryggi Banda- ríkjanna, niðurlægjandi fyrir Kína og að norðurkóresk yfirvöld „skildu aðeins einn hlut“. Varnarmálaráðherra landsins bætti um betur og sagði að öllum hótunum gegn Bandaríkjunum eða bandamönnum þeirra yrði svarað með „massífum hernaðaraðgerð- um“. „Rússland er enn sannfært um að unnt sé að leysa stöðuna á Kóreu- skaganum með samræðum deiluað- ila,“ segir aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands Sergei Ryabkov. Hann segir enn fremur að Rússar for- dæmi tilraunirnar en ótímabært sé að ræða frekari þvingunaraðgerðir gegn ríkinu. Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, kallaði eftir hörðustu mögulegu aðgerðum sem í boði eru. Þar á meðal var ákall þess efnis að örygg- isráð SÞ gripi til aðgerða með það að markmiði að einangra landið alger- lega. Þjóðaröryggisráð Suður-Kóreu var kallað saman vegna atviksins og viðbúnaðarstig hersins hækkað. Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, kallaði eftir því að öryggis- ráðið kæmi saman vegna málsins. Þá sagði Theresa May, forsætisráð- herra Bretlands, tilraunir Norður- Kóreu „kærulausar“ og að þær væru óásættanleg ógn gegn stöðugleika alþjóðasamfélagsins. johannoli@frettabladid.is Langöflugasta sprengja Norður-Kóreu til þessa Stjórnvöld í Pyongyang sprengdu í gær vetnissprengju. Vopnið er þróaðra og öflugra en talið var að ríkið byggi yfir. Leiðtogar stærstu ríkja heims fordæma árásina. Flestir kalla eftir hertum þvingunaraðgerðum vegna tilraunarinnar. Kim Jong-un sést hér standa vígreifur ásamt samstarfsmönnum sínum yfir vopninu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Margfalt öflugri en síðasta sprengja Vetnissprengjan sem sprakk í gær var mun öflugra og fágaðra vopn en talið var að Norður-Kórea hefði í fórum sínum. Þá er gerð hennar talsvert flóknari en klass- ískrar kjarnorkusprengju. Venjulegar kjarnorkusprengjur eru knúnar áfram af kjarnaklofn- un. Í vetnissprengjum á kjarna- samruni, líkt og við þekkjum úr stjörnum, sér hins vegar stað. Smíði slíkra vopna er flóknari en þær á móti mun hættulegri hafi ríki náð tökum á smíðinni. Eyðilegging á mannvirkjum er minni en af venjulegri kjarnorku- sprengju en áhrif á lífverur eru öllu meiri. Rússar, Frakkar, Banda- ríkin, Bretar og Kínverjar búa yfir vetnissprengjum í vopnabúri sínu. Sprengjunni í gær fylgdi jarð- skjálfti 6,3 að styrk. Fannst hann meðal annars í Kína. Skjálftinn í kjölfar tilraunarinnar þann 9. september í fyrra mældist 5,3 að styrk. JAPAN Makó prinsessa, elsta barna- barn Akihito Japanskeisara, hefur trúlofast lögfræðingi sem ekki er af aðalsættum. Trúlofunin þýðir að hún mun afsala sér öllum keisara- legum réttindum. Í japönskum lögum er áskilið að fólk úr keisarafjölskyldunni verði að giftast fólki af sambærilegri stétt eða ella njóta sömu réttinda og pöpullinn. Verðandi eiginmað- ur Mako er lögfræðingurinn Kai Kamuro. Þau kynntust er þau voru í námi samtímis í Tokyo. Hávær orðrómur er uppi þess efnis að keisarinn Akihito muni láta af embætti á komandi mánuðum en hann er á níræðisaldri og orðinn heilsuveill. Óvissa ríkir um framtíð jap- önsku keisaraættarinnar en Makó er aðeins eitt fjögurra barnabarna keisarans. Ákveði hin þrjú einnig að gifta frá sér erfðaréttinn er við- búið að ætt keisarans, sem unnt er að rekja aftur til ára fyrir Kristsburð, lognist út af. Hingað til hefur tignin aðeins erfst í karllegg en umræða hefur verið uppi í landinu um að leyfa kvenkyns keisara eða leggja embætti keisara alfarið niður. – jóe Japönsk prinsessa lofast almúgamanni Mako og Kei á blaðamannafundi þar sem þau tilkynntu trúlofun sína. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 4 . S E P t E M b E R 2 0 1 7 M Á N U D A G U R10 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A Ð i Ð 0 4 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 6 -B B 3 0 1 D A 6 -B 9 F 4 1 D A 6 -B 8 B 8 1 D A 6 -B 7 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.