Fréttablaðið - 22.09.2017, Side 13
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Að verðtrygging verði bönnuð á lánum heimilanna
Að lög- og stjórnarskrárvarin réttindi
lánþega séu virt
Að laun á Íslandi
geri almenningi kleift
að lifa hófsömu og mannsæmandi lífi
Afnám verðtryggingar
Við krefjumst þess að verðtrygging verði bönnuð á lánum heimilanna.
Það er ekkert sem réttlætir að Íslendingar búi við lánakjör sem þekkjast ekki í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Það er ekkert sem réttlætir verðtryggingu ofan á hæstu vexti á einhverjum öruggustu og bestu veðum
sem finnast, heimilum fólks, steinsteypu sem stendur áratugum saman.
Allt tengist þetta:
Verði verðtrygging bönnuð á lánum heimilanna verður léttara að leigja og eiga heimili
og fólk mun hafa mun meira á milli handanna þegar það þarf ekki lengur að borga húsnæðislánin sín margföld til baka.
Verðtrygging hvetur til verðbólgu.
Skuld r k i skömm!
Baráttumál
og kröfur
Hagsmunasamtök heimilanna
Samtökin eru óháð hagsmunasamtök sem hafa barist fyrir réttindum neytenda á fjármálamarkaði frá 2009.
Almenningur er ekki
fóður fyrir bankana!!
Það er stundum ekki fyrr en maður heyrir sjálfan sig þylja einhverja visku yfir sínum
eigin börnum að maður áttar sig
á því að kannski hlustaði maður
betur á mömmu sína en maður
var tilbúinn að viðurkenna í æsku.
Þannig hafa frasar eins og „það spyr
þig enginn hversu lengi þú varst að
þessu, bara hvort þetta er vel gert“
og „gerðu þetta með glöðu geði, eða
slepptu því“ öðru hverju hrokkið
ósjálfrátt upp úr mér við mín eigin
börn.
Reyndar hef ég síðar komist að
því að það var ekki endilega rétt hjá
mömmu að enginn spyrði hversu
lengi það tekur mann að gera
hlutina. Þvert á móti, það er mjög
algengt að fólk velti því fyrir sér.
Staðhæfingin er því röng en samt
svo sönn. Í henni felst að maður
eigi að hafa persónulegan metnað
til þess að skila alltaf góðu verki, en
láta ekki væntingar eða athuga-
semdir annarra slá sig út af laginu.
Og hvað það varðar að sleppa
hlutunum ef maður ætlaði ekki
að gera þá með glöðu geði—þá
var það alltaf meira í nösunum á
mömmu. Sá valkostur að sleppa því
sem um var beðið kom í raun aldrei
til greina, þannig að eftir stóð sá
kostur að toga skeifuna af andlitinu
og hefjast handa. Og það var líka
hárrétt lexía. Jafnvel fábreytilegustu
verkefni hætta að vera leiðinleg
þegar maður leyfir sér ekki að væla
undan þeim.
Önnur verðmæt lexía, sem
einhvern veginn síaðist inn, felst
í þeirri yfirlýstu uppeldisstefnu
mömmu að vilja frekar ala upp
furðuleg börn heldur en heila-
þvegin. Í því felst virðing fyrir ein-
staklingnum og einlægur skilningur
á því að fólk eigi heimtingu á því
að fá að mæta sinni hamingju og
harmi á eigin forsendum.
Gott íhald
Hugsanlega hefur enginn tími í
veraldarsögunni borið með sér
eins miklar og hraðar breytingar á
daglegum lifnaðarháttum manna
eins og sá sem liðinn er frá lokum
síðari heimsstyrjaldarinnar. Þó er
það þannig þegar maður skoðar
dagblöð og tímarit frá þeim tímum
þegar kynslóð foreldra minna
fæddist, að þá kemur eiginlega mest
á óvart hversu margt er óbreytt. Í
kringum 22. september 1947 voru
Rússar og Bandaríkjamenn að rífast
og kalla hvorir aðra stríðsæsinga-
menn á þingi Sameinuðu þjóðanna,
kjaramálin voru í brennidepli og
íhaldsmenn og kommúnistar sendu
hvorir öðrum eiturpillur í gegnum
leiðarasíður blaðanna. Flestar
fréttir frá þeim tíma gætu staðið
í blöðunum í dag án þess að þær
þættu ótrúlegar. Aðra sögu er að
segja um auglýsingarnar, sem væru
augljóslega úr sér gengnar. Sem-
sagt—allt sem snýr að mannlegri
hegðun er að mestu leyti óbreytt,
þótt umhverfi daglegs lífs hafi gjör-
breyst.
Þannig geta mörg af heilræðum
fyrri kynslóða gengið óbreytt niður
til afkomenda og verið öllum til
gagns. Það er góð íhaldssemi að
halda á lofti verðmætum gildum
sem þjónað hafa öllum vel sem
tileinkað sér hafa. Þetta á til dæmis
við um vandvirkni, vinnugleði og
umburðarlyndi.
Vont íhald
Auðvitað erfist líka alls konar
vitleysa og ranghugmyndir í
Gott og vont íhald
gegnum kynslóðirnar. Og þess
vegna er íhaldssemi ekki fortaks-
laust dyggð. Hún er bara dyggð
þegar hún stuðlar að betra lífi fyrir
einstaklinga og samfélög. Í íhalds-
seminni getur líka falist varðstaða
um ranglæti, græðgi, valdníðslu og
ofbeldi—eða heiftúðlegir fordómar
og tortryggni.
Það mun til dæmis hafa gerst í
æsku móður minnar að „merki-
legur“ maður í bænum hlaut dóm
fyrir einhvers konar fjármálamis-
ferli og um það var fjallað í blöð-
unum. Þá var séð til þess að þeim
blöðum væri ekki dreift í heima-
högum merkismannsins svo að
ekki félli kusk á flibba hans, nema
þá í fjarska.
Slík íhaldssemi hefur verið á
hröðu undanhaldi undanfarna ára-
tugi—meira að segja hjá langflest-
um sem myndu pólitískt flokkast
sem „íhaldsmenn“. Þessar mikil-
vægu viðhorfsbreytingar hafa átt
sér stað í fullkominni sátt milli allra
stjórnmálaflokka, hvar svo sem þeir
staðsetja sig á hægri-vinstri ásnum
og allar vísa þær í átt til betra og
réttlátara samfélags þótt sumir vilji
hreyfa sig hraðar en aðrir.
Innistæðulaus heift
Þótt yngri kynslóðir hafi lært mikið
af þeim eldri í gegnum söguna þá
höfum við þó borið gæfu til þess að
uppgötva og læra sitthvað nýtt líka.
Ísland er opnara, umburðarlyndara
og réttlátara samfélag nú en það var
fyrir sjötíu árum. Það er þess vegna
lítil innistæða fyrir því að viðhalda
þeirri illúðlegu heift sem alin hefur
verið upp í pólitíkinni milli ólíkra
stjórnmálaflokka, og kannski ekki
síður innan þeirra.
Kosningabaráttan sem nú hefur
verið boðuð er líkleg til þess að
verða miklu ljótari en raunveruleg
efni standa til og skila þeim eina
árangri að dýpka tortryggnina á
milli þess ágæta fólks sem að öllu
jöfnu ætti að geta starfað saman af
sæmilegum heiðarleika. Þannig að
maður gengur kannski ekki bein-
línis með glöðu geði að kjörborðinu
að þessu sinni.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 2 2 . S e p T e m B e R 2 0 1 7
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
0
-3
6
8
4
1
D
D
0
-3
5
4
8
1
D
D
0
-3
4
0
C
1
D
D
0
-3
2
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K