Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 35
Hótel Saga verður í ár, eins og fyrri ár, með stórglæsilegt og sígilt jólahlaðborð í nýju og enn notalegra umhverfi í Súlna­ sal. „Boðið verður upp á samspil af íslensku og dönsku jólahlaðborði en á sama tíma verða spennandi nýjungar,“ segja þeir Ólafur Helgi Kristjánsson matreiðslumaður og Sigurður Helgason veitingastjóri. Súlnasalurinn á Hótel Sögu er klassískur veislusalur þar sem margar af stærstu stjörnum lands­ ins hafa stigið á svið og skemmt gestum í gegnum árin, listamenn á borð við Elly Vilhjálms, Ragga Bjarna, Magga Kjartans, Ómar Ragnarsson og Helenu Eyjólfs­ dóttur. „Nú er verið að endurnýja Súlnasal með allri þeirri nútíma­ tækni sem nauðsynleg er til að halda veislur og viðburði en á sama tíma viðhalda hinum góða anda sem ríkt hefur í salnum í ára­ tugi.“ Skemmt­ unin á jóla­ hlaðborðinu hefur alltaf einkennst af húmor, tón­ list og gleði og verður árið í ár engin undan­ tekning að þeirra sögn. „Stórstjörnurnar Helgi Björnsson, Sigríður Thor­ lacius og Saga Garðarsdóttir hafa skapað fullkomna blöndu af góðu jólakvöldi og Siggi Hlö sér svo til þess að allir dansi inn jólin.“ Mikil aðsókn Að sögn Harðar Sigurjónssonar, sölustjóra veitingadeildar Hótels Sögu, er aðsókn mikil og verður því bætt við jólahlaðborði án skemmtunar, en með lifandi tón­ list, miðvikudaginn 6. desember. „Í ár munum við einnig bjóða upp á ljúffengan jólabröns í Súlnasal dagana 2., 3., 9. og 10. desember með lifandi tónlist og þar koma jólasveinar einnig við sögu.“ Meðal gómsætra rétta sem verða á boðstólum í ár er gljáður ham­ borgarhryggur, sítrus­ og rósmar­ ínkryddaður kalkúnn, purusteik, síldarréttir og upprunamerkt sérvalið hangikjöt frá bónda í Vopnafirði. Villibráðin verður á sínum stað en þar má nefna gæs, hreindýr og hinar ýmsu útfærslur af laxi. „Við erum sérstaklega stolt að segja frá því að í ár verðum við með grænmetishlaðborð þar sem veganréttir verða á boðstólum svo óhætt er að segja að boðið sé upp á eitthvað fyrir alla. Irish coffee og snafsavagninn er á sínum stað auk þess sem allir eftirréttirnir koma frá bakaríinu sem er á hótelinu.“ Jólaupplifun í Grillinu Grillið er nú opið alla daga vikunnar og býður einstaka heildarupplifun í mat og drykk í fal­ legu umhverfi. „Fram undan eru spennandi tímar en nýr yfirmatreiðslumaður, Sigurður Laufdal, var ráðinn til starfa 1. september. Hann hefur unnið að því að setja saman nýjan matseðil úr öllu því dásamlega hráefni sem ein­ kennir haustið. Villibráðin tekur svo við um miðjan október og munu jólin svo mæta á Grillið í desember. Fjögurra rétta jóla­ seðill verður í aðalhlutverki þar sem m.a. verður boðið upp á okkar sívinsæla síldarrétt, hreindýr og svo er val um að bæta við humri sem aukarétti.“ Mikil áhersla er lögð á rekjan­ leika afurða á Grillinu, hráefni úr sveitinni er sérvalið og gestir fá að heyra allt um upprunann. „Við höfum t.d. keypt lambakjöt frá Austurlandi og getum tilgreint nákvæmlega frá hvaða bæjum kjötið kemur. Í haust fengum við hunang frá Álfsstöðum í upp­ sveitum Árnessýslu en það er notað í ísdesert með íslenskum aðalbláberjum. Þessi þekking á hráefnunum er okkar sérkenni.“ Jólaupplifun í Súlnasal Jólahlaðborðin í Súlnasal á Hótel Sögu hafa skipað stóran sess í jólahaldi landsmanna í langan tíma. Boðið verður upp á samspil af íslensku og dönsku jólahlaðborði auk spennandi nýjunga. Jólahlaðborðin hefjast 17. nóv- ember og verða föstudaga og laugardaga til og með 16. des- ember. Nú þegar er orðið full- bókað á nokkur kvöld. MYND/VILHELM Humar og rauðrófur. Aðalbláber og blóðberg. Velkomin á í hjarta Reykjavíkur STÓRGLÆSILEGT JÓLAHLAÐBORÐ Bókaðu strax í síma 552 3030 föstudagur 17. laugardagur 18. föstudagur 24. laugardagur 25. föstudagur 1. laugardagur 2. föstudagur 8. laugardagur 9. Desember Nóvember Matti Matt & Pétur Örn og Hreimur verða jólagestir á Restaurant Reykjavík á aðventunni. Þeir munu laða fram einstaka stemningu með ljúfum tónum og glæða húsið notalegheitum og skemmtilegum hátíðaranda. RR-jól-255x200.indd 1 05/10/2017 13:51 KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 6 . o k tó B e r 2 0 1 7 JóLAHLAÐBoRÐ 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E A -6 B 5 8 1 D E A -6 A 1 C 1 D E A -6 8 E 0 1 D E A -6 7 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.