Fréttablaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 3 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 2 . s e p t e M b e r 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Þórlindur Kjartansson
skrifar um gott og vont íhald. 12
sport Tólf söguleg
skref á ferli Ólafíu
Þórunnar. 16
Menning Leikritið Óvinur
fólksins eftir Ibsen verður frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. 24
lÍFið Hin goðsagnakennda
hljómsveit Foreigner er á leið til
landsins. 34
plús 2 sérblöð l Fólk
l þjónusta við aldraða
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
bæklingur fylgir
Fréttablaðinu í dag.
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
Þú ferð lengra með
SAGAPRO
Vinsæl vara við tíðum þvaglátum
HeilbrigðisMál „Við höfum sérstakar
áhyggjur af þessu,“ segir Magnús
Jóhannsson, læknir hjá Landlæknis-
embættinu og prófessor í lyfjafræði,
um mikla aukningu í notkun svefn-
lyfsins melatóníns hjá börnum á
undanförnum árum. Algengt er að
börnum með ADHD sé gefið lyfið
fyrir svefn. Aldrei hafa fleiri börn
fengið ávísað melatóníni en í fyrra og
hefur fjöldinn margfaldast frá árinu
2008.
Líkt og í Evrópu er melatónín
flokkað sem lyf hér á landi sem
bannað er að flytja inn en um er að
ræða náttúrulegt hormón sem hefur
svæfandi áhrif og eykur svefnhneigð.
Ekki fara þó allir í gegnum lækna og
fá því ávísað. Í Bandaríkjunum er
lyfið flokkað sem fæðubótarefni og
auðvelt að panta það í gegnum net-
verslanir.
Mörg dæmi eru um að foreldrar
barna með ADHD hér á landi nálgist
melatónín fyrir börn sín með því að
panta það frá Bandaríkjunum. Einn-
ig hefur verið hægt að kaupa lyfið á
svörtum markaði íslenskra sölusíðna
á Facebook.
Magnús segir aukna notkun gefa
vísbendingar um að í einhverjum
tilfellum séu börn að fá of stóra
skammta af örvandi lyfjum eða á
röngum tíma sólarhrings. „Okkur
grunar að í sumum tilfellum sé verið
að slá á aukaverkanir örvandi lyfja
eða vegna ofskömmtunar.“
Þó læknar ávísi lyfinu vissulega til
barna ítrekar Magnús að það sé ekki
ætlað fólki yngra en 55 ára.
„Lyfjastofnun Evrópu miðar við 55
ára og eldri því það vantar almenni-
legar rannsóknir á yngra fólki,“ segir
Magnús og bendir á að komið hafi
fram áhyggjur um að það geti meðal
annars haft áhrif á kynþroska barna
og hormónabúskap.
Melatónín er markaðssett sem
náttúrulegt og skaðlaust fæðubótar-
efni vestanhafs en Magnús bendir
á að líkaminn framleiði alls konar
hormóna sem eru síður en svo mein-
lausir í miklu magni. „Það er ekki allt
náttúrulegt meinlaust.“ – smj
Braskað með svefnlyf fyrir ofvirk börn
Sprenging hefur orðið í
bæði ávísunum lækna á
svefnlyfið melatónín til
barna sem og ólöglegum
póstsendingum.
Magnús Jóhanns-
son, læknir hjá
embætti Land-
læknis og prófess-
or í lyfjafræði.
dóMsMál Óvissa ríkir enn um með-
ferð mála sem tengjast brotum gegn
skattalögum eftir dóm Hæstaréttar í
gær í máli manns sem sakfelldur var
fyrir meiriháttar brot gegn skatta-
lögum. Dómurinn verður líklega
kærður til Mannréttindadómstóls
Evrópu (MDE).
„Ég á eftir að kafa ofan í dóminn
og melta þær röksemdir sem tíndar
eru til en fljótt á litið sýnist mér að
þetta eigi fullt erindi til Mannrétt-
indadómstólsins,“ segir Ragnar H.
Hall, verjandi í málinu.
Niðurstöðu málsins, sem er að
mörgu leyti ekki afdráttarlaus, hafði
verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu en sjö dómarar dæmdu í
málinu. Rekstur yfir hundrað mála
hjá skattayfirvöldum og saksóknara-
embættum beið niðurstöðu Hæsta-
réttar. – jóe / sjá síðu 4
Íhugar að kæra
dóminn til MDE
Kylfingar í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) léku í gærkvöldi með sjálflýsandi boltum, mættu með höfuðljós og lýstu upp haustmyrkrið með leiftrandi golfi. FréttabLaðið/Eyþór
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
0
-2
C
A
4
1
D
D
0
-2
B
6
8
1
D
D
0
-2
A
2
C
1
D
D
0
-2
8
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K