Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 4
Leiðrétting
Lögmaður breska
félagsins Advanced Marine Services
hér á Íslandi heitir Bragi Dór
Hafþórsson og er því ekki Birgisson
eins og ranglega sagði í blaðinu í
gær. AMS er félagið sem hyggst ná
verðmætum úr flaki þýska skipsins
SS Minden.
VETRARSÝNING JEEP
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
JEEP SÝNING LAUGARDAGINN
7. OKTÓBER OPIÐ 12 - 17
®
®
Í OKTÓBER FYLGJA 33” DEKK ÖLLUM NÝJUM
VERÐ FRÁ 8.490.000.-
SÝNUM EINNIG 35” BREYTTAN.
skipuLagsmáL „Ég mótmæli harðlega
þeim svívirðilegu gjörðum að ætla að
fara að reisa hótel ofan á beinum for-
feðra okkar í Víkurkirkjugarði,“ segir
Steinunn Steinars í einu þeirra bréfa
sem borist hafa Reykjavíkurborg
vegna áforma um nýtt 160 herbergja
hótel á Landsímareitnum.
Flestum sem senda inn athuga-
semdir rennur til rifja að heimila
eigi að rífa viðbyggingu frá 1967
framan við Landsímahúsið og leyfa
þar í staðinn nýbyggingu með kjall-
ara ofan í grafreitinn í svokölluðum
Víkurgarði þar sem fólk var grafið allt
frá því skömmu eftir landnám og fram
á nítjándu öld.
„Póstur og sími leitaðist eftir sam-
bærilegri stækkun til suðurs 1966 með
kjallara, en ríkisstjórnin bannaði þá
framkvæmd. Ekki er vitað til þess að
sú ákvörðun hafi verið afturkölluð.
Ef Reykjavíkurborg tekst ekki að sýna
fram á afturköllun ákvörðunarinnar
stendur hún enn þann dag í dag,“ segir
í bréfi Ragnars Aðalsteinssonar hæsta-
réttarlögmanns fyrir hönd fimm
manna hóps.
Í þessum hópi eru Friðrik Ólafsson,
fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis,
séra Þórir Stephensen, fyrrverandi
staðarhaldari í Viðey, Hjörleifur Stef-
ánsson arkitekt, Þór Magnússon, fyrr-
verandi þjóðminjavörður, og Helgi
Þorláksson, sagnfræðingur og prófess-
or emerítus við Háskóla Íslands. Í bréfi
hópsins telur Ragnar Aðalsteinsson
upp fjölmarga lagalega agnúa á því
að af framkvæmdinni geti orðið.
„Við sjáum fyrst hver viðbrögðin
verða við þessum athugasemdum og
síðan verður metið hvort farið verður
í mál,“ segir Helgi Þorláksson.
Slík málshöfðun yrði þá gerð af
hálfu sóknarnefndar dómkirkjunnar
sem einnig mótmælir hótelbygging-
unni harðlega með yfirlýsingu. „Telji
Reykjavíkurborg sig hafa heimildir til
að ráðstafa landi kirkjugarðsins, þá
skorar sóknarnefnd á hana að gera
grein fyrir heimildum sínum,“ segir í
yfirlýsingunni.
Fjölmargir aðrir sendu inn athuga-
semdir.
„Bein voru flutt burt úr garðinum
í fyrra, bæði leifar af beinagrindum
en líka um 20 heillegar beinagrindur
í heillegum kistum til að rýma fyrir
hinni nýju byggingu sem er ætluð
fyrir hótel. Meðferð af þessu tagi á
þekktum kirkjugarði frá seinni öldum
stríðir gegn venjum, almennum við-
horfum, reglum og lögum,“ segir til
dæmis í bréfi sjö manna hóps karla og
kvenna sem Helgi Þorláksson tilheyrir
reyndar einnig.
Eftir mótmæli frá Alþingi var fallið
frá því að hafa inngang nýja hótelsins
frá Kirkjustræti í suðri og hafa hann
þess í stað til vesturs í gegn um Víkur-
garð að Aðalstræti.
„Við mótmælum að Víkurgarður
sé gerður að forgarði fyrirhugaðs
hótels, það mun verða dauðadómur
yfir garðinum sem almenningsrými,“
segir enn fremur í bréfi sjömenn-
inganna sem kalla sig BIN hópinn –
Björgum Ingólfstorgi og Nasa.
„Mér sýnist þetta vera ein hringa-
vitleysa allt saman, þessar hugmyndir
með þetta hótel og aðkomuna að því,“
segir Þór Magnússon, fyrrverandi
þjóðminjavörður.
„Hér gefst kjörið tækifæri fyrir ráða-
menn Reykjavíkurborgar að sýna fram
á að þeir séu ekki jafn átakafælnir og
þeim er oft núið um nasir þegar úrelt
skipulag tekur af þeim völdin,“ segir
í athugasemd frá Bolla Héðinssyni,
hagfræðingi og háskólakennara, sem
leggur áherslu á skipulagsleg rök eins
og skuggavarp. „Ekki ætti að þurfa að
fjölyrða um mikilvægi Austurvallar
sem staðar fyrir almenning að koma
saman á og njóta þeirrar sólar sem þar
býðst.“
Athugasemdirnar sem bárust voru
lagðar fram til kynningar á síðasta
embættisfundi skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur ásamt tillögu hönnuða
um byggingu hótelsins en málið á enn
eftir að koma til ákvörðunar í hinu
pólitíska umhverfis- og skipulagsráði
borgarinnar. gar@frettabladid.is
Fyrrverandi embættismenn
sameinast gegn hóteli á grafreit
Mér sýnist þetta
vera ein hringa
vitleysa allt saman, þessar
hugmyndir með þetta hótel
og aðkomuna
að því.
Þór Magnússon,
fyrrverandi þjóð-
minjavörður
Rífa á viðbyggingu sem reist var 1967 og byggja nýtt hús sem nær dýpra ofan í grafreitinn. FRéttablaðið/anton bRink
Fyrirkomulag hér á
landi við meðferð
umsókna um alþjóðlega
vernd er á ystu
nöf.
Reimar Pétursson,
formaður Lög-
mannafélagsins
Prófessor emerítus, fyrr-
verandi skrifstofustjóri
Alþingis og fyrrverandi
þjóðminjavörður eru
meðal þeirra sem gagn-
rýna Reykjavíkurborg
harðlega vegna áforma
um að heimila hótel-
byggingu á fornum graf-
reit við Landsímahúsið.
mannréttindi Skiptar skoðanir
eru meðal lögmanna um ályktun
fundar Lögmannafélagsins í gær.
Í ályktuninni segir að málsmeð-
ferð umsókna um alþjóðlega vernd
hér á landi kunni að brjóta gegn
grundvallarréttindum hælisleit-
enda og er skorað á dómsmálaráð-
herra að tryggja hælisleitendum
raunhæf réttarúrræði, aðgang að
sjálfstætt starfandi lögmanni frá
upphafi málsmeðferðar sem verði
greidd úr ríkissjóði. Ályktunin var
samþykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta fundarmanna.
Ekki eru þó allir lögmenn jafn
sáttir. „Ég gerði athugasemd við að
bera eigi upp tillögu um ákveðna
lífsskoðun en Lögmannafélagið er
félag með skylduaðild en ekki lífs-
skoðunarfélag,“ segir Jón Magnús-
son hæstaréttarlögmaður. Hann
telur nærtækara að lögmenn sem
vinna fyrir hælisleitendur láti reyna
á þessi meintu grundvallarréttindi
fyrir dómi.
Lögmaðurinn Einar Sveinn Hálf-
dánarson tekur í sama streng. „Þetta
er plagg sem væri samið í stjórn-
málaflokki,“ segir Einar og bendir
á dóma Mannréttindadómstóls
Evrópu um að skylduaðildarfélög
megi ekki taka pólitíska afstöðu.
Það brjóti gegn tjáningar- og skoð-
anafrelsi félagsmanna.
Reimar Pétursson, formaður Lög-
mannafélagsins, segir miður að ein-
hverjir séu ósammála ályktuninni.
„Ég hélt að lögmenn gætu verið
sammála um að allir ættu að geta
notið aðstoðar lögmanns. Ég hefði
haldið að það væri málefni sem
ætti ekki að gefa tilefni til mikilla
innanfélagsdeilna.“ – aá
Lögmannafélagið krefst betri réttarverndar fyrir hælisleitendur
kosningar Lilja Alfreðsdóttir þing-
maður og Lárus Sigurður Lárusson
lögmaður leiða lista Framsóknar-
flokksins í höfuðborginni. Lilja
syðra en Lárus nyrðra. Listinn var
samþykktur á fundi í gærkvöldi.
Jafnframt vekur athygli að Birgir
Örn Guðjónsson, Biggi lögga, skipar
þriðja sæti listans í Reykjavík suður.
Listi Framsóknarflokksins í Suð-
vesturkjördæmi var samþykktur á
aukakjördæmisþingi og svo birtur í
gær. Fyrsta sætið skipar fyrrverandi
þingmaðurinn og knattspyrnuþjálf-
arinn Willum Þór Þórsson, en hann
vermdi annað sæti listans í fyrra.
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrver-
andi ráðherra Framsóknarflokksins,
ætlar einnig í framboð, þó fyrir Mið-
flokkinn. Það fullyrti Morgunblaðið
í gær.
Ljóst er að Gunnar Bragi mun hins
vegar ekki leiða lista Miðflokksins í
Norðvesturkjördæmi en í því odd-
vitasæti sat hann fyrir Framsóknar-
flokkinn. Bergþór Ólason, sem var
aðstoðarmaður Sturlu Böðvarssonar
þegar hann var samgönguráðherra,
mun taka oddvitasæti Miðflokksins
í kjördæminu. – þea
Framboðslistar
farnir að skýrast
Willum Þór leiðir Framsóknarmenn í
kraganum. FRéttablaðið/Daníel
6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö s t u d a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
A
-6
6
6
8
1
D
E
A
-6
5
2
C
1
D
E
A
-6
3
F
0
1
D
E
A
-6
2
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K