Fréttablaðið - 22.09.2017, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Föstudagskvöldið 18. maí á næsta ári mun hin goðsagnakennda hljómsveit Foreigner heimsækja Ísland í fyrsta sinn. Foreigner þarf vart
að kynna fyrir almenningi en sveitin
hefur selt yfir 75 milljónir platna á
ferlinum sem nær yfir 40 ára tíma-
bil, og fagnar þeim áfanga nú á tón-
leikaferðalagi um heiminn.
Sveitin hefur verið álitin ein
vinsælasta rokkhljómsveit heims
og mun koma beint frá The Royal
Albert Hall í Bretlandi og ættu
Íslendingar því að fá sveitina í topp-
formi í Laugardalshöllinni en hún
hefur verið að fá frábæra dóma fyrir
tónleika sína að undanförnu.
Hljómsveitin fékk fimm stjörnur
af fimm mögulegum fyrir tónleik-
ana sína í Denver í byrjun mánað-
arins. Fékk hún mikið hrós og góða
einkunn fyrir að byrja tónleikana á
réttum tíma.
Sveitin hefur sent frá sér tíu plat-
ínuplötur og 16 alþjóðlega smelli
sem allir hafa náð inn á topp 30 í
Bandaríkjunum. Árið 1986 var lag
hennar Urgent á toppi íslenska vin-
sældalistans hér á landi í nokkrar
vikur. Sveitin hefur verið að taka öll
sín þekktustu lög og má búast við
að þakið á Laugardalshöll hrein-
lega fari af þegar áhorfendur kyrja,
I want to know what love is, sem
flestir jarðarbúar þekkja.
Þeir Mick Jones og félagar gáfu út
sína fyrstu plötu árið 1977 sem hét
einfaldlega Foreigner. Hún seldist
í um þremur milljónum eintaka.
Járnið var hamrað fyrst það var
svona rjúkandi heitt og önnur plat-
an sem heitir Double Vision kom ári
síðar. Ekki fékk hún síðri viðtökur
en fyrsta platan og tvö lög náðu
miklum vinsældum, Hot Blooded og
titillagið, Double Vision. Það ár var
hljómsveitin aðalnúmerið á Read-
ing-hátíðinni. Áfram var haldið og
1979 kom platan Head Games sem
seldist einnig vel.
En það örlaði á pirringi og farið
var í mannabreytingar. Árið1981
sendi hljómsveitin fjórðu plötu
sína í búðarhillur sem sló þeim
fyrri við hvað sölutölur varðar.
Hún fór til að mynda rakleitt í efsta
sæti bandaríska vinsældalistans.
Reyndar skipti engu hvert litið var,
Foreigner var vinsæl beggja vegna
Atlantshafsins og er það enn. Miða-
sala hefst eftir slétta viku á Midi.is
og verður takmarkaður miðafjöldi
í boði. benediktboas@365.is
Risasveitin
Foreigner til Íslands
I Want to Know What Love Is mun hljóma á Íslandi þann 18. maí
þegar hin goðsagnakennda hljómsveit Foreigner stígur hér á svið.
Sveitin er á ferðalagi um þessar mundir og fær góða dóma.
Bruce Watson og sjálfur meistarinn Mick Jones að fremja einhvern stórkostlegan gjörning á gítarana. Jones er orðinn
72 ára en lætur engan bilbug á sér finna. NORDIcPhOTOS/GETTy
Foreigner árið 1976. Frá vinstri: Ed Gagliardi, Mick Jones, Dennis Elliott, Lou
Gramm, Ian McDonald og Al Greenwood. NORDIcPhOTOS/GETTy
Risasmellir Foreigner
I Want to Know What Love Is
Juke Box hero
Say you Will
cold as Ice
Urgent
Feels Like the First Time
Waiting for a Girl Like you
Um 700-900 þúsUnd
manns hoRFa á myndbönd
FoReigneR Í hveRRi vikU á
yoUtUbe.
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r34 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
0
-4
0
6
4
1
D
D
0
-3
F
2
8
1
D
D
0
-3
D
E
C
1
D
D
0
-3
C
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K