Fréttablaðið - 22.09.2017, Síða 4
ÚTGÁFUHÓF
í dag, 22. sept. kl. 17:00
í Pennanum Eymundsson, Austurstræti.
Stefán Sturla les upp úr
nýrri spennusögu sinni,
spjallar við gesti og áritar
bækur með glöðu geði.
ALLIR VELKOMNIR
heilbrigðismál Engin dagþjálfun
fyrir heilabilaða einstaklinga er
starfrækt í Garðabæ en það úrræði
er fyrir hendi í öllum sveitarfélögum
höfuðborgarsvæðisins, auk Reykja-
nesbæjar, Akureyrar og Árborgar.
Jón Snædal, yfirlæknir öldrunar-
lækninga á Landspítala, telur mikil-
vægt að það úrræði sé fyrir hendi í
Garðabæ fyrir skjólstæðinga þeirra
í því sveitarfélagi.
Um þrjátíu einstaklingar í Garða-
bæ með heilabilun þurfa á úrræðinu
að halda að mati Jóns. Tólf sjúkl-
ingar hafa fengið þessa dagþjálfun í
Hafnarfirði upp á síðkastið en átján
eru á biðlista.
Þeir staðir þar sem boðið er upp
á dagþjálfun eru skilgreindir sem
heilbrigðisstofnanir og eru reknir
á daggjöldum frá Tryggingastofnun
ríkisins. „Það er okkar von að bæjar-
stjórn Garðabæjar beiti sér fyrir því
að opnuð verði þjónusta af þessu
tagi í sveitarfélaginu,“ segir Jón.
„Um þrjátíu manns þurfa á þessu
að halda í Garðabæ og meirihluti
þeirra er enn bíðandi heima,“ bætir
Jón við. „Það er okkar niðurstaða að
lífsgæði þessa fólks verði almennt
betri við þessa þjálfun og hitt er að
það er alveg ljóst að það seinkar
hjúkrunarheimilisvist og fækkar
þeim sem þurfa að liggja á Land-
spítala í bið eftir hjúkrunarheimili
sem eru dýrari úrræði en dagþjálf-
un. Lýðfræðin segir okkur einnig
að fleiri þurfi á þessari þjónustu að
halda og þar sem verið er að byggja
á lóðum fyrir eldra fólk er hætta á
að einstaklingum á þessu svæði með
sjúkdóma af þessu tagi fjölgi.“
Málið var tekið fyrir í bæjarráði
Garðabæjar í byrjun síðustu viku.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður
bæjarráðs, segir bæjarfélagið ætla að
skoða málið og finna hentugt hús-
næði fyrir þessa starfsemi. Þörf sé
á úrlausn fyrir þetta fólk og málið
því í vinnslu innan bæjarkerfis-
ins. „Okkur barst þetta bréf og við
ákváðum að skoða þetta mál og
finna húsnæði.“
Bæjarráð vísaði bréfinu til
umfjöllunar fjölskylduráðs og
nefndar um málefni eldri borgara í
sveitarfélaginu. – sa
Heilabilaðir í Garðabæ þurfa að bíða heima og fá ekki dagþjálfun
Áslaug Hulda
Jónsdóttir, forseti
bæjarstjórnar
Garðabæjar.
stjórnsýsla „Ég vil ítreka að með-
mælin voru eingöngu vinnutengd.
Uppreist æru kom aldrei til tals,“
segir Haraldur Þór Teitsson, fram-
kvæmdastjóri hópferðabílafyrir-
tækisins Teits Jónassonar, um þau
ummæli Hjalta Sigurjóns Hauks-
sonar á Vísi í vikunni að Haraldur
hafi vitað fullvel að meðmæli sem
hann skrifaði undir hafi verið vegna
umsóknar Hjalta um uppreist æru.
Haraldur hafði áður sent frá sér
yfirlýsingu þar sem hann sagði að
hann hefði ekki vitað né samþykkt
að vinnutengd meðmæli hans með
Hjalta yrðu notuð til að sækja um
uppreist æru.
Hjalti svaraði þessu á Vísi með því
að segja Haraldur hafi vitað tilgang
bréfsins. Haraldur og hinn meðmæl-
andinn, Sveinn Eyjólfur Matthías-
son sem einnig kveðst hafa verið
blekktur, séu bara hræddir.
„Það er búið að taka mig af lífi og
þeir vilja ekki vera næstir á gálgann.
Ég skil þá vel,“ sagði Hjalti og segir þá
hafa rétt honum hjálparhönd í þeirri
trú að um trúnaðargögn væri að ræða
sem enginn ætti nokkurn tíma eftir
að lesa nema ráðuneyti og ríkisstjórn.
Þessu vísar Haraldur Þór á bug.
„Meðmælabréfin voru stíluð á þá
sem málið varðaði, eins og venja er,
en alls ekki á ráðuneyti, hvað þá heila
ríkisstjórn. Ég bjóst bara við þeim
trúnaði sem almennt gildir um með-
mælabréf.“
Sem kunnugt er var Benedikt
Sveinsson, faðir Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, þriðji með-
mælandi Hjalta í umsókninni sem
varð til þess að hann fékk uppreist
æru í fyrra. Benedikt hefur gengist við
því að hafa léð meðmælabréfi Hjalta
undirskrift sína í þeim tilgangi.
Fréttablaðið greindi í vikunni frá
því að Haraldur íhugi að leita rétt-
ar síns vegna málsins. Hann hafi
falið lögmanni að óska eftir gögnum
þess hjá dómsmálaráðuneytinu. – smj
Umsókn um uppreist æru aldrei til tals
Hjalti Sigurjón Hauksson.
Meðmælabréfin
voru stíluð á þá sem
málið varðaði, eins og venja
er, en alls ekki á ráðuneyti,
hvað þá heila ríkisstjórn.
Haraldur Þór Teitsson, framkvæmda-
stjóri hópferðabílafyrirtækisins Teits
Jónassonar
stjórnsýsla Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis, telur ekki
þörf á að rannsaka embættisfærslur
Sigríðar Á. Andersen dómsmála-
ráðherra og Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra varðandi atvikið
þegar Sigríður sagði Bjarna frá því
að faðir hans væri á meðal umsagn-
araðila á umsókn dæmds kynferðis-
brotamanns um uppreist æru.
Þetta kom fram á lokuðum fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í
gær þar sem Tryggvi mætti og ræddi
reglur og framkvæmd við uppreist
æru. – skh
Telur ekki þörf
á rannsókn
Tryggvi Gunnarsson FréTTablaðið/GVa
Dómsmál Dómur manns sem sak-
felldur var í Hæstarétti í gær fyrir
meiriháttar brot gegn skattalögum
verður líklega kærður til Mann-
réttindadómstóls Evrópu (MDE).
Héraðssaksóknari segir að unnið sé
að því að tryggja að málsmeðferð hjá
embættinu uppfylli skilyrði dóm-
stólsins.
Niðurstöðu málsins hafði verið
beðið með nokkurri eftirvæntingu en
sjö dómarar dæmdu í málinu. Slíkt er
fátítt. Upphaflega stóð til að málið
yrði flutt í byrjun árs en því slegið á
frest þar til MDE kvæði upp dóm sinn
í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Tryggva Jónssonar gegn Íslandi. Í
maí kvað MDE upp dóm sinn, með-
ferð ríkisins á máli Jóns Ásgeirs og
Tryggva braut gegn ákvæðum Mann-
réttindasáttmála Evrópu um bann
gegn því að refsa tvisvar fyrir sama
brot.
Atvik málsins í gær voru um margt
sambærileg hinu fyrra máli. Var á því
byggt í vörninni að vísa bæri málinu
frá dómi þar sem maðurinn hefði
sætt endanlegum úrskurði skatta-
yfirvalda um álag á skattstofn vegna
sömu brota og nú væri ákært fyrir.
Því fælist í þessu tvöföld refsing fyrir
sama brot.
Í niðurstöðu sinni vísaði Hæsti-
réttur til þess að MDE hefði lagt til
grundvallar að heimilt væri að reka
tvö aðskilin mál, líkt og í þessu tilfelli,
fyrir skattalagabrot að ákveðnum
skilyrðum uppfylltum. Málin tvö
þyrftu að vera samþættanleg í efni og
tíma til að slíkt sé heimilt. Í dómnum
eru ferli og efni málsins ítarlega rakin
og komist að þeirri niðurstöðu að
framkvæmd þess hafi uppfyllt við-
mið MDE.
„Ég á eftir að kafa ofan í dóminn og
melta þær röksemdir sem tíndar eru
til en fljótt á litið sýnist mér að þetta
eigi fullt erindi til MDE,“ segir Ragnar
H. Hall, verjandi í málinu. Hann vildi
ekki tjá sig um niðurstöðuna að öðru
leyti.
Rekstur yfir hundrað mála hjá
skattayfirvöldum og saksóknaraemb-
ættum beið niðurstöðu Hæstaréttar.
Niðurstaðan er að mörgu leyti ekki
afdráttarlaus og margt á því eftir að
skýrast. „Það er annar hver maður
hér innanhúss að lesa dóminn núna.
Á næstunni eru fundir með Ríkissak-
sóknara um hver næstu skref verða.
Það er ekki ljóst í augnablikinu hver
áhrifin verða af þessu,“ segir Ólafur
Þór Hauksson héraðssaksóknari.
„Það er hins vegar ekki svo að
dómur MDE hafi engin áhrif þó
dómur í þessu máli hafi verið stað-
festur. Við ætlum að skoða verklagið
og tryggja að það standist kröfur
MDE.“ johannoli@frettabladid.is
Óvissa um meðferð skattamála
ríkir enn eftir dóm Hæstaréttar
Sjö hæstaréttardómarar dæmdu í málinu í gær en slíkt er fátítt. FréTTablaðið/EYÞÓr
Skilaði sératkvæði
Í máli Jóns Ásgeirs og Tryggva tók
rekstur málsins hátt í tíu ár frá því
það hófst og þar til Hæstiréttur
dæmdi í því. Málið hafði í gær
verið í sex ár og fjóra mánuði til
meðferðar.
„Þetta skilur kannski eftir
spurningu um málin sem tóku
lengri tíma en málið í gær en
skemmri tíma en mál Jóns og
Tryggva,“ segir Ólafur Þór.
Einn dómari í málinu í gær,
Benedikt Bogason, skilaði sér-
atkvæði og vildi vísa málinu frá
héraðsdómi.
Það á eftir að skýrast
hvaða áhrif dómur
Hæstaréttar hefur á með-
ferð mála sem tengjast
brotum gegn skatta-
lögum. Verjandi ætlar
líklega að kæra til Mann-
réttindadómstólsins.
Rekstur yfir hundrað
mála hjá skattayfirvöldum
og saksóknaraembættum
biðu niðurstöðu Hæstaréttar.
alþingi Sigríður Á. Andersen dóms-
málaráðherra mun í dag kynna
frumvarp um breytingu á lögum
um uppreist æru fyrir formönn-
um þeirra flokka sem sæti eiga á
Alþingi. Hún segist bjartsýn á að
samstaða náist á þingi um málið
þrátt fyrir að illa hafi gengið að
ákveða hvaða mál eigi að afgreiða
fyrir kosningar.
Að sögn Sigríðar felst breytingin
í því að heimild til að veita uppreist
æru yrði afnumin en um leið yrði
ákvæðum fjölmargra laga er lúta að
borgararéttindum breytt. – hh
Ætlar að kynna
frumvarp um
uppreist æru
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
0
-4
5
5
4
1
D
D
0
-4
4
1
8
1
D
D
0
-4
2
D
C
1
D
D
0
-4
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K