Fréttablaðið - 04.09.2017, Side 43

Fréttablaðið - 04.09.2017, Side 43
gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is VAKÚMVÉLAR Mikið úrval af vakúmvélum sem henta einstaklingum og fyrirtækjum PÖKKUNARVÉLAR - BRETTAVAFNINGSVÉLAR - BINDIVÉLAR BAKKALOKUNARVÉLAR - FLÆÐIPÖKKUNARVÉLAR FILMUPÖKKUNARVÉLAR - KASSALOKUNARVÉLAR FÁÐU TILBOÐ Full búð af nýjum vörum! Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34 Síðan 1918 Hágæða amerísk heilsurúm sem auðvelt er að elska Sofðu rótt í alla nótt sögulegt hjá birgi leifi ágætis spilamennska Birgir Leifur Hafþórsson gerði sér lítið fyrir og vann Opna Corden- mótið sem er hluti af Áskorenda- mótaröðinni í golfi. Mótið fór fram í Frakklandi. Þetta var fyrsti sigur Birgis Leifs á atvinnumóti erlendis á ferlinum. Birgir Leifur lék einkar vel á fyrstu þremur hringjunum og var með sjö högga forystu fyrir loka- hringinn. Hann var þó felldur niður vegna úrkomu og því stóð Birgir Leifur uppi sem sigurvegari. Hann setti mótsmet þrátt fyrir að hafa ekki leikið nema 54 holur. Hann lék þær á samtals 18 höggum undir pari. „Ég lagði mikið púður í árið, að koma mér á beinu brautina. Lagði meiri áherslu á að vera meira í golfi og elta allar keppnir sem ég komst inn í og undirbúningstíma- bilið var miklu strangara hjá mér en síðustu ár vegna þess að ég var þá meira í vinnu og annað. Tók smá áhættu í ár og hún er sannar- lega að ganga upp,“ sagði Birgir Leifur í samtali við íþróttadeild í gær. Fyrir sigurinn á mótinu fékk hann 4,3 milljónir króna í sinn hlut. Skagamaðurinn á enn mögu- leika á að komast inn á Evrópu- mótaröðina sem hann lék á ár- unum 2007-09. „Ég fæ núna stóru mótin í lok árs þannig að ég þarf að setjast aðeins niður og skipu- leggja lok tímabilsins. Ég er gríðar- lega spenntur fyrir þessu.“ – iþs Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék lokahringinn á Cambia Portland Classic-mótinu á pari. Mótið, sem er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi, fór fram á Columbia Edgewater golfvallarins í Portland. Fyrir lokahringinn var Ólafía á fimm höggum undir pari og í 32. sæti. Hún hefur því eflaust gælt við að komast í hóp 30 efstu kylfinga á lokadegi mótsins. Ólafía fór fyrstu fjórar holurnar á lokahringnum í gær en fékk svo skolla á 5. holu. Hún rétti sig af með tveimur fuglum í röð og fékk svo 10 pör á síðustu 11 holunum. Alls fékk Ólafía 14 pör á hringnum í gær, tvo fugla og tvo skolla. Afar stöðug spilamennska hjá henni. Ólafía lék hringina fjóra á samtals fimm höggum undir pari. Þegar blaðið fór í prentun var hún í 39. sæti. Enn áttu nokkrir kylfingar eftir að ljúka leik. Ólafía hefur nú keppt á 18 mótum á LPGA-mótaröðinni í ár en hún er sem kunnugt er eini Íslendingurinn sem hefur unnið sér þátttökurétt á þessari sterkustu mótaröð heims. Ólafía hefur komist í gegnum niðurskurðinn á átta af 18 mótum sem hún hefur keppt á í ár. Besti árangur hennar er 13. sæti á Opna skoska meistaramótinu sem fór fram í lok júlí. Ólafía keppist nú við að vera meðal 100 efstu á stigalista LPGA- mótaraðarinnar. Þeir 100 kylfingar sem verða efstir á stigalistanum í lok tímabilsins fá fullan þátttöku- rétt á LPGA-mótaröðinni á næsta ári. Samkvæmt heimasíðu LPGA verður Ólafía í 101. sæti stigalistans eftir mótið í Portland en það gæti þó breyst. – iþs Birgir Leifur Hafþórsson með verðlaunagripinn. mynd/cHaLLenge tour Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fh sótti sigur til prag FH gerði góða ferð til Prag og vann þriggja marka sigur á hinu forn- fræga liði Dukla Prag, 27-30, í fyrri leik liðanna í 1. umferð EHF-bikars- ins í handbolta í gær. Sigurinn var öruggari en loka- tölurnar gefa til kynna því FH- ingar náðu mest níu marka forskoti í seinni hálfleik. Tékkarnir náðu hins vegar að laga stöðuna undir lok leiks og halda sér á lífi í einvíginu. Óðinn Þór Ríkharðs- son var marka- hæstur í liði FH með níu mörk. Einar Rafn Eiðsson skoraði sex mörk, Ísak Rafnsson 5 og Ásbjörn Friðriksson fjögur. Þorgeir Björnsson, Arnar Freyr Ársælsson og Ágúst Birgisson voru allir með tvö mörk. Seinni leikur FH og Dukla Prag fer fram í Kaplakrika á laugar- daginn. Sama dag mætir Afturelding norska liðinu Bækkelaget á útivelli í seinni leik liðanna í 1. umferð for- keppni EHF-bikarsins. Fyrri leikurinn fór fram í Mos- fellsbænum á laugardagskvöldið. Bækkelaget vann nauman sigur, 25- 26, eftir að Afturelding hafði verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12. Örvhentu skytturnar Birkir Benedikts- son og Ernir Hrafn Arnarson voru at- kvæðamestar í liði Aftureldingar. Birkir skoraði sjö mörk og Ernir Hrafn sex. Mikk Pinnonen skilaði fimm mörkum. – iþs Strákarnir slógu feilnótu í Finn landi Ísland þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir Finnlandi í Tampere í undankeppni HM á laugardaginn. Íslenska liðið datt fyrir vikið niður í 3. sæti I-riðils og þarf því nauðsynlega að vinna Úkraínu þegar liðin mætast á morgun. Reynir Leósson var ekki sáttur með byrjunarliðið gegn Finnum. gylfi Þór Sigurðsson var að vonum sár og svekktur þegar hann gekk af velli eftir 1-0 tap íslenska landsliðsins gegn því finnska á laugardaginn. Ísland þarf núna nauðsyn lega að vinna Úkraínu. FréttaBLaðið/ernir eftir á en mér fannst uppstillingin ekki virka.“ Alfreð átti ekki góðan leik gegn Finnum, gekk bölvanlega að halda boltanum og missti hann alltof oft. Það ber þó að nefna að Alfreð fékk litla vernd frá slökum tékkneskum dómara. Hann fékk olnbogaskot í fyrri hálfleik og þá slapp Robin Lod með gult spjald þegar hann fór með takkana í legginn á Alfreð alfreð hentar ekki einn frammi „Alfreð myndi held ég blómstra með annaðhvort Jóni Daða eða Birni Bergmann. Í okkar leikstíl finnst mér hann ekki henta einn uppi á topp,“ sagði Reynir. „Þótt Gylfi hafi verið með honum þarna er hvorugur þeirra þannig leikmaður að þeir séu góðir í því að fá lengri sendingar eða vinna mikið með mann í bakinu. Við viljum að Gylfi snúi fram þegar hann fær boltann. Hann er okkar langbesti leikmaður og það er lykilatriði að hann fái boltann sem oftast.“ risaleikur annað kvöld Eftir úrslitin í I-riðli um helgina er ljóst að toppsætið er nánast runnið Íslandi úr greipum. Íslendingar eru sem stendur einu stigi á eftir Úkraínumönnum sem sitja í 2. sætinu en þessi lið mætast í gríðarlega mikilvægum leik á Laug- ardalsvellinum annað kvöld. „Núna er stefnan sett á 2. sætið. Þetta er risaleikur. Ég átti ekkert endilega von á því að Ísland myndi berjast um HM-sæti eftir frábært EM. Maður hélt að þynnkan kæmi. En strákarnir hafa spilað ótrúlega vel í þessari keppni og það er stutt í að ná í þetta 2. sæti,“ sagði Reynir að lokum. ingvithor@365.is Óðinn Þór ríkharðsson, leikmaður FH 0 4 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 6 -9 3 B 0 1 D A 6 -9 2 7 4 1 D A 6 -9 1 3 8 1 D A 6 -8 F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.