Fréttablaðið - 22.09.2017, Page 10
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi
og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar
einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna
notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku
eða erfiðu færi.
Volkswagen Caddy kostar frá
2.550.000 kr.
(2.056.452 kr. án vsk)
Við látum framtíðina rætast.
Í september fylgir öllum Caddy sendibílum margmiðlunartæki með bakkmyndavél.
Norður-Kórea Donald Trump
Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær
um enn frekari viðskiptaþvinganir
gegn einræðisríkinu Norður-Kóreu.
Tilskipun forsetans veitir fjármála-
ráðuneyti Bandaríkjanna heimild
til þess að refsa fyrirtækjum og ein-
staklingum sem stunda viðskipti við
Norður-Kóreu.
„Við ráðumst í þessar aðgerðir til
þess að skera á spenann sem fjár-
magnar vinnu Norður-Kóreu við
að þróa hættulegasta vopn sem
maðurinn þekkir,“ sagði forsetinn
þegar hann tilkynnti fjölmiðlum
um tilskipunina í gær. Stutt er síðan
norðurkóreski herinn sprengdi
vetnissprengju í fyrsta skipti. Fyrir
tveimur vikum refsaði öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna Norður-
Kóreumönnum fyrir tilraunina með
viðskiptaþvingunum.
Trump sagði einnig að Seðlabanki
Kína hefði beint þeim tilmælum til
annarra kínverskra banka að hætta
öllum viðskiptum við Norður-
Kóreumenn. Bandaríkin myndu
einna helst beina sjónum sínum að
því að draga úr textíl-, fisk-, upplýs-
ingatækni- og framleiðsluiðnaði í
Norður-Kóreu.
Forsetinn fundaði með leiðtogum
Suður-Kóreu og Kína í gær en alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
stendur nú yfir. Fyrr um daginn
tjáði Ri Yong-ho, utanríkisráðherra
Norður-Kóreu, sig um eldræðu
Trumps frá því á mánudag. Var það
fyrsta opinbera svar einræðisríkisins
við ræðunni.
„Ef Trump ætlaði sér að koma
okkur á óvart með því að hljóma eins
og geltandi hundur er hann í ein-
hvers konar draumalandi,“ sagði Ri
Yong-ho, utanríkisráðherra Norður-
Kóreu, við blaðamenn á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í gær.
Trump sagði þá að heimssamfélag-
ið yrði að sameinast gegn Norður-
Kóreu og fá ríkisstjórn Kim Jong-un
til þess að hætta að þróa kjarnorku-
vopn. Ef Norður-Kórea myndi ógna
Bandaríkjunum myndi Trump sjá til
þess að ríkið yrði gjöreyðilagt. „Eld-
flaugamaðurinn er í sjálfsmorðs-
leiðangri,“ sagði Bandaríkjaforsetinn
enn fremur og vitnaði þannig í lag
Eltons John, Rocket Man. Ri sagðist
vorkenna starfsfólki Trumps þegar
utanríkisráðherrann var spurður út
í Rocket Man-ummælin.
Norður-Kórea hefur undanfarið
svarað viðskiptaþvingunum með því
að gefa í frekar en að draga úr. Þann-
ig var nýsamþykktum þvingunum
Sameinuðu þjóðanna til dæmis
svarað með því að efla vopnafram-
leiðslu.
Suður-Kórea tilkynnti í gær að
ríkið myndi standa fyrir mannúðar-
aðstoð í norðrinu í fyrsta sinn í nærri
tvö ár. Ætlar sameiningarráðuneyti
Suður-Kóreu að sjá börnum og ólétt-
um konum fyrir hjálp og stendur til
að verja um 860 milljónum króna í
verkefnið. thorgnyr@frettabladid.is
Harðari þvinganir gegn Norður-Kóreu
Bandaríkjaforseti undirritaði í gær tilskipun um nýjar viðskiptaþvinganir gegn Norður-Kóreu. Kínverskum bönkum gert að hætta við-
skiptum við nágrannaríkið. Utanríkisráðherra Norður-Kóreu líkti Bandaríkjaforseta við geltandi hund og segir hann í draumalandi.
Trump fundaði með Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, í gær. NordicphoToS/AFp
Ef Trump ætlaði sér
að koma okkur á
óvart með því að hljóma eins
og geltandi hundur er hann í
einhvers konar
draumalandi.
Ri Yong-ho,
utanríkisráðherra
Norður-Kóreu
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t u D a G u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
0
-4
0
6
4
1
D
D
0
-3
F
2
8
1
D
D
0
-3
D
E
C
1
D
D
0
-3
C
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K