Fréttablaðið - 22.09.2017, Page 45
Ganga, auðvitað
Það geta ekki allir leyft sér þann
munað að ganga í vinnuna – eða
hvað? Það er allt hægt, það bara
tekur mislangan tíma. Það að
ganga er líka mjög vanmetið,
við mennirnir virðumst alltaf
vera að leita leiða til að ganga
sem minnst, en fyrir fólkið sem
starfar í skapandi störfum er lík-
lega enginn betri undirbúningur
til en að taka góðan göngutúr
fyrir vinnu. Svo er það bara svo
rómantískt.
Hvernig átt þú að
lifa af bíllausa daginn?
Í dag er Bíllausi dagurinn eins og allir vita og hann ber að halda hátíðlegan.
Sumum gæti reynst það gríðarlega erfitt – en við hér á Lífinu vitum betur. Hér
koma nokkur ráð, sum frekar augljós en önnur kannski ekki, hvað vitum við?
Panta matinn
heim að dyrum
Auðvitað er ekkert nýtt að
það sé hægt að verða sér
úti um máltíð án þess að
yfirgefa heimili sitt. Urm-
ull veitingastaða býður
upp á heim sendingu á
skyndibita auk þess sem
það er hægt að nýta sér
hinar ýmsu þjónustur
sem aðstoða við þetta.
Þeir sem þurfa að kaupa
inn fyrir næstu viku eða
helgina geta svo nýtt sér
þar til gerða þjónustu
eins og t.d. Boxið.
Strætó
Fyrir þá sem ekki vita þá er rekin
þjónusta í Reykjavík og víðar þar
sem stórir, langir og oftast gulir
bílar keyra um götur borga og bæja
og þeir sem standa á réttum stöðum
(þeir eru merktir) fá að hoppa upp í
og borga nokkra hundraðkalla fyrir
far. Þjónustan verður svo ókeypis í
dag – algjör snilld.
Vertu bara heima
Það er bullandi haust og líklega míg-
andi rigning, rok og leiðindi. Lífið er
ekki að segja þér að hringja þig inn
veika/n en þú ert samt alveg með
smá verk í hálsinum og trúlega smá
hita ekki satt? Ert búin/n að vera að
hósta eða að minnsta kosti ræskja
þig? Það er kannski bara best að
liggja undir teppi og horfa á Sein-
feld í allan dag.
Fáðu far
Það eru alltaf einhverjir
gamaldags, einhverjir sem láta
ekki einhvern DAG segja sér fyrir
verkum og mæta bara á risastóra
bensínsvelgnum sínum í vinnuna,
eða hvert sem er. Þú, framsækna
manneskjan, sem skilur bílinn eftir
heima í dag getur auðvitað nýtt
þér þetta og sent eitt stykki
póst á alla starfsmenn fyrir-
tækisins og hver veit,
kannski færðu far
hjá erfiða yfirmann-
inum sem allir eru
hræddir við.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
SPENNAN MEIRI EN
NOKKRU SINNI FYRR
JOONA LINNA ER
KOMINN AFTUR
BÓK SEM ER NÁNAST
ÓMÖGULEGT AÐ
LEGGJA FRÁ SÉR
MEST SELDA SKÁLD-
SAGA SVÍÞJÓÐAR 2016
„Meistarastykki.“
FYENS STIFTSTIDENDE
„Besta Joona Linna-glæpasagan hingað til.“
LITTERATURSIDEN.DK
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 33f Ö S T U D A G U R 2 2 . S e p T e m B e R 2 0 1 7
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
0
-4
5
5
4
1
D
D
0
-4
4
1
8
1
D
D
0
-4
2
D
C
1
D
D
0
-4
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K