Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 17
Þórlindur Kjartansson Í dag Fyrir um það bil fimmtán árum hringdi móðir vinar míns í son sinn með óvenjulegar áhyggjur. Hún hafði verið á rölti í miðbænum og orðið vitni að stórundarlegu háttalagi þjóðþekkts athafna- og listamanns, og varð svo um að hún varð að fá nánari skýringar. – Veistu hvort það geti verið að hann Eyþór Arnalds sé orðinn eitt- hvað skrýtinn? spurði hún son sinn. Vinur minn treysti sér auðvitað ekki til þess að fullyrða um það við móður sína. – Af hverju heldurðu að það geti verið? spurði hann. – Ég átti leið yfir Ingólfstorg í dag í sólinni og sá Eyþór Arnalds. Hann þrammaði yfir torgið eins og hann væri að flýta sér eitthvað ægilega mikið. – Já, getur ekki bara verið að hann hafi verið að fara á fund? – Það var ekki það sem var skrýtið, heldur talaði hann stans- laust út í loftið með alls konar handabendingum, eins og hann væri í svakalegum samræðum. – Já? – En hann var ekki að tala við neinn. Það var enginn með honum og enginn í kringum hann. Hann var bara að tala við sjálfan sig. Blaðrandi út í loftið Vinur minn var fljótur að átta sig á málinu og byrjaði að reyna að útskýra fyrir mömmu sinni hina svokölluðu „bluetooth“ tækni. Að Eyþór hafi sennilega verið búinn að tengja símann sinn við örlítið heyrnartæki sem hékk á eyranu. Það væri því engin sérstök áhersla að álykta út frá þessu að athafna- maðurinn væri að verða eitthvað skrýtinn, þótt hann væri örugglega að þessu leyti, eins og mörgu öðru, töluvert á undan sinni samtíð. Nú til dags kippir sér enginn upp við það að sjá fólk blaðra eitthvað út í loftið. Þessi þróun er mjög jákvæð fyrir fólk sem sannarlega er skrýtið, því nú tekur enginn lengur eftir því þegar það á í hrókasam- ræðum við sjálft sig. En stærsta breytingin er vitaskuld snjall- símarnir sem við störum stanslaust ofan í. Það er eitthvað á reiki; en vísbendingar eru um að fólk notist að meðaltali við snjallsímana sína í þrjár til fjórar klukkustundir á dag, og handfjatli þá mörg hundruð sinnum. Afþreyingartæki eða snjalltæki Hún er því ekki skrýtin umræðan sem upp hefur sprottið í vikunni um hvort grípa þurfi í taumana og vernda blessuð börnin okkar fyrir snjalltækjavánni með því að setja bann við notkun tækjanna í skólum. Grein Önnu Borgar Jónsdóttur í Vísi í vikunni hefur farið víða, en þar færir hún sannfærandi rök fyrir því að banna eigi snjallsíma í skólum og skólastofum. Hún hefur rétt fyrir sér—snjallsímar eiga ekkert erindi í skólastofuna—ekki frekar en önnur leikföng og afþrey- ingartæki. Engum dytti í hug að leyfa börnum að skoppa körfubolta, spila á ukulele eða leggja kapal á meðan á kennslustund stendur. Snjallsímar eru öflug tæki og flest smáforritin, sem fólk hleður í þá, eru sérstaklega hönnuð til þess að ræna tíma og einbeitingu frá notendum. Þótt ýmislegt snjallt sé hægt að gera—eins og að hringja í fólk, senda skilaboð, lesa tölvupóst og stunda tungumálanám—þá er það líklega algjör sjálfsblekking að halda því fram að „snjalli“ hlutinn af snjallsímanum sé það sem heilli mest. Snjallsíminn er nefnilega fyrst og fremst afþreyingartæki sem fólk grípur til þegar það finnur til óþreyju. Óþreyja er mjög leiðinleg til- finning. Hún er meira að segja svo hvimleið að í „gamla daga“ greip ríkissjónvarpið til sérstakra úrræða til þess að draga úr óþreyju barna á stórhátíðum með því að sýna barna- efni að morgni dags á aðfangadag og gamlársdag. En þótt óþreyja sé leiðinleg þá er ekki þar með sagt að manninum sé alltaf hollast að „afþreyja sig“ þegar hann finnur til hennar. Vandinn er heima Þess vegna er býsna ólíklegt að snjallsímanotkun í grunnskólum sé stærsta vandamálið. Í grunnskólum eru börn í skipulögðu umhverfi, í góðum félagsskap og undir traustri handleiðslu. Raunverulegi vandinn er inni á heimilunum. Óþreyja gerir nefnilega helst vart við sig þegar maður telur sig ekki hafa neitt að gera, þegar maður þarf að bíða eftir einhverju eða þegar maður veit að maður ætti að vera að gera eitthvað leiðinlegt og enginn er til þess að halda manni almennilega við efnið. Við þessar aðstæður hafa allir—bæði börn og fullorðnir—ríka tilhneigingu til þess að grípa til einhvers konar afþreyingar. Og það er einmitt við þessar sömu aðstæður sem mikil- vægt er að koma sér upp venjum til þess að forðast afþreyingar—eins og til dæmis þegar fólk þarf að vinna erfið eða leiðinleg verkefni, læra nýja hluti eða einbeita sér að flóknum viðfangsefnum. Boð og bönn Það eru ekki nema rétt rúmlega þrjátíu ár síðan bannað var að selja börnum undir sextán ára aldri sígar- ettur. Fullorðna fólkið hafði rétti- lega á tilfinningunni að líklegast væri rétt að reyna að forða börnum frá tóbakinu. Eitthvað svipað er kannski í gangi núna með snjall- tækin. Fullorðið fólk finnur best á sjálfu sér hversu ávanabindandi þau geta verið. En rétt eins og með sígar- etturnar þá er það sjálfsblekking að fullorðna fólkið ráði eitthvað betur en börnin við snjallsímafíknina. Þess vegna hlýtur að vera eðlilegt að velta fyrir sér hvort það sé yfirhöfuð vit í því að fullorðið fólk mæti til vinnu með afþreyingartæki með- ferðis. Það yrði án vafa meira sann- færandi fyrir börnin að sjá foreldra sína skilja símana við sig heldur en að banna þeim hegðun sem það sjálft er niðursokkið í. Heimurinn hefur breyst hratt frá því móðir vinar míns hafði áhyggjur af því að Eyþór Arnalds væri orðinn eitthvað skrýtinn þar sem hann gekk í sínum frumstæða sýndar- veruleika í eigin heimi yfir Ingólfs- torg. Annaðhvort er Eyþór Arnalds orðinn venjulegur—eða við erum flest öll orðin stórfurðuleg. Í eigin heimi Heimurinn hefur breyst hratt frá því móðir vinar míns hafði áhyggjur af því að Ey- þór Arnalds væri orðinn eitt- hvað skrýtinn þar sem hann gekk í sínum frumstæða sýndarveruleika í eigin heimi yfir Ingólfstorg. Annaðhvort er Eyþór Arnalds orðinn venjulegur—eða við erum flest öll orðin stórfurðuleg. www.bjarmaland.is sími 770 50 60 bjarmaland@bjarmaland.is FRAMHALD JÓLA Í MOSKVU 4. - 8. janúar I 4 nætur Gullni þríhyrningurinn og strandir GOA 14. - 25. nóvember I 11 nætur INDVERSKT SUMAR UM HAUST 339 000 VERÐ kr. 166 300 VERÐ kr. ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR! Mánudaginn 16. október standa Íbúðalánasjóður og velferðarráðuneytið fyrir fyrsta árlega húsnæðisþinginu hér á landi. Þingið verður haldið á Hilton Nordica við Suðurlandsbraut frá kl. 10:00–16:30. Vinnustofur Húsnæðisþings he ast kl. 10:00 með erindum og pallborðsumræðum sem höfða sérstaklega til þeirra sem vinna að húsnæðismálum. Húsnæðisþingið sjálft hefst svo klukkan 13:00 með opnunarávarpi félags– og jafnréttismálaráðherra. Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, mun í kjölfarið Šalla um stöðu húsnæðismarkaðarins og fara y‹r húsnæðisstuðning hins opinbera. Nánari dagskrá verður kynnt á næstu dögum. Skráning á ils.is/husnaedisthing S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 6 . o k T ó B e R 2 0 1 7 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E A -5 7 9 8 1 D E A -5 6 5 C 1 D E A -5 5 2 0 1 D E A -5 3 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.