Fréttablaðið - 06.10.2017, Qupperneq 17
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Fyrir um það bil fimmtán árum hringdi móðir vinar míns í son sinn með óvenjulegar
áhyggjur. Hún hafði verið á rölti
í miðbænum og orðið vitni að
stórundarlegu háttalagi þjóðþekkts
athafna- og listamanns, og varð
svo um að hún varð að fá nánari
skýringar.
– Veistu hvort það geti verið að
hann Eyþór Arnalds sé orðinn eitt-
hvað skrýtinn? spurði hún son sinn.
Vinur minn treysti sér auðvitað
ekki til þess að fullyrða um það við
móður sína.
– Af hverju heldurðu að það geti
verið? spurði hann.
– Ég átti leið yfir Ingólfstorg í dag
í sólinni og sá Eyþór Arnalds. Hann
þrammaði yfir torgið eins og hann
væri að flýta sér eitthvað ægilega
mikið.
– Já, getur ekki bara verið að
hann hafi verið að fara á fund?
– Það var ekki það sem var
skrýtið, heldur talaði hann stans-
laust út í loftið með alls konar
handabendingum, eins og hann
væri í svakalegum samræðum.
– Já?
– En hann var ekki að tala við
neinn. Það var enginn með honum
og enginn í kringum hann. Hann
var bara að tala við sjálfan sig.
Blaðrandi út í loftið
Vinur minn var fljótur að átta sig
á málinu og byrjaði að reyna að
útskýra fyrir mömmu sinni hina
svokölluðu „bluetooth“ tækni. Að
Eyþór hafi sennilega verið búinn
að tengja símann sinn við örlítið
heyrnartæki sem hékk á eyranu.
Það væri því engin sérstök áhersla
að álykta út frá þessu að athafna-
maðurinn væri að verða eitthvað
skrýtinn, þótt hann væri örugglega
að þessu leyti, eins og mörgu öðru,
töluvert á undan sinni samtíð.
Nú til dags kippir sér enginn upp
við það að sjá fólk blaðra eitthvað
út í loftið. Þessi þróun er mjög
jákvæð fyrir fólk sem sannarlega er
skrýtið, því nú tekur enginn lengur
eftir því þegar það á í hrókasam-
ræðum við sjálft sig. En stærsta
breytingin er vitaskuld snjall-
símarnir sem við störum stanslaust
ofan í. Það er eitthvað á reiki; en
vísbendingar eru um að fólk notist
að meðaltali við snjallsímana sína í
þrjár til fjórar klukkustundir á dag,
og handfjatli þá mörg hundruð
sinnum.
Afþreyingartæki eða snjalltæki
Hún er því ekki skrýtin umræðan
sem upp hefur sprottið í vikunni
um hvort grípa þurfi í taumana
og vernda blessuð börnin okkar
fyrir snjalltækjavánni með því að
setja bann við notkun tækjanna í
skólum.
Grein Önnu Borgar Jónsdóttur
í Vísi í vikunni hefur farið víða,
en þar færir hún sannfærandi rök
fyrir því að banna eigi snjallsíma í
skólum og skólastofum. Hún hefur
rétt fyrir sér—snjallsímar eiga
ekkert erindi í skólastofuna—ekki
frekar en önnur leikföng og afþrey-
ingartæki. Engum dytti í hug að
leyfa börnum að skoppa körfubolta,
spila á ukulele eða leggja kapal á
meðan á kennslustund stendur.
Snjallsímar eru öflug tæki og
flest smáforritin, sem fólk hleður í
þá, eru sérstaklega hönnuð til þess
að ræna tíma og einbeitingu frá
notendum. Þótt ýmislegt snjallt sé
hægt að gera—eins og að hringja í
fólk, senda skilaboð, lesa tölvupóst
og stunda tungumálanám—þá er
það líklega algjör sjálfsblekking að
halda því fram að „snjalli“ hlutinn
af snjallsímanum sé það sem heilli
mest. Snjallsíminn er nefnilega
fyrst og fremst afþreyingartæki sem
fólk grípur til þegar það finnur til
óþreyju.
Óþreyja er mjög leiðinleg til-
finning. Hún er meira að segja svo
hvimleið að í „gamla daga“ greip
ríkissjónvarpið til sérstakra úrræða
til þess að draga úr óþreyju barna á
stórhátíðum með því að sýna barna-
efni að morgni dags á aðfangadag
og gamlársdag. En þótt óþreyja sé
leiðinleg þá er ekki þar með sagt
að manninum sé alltaf hollast að
„afþreyja sig“ þegar hann finnur til
hennar.
Vandinn er heima
Þess vegna er býsna ólíklegt að
snjallsímanotkun í grunnskólum sé
stærsta vandamálið. Í grunnskólum
eru börn í skipulögðu umhverfi, í
góðum félagsskap og undir traustri
handleiðslu. Raunverulegi vandinn
er inni á heimilunum.
Óþreyja gerir nefnilega helst vart
við sig þegar maður telur sig ekki
hafa neitt að gera, þegar maður
þarf að bíða eftir einhverju eða
þegar maður veit að maður ætti að
vera að gera eitthvað leiðinlegt og
enginn er til þess að halda manni
almennilega við efnið. Við þessar
aðstæður hafa allir—bæði börn
og fullorðnir—ríka tilhneigingu
til þess að grípa til einhvers konar
afþreyingar. Og það er einmitt við
þessar sömu aðstæður sem mikil-
vægt er að koma sér upp venjum til
þess að forðast afþreyingar—eins
og til dæmis þegar fólk þarf að
vinna erfið eða leiðinleg verkefni,
læra nýja hluti eða einbeita sér að
flóknum viðfangsefnum.
Boð og bönn
Það eru ekki nema rétt rúmlega
þrjátíu ár síðan bannað var að selja
börnum undir sextán ára aldri sígar-
ettur. Fullorðna fólkið hafði rétti-
lega á tilfinningunni að líklegast
væri rétt að reyna að forða börnum
frá tóbakinu. Eitthvað svipað er
kannski í gangi núna með snjall-
tækin. Fullorðið fólk finnur best á
sjálfu sér hversu ávanabindandi þau
geta verið. En rétt eins og með sígar-
etturnar þá er það sjálfsblekking að
fullorðna fólkið ráði eitthvað betur
en börnin við snjallsímafíknina.
Þess vegna hlýtur að vera eðlilegt að
velta fyrir sér hvort það sé yfirhöfuð
vit í því að fullorðið fólk mæti til
vinnu með afþreyingartæki með-
ferðis. Það yrði án vafa meira sann-
færandi fyrir börnin að sjá foreldra
sína skilja símana við sig heldur en
að banna þeim hegðun sem það
sjálft er niðursokkið í.
Heimurinn hefur breyst hratt frá
því móðir vinar míns hafði áhyggjur
af því að Eyþór Arnalds væri orðinn
eitthvað skrýtinn þar sem hann
gekk í sínum frumstæða sýndar-
veruleika í eigin heimi yfir Ingólfs-
torg. Annaðhvort er Eyþór Arnalds
orðinn venjulegur—eða við erum
flest öll orðin stórfurðuleg.
Í eigin heimi
Heimurinn hefur breyst hratt
frá því móðir vinar míns
hafði áhyggjur af því að Ey-
þór Arnalds væri orðinn eitt-
hvað skrýtinn þar sem hann
gekk í sínum frumstæða
sýndarveruleika í eigin heimi
yfir Ingólfstorg. Annaðhvort
er Eyþór Arnalds orðinn
venjulegur—eða við erum
flest öll orðin stórfurðuleg.
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
FRAMHALD JÓLA Í MOSKVU
4. - 8. janúar I 4 nætur
Gullni þríhyrningurinn og strandir GOA
14. - 25. nóvember I 11 nætur
INDVERSKT SUMAR UM HAUST
339 000
VERÐ
kr.
166 300
VERÐ
kr.
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!
Mánudaginn 16. október standa Íbúðalánasjóður og
velferðarráðuneytið fyrir fyrsta árlega húsnæðisþinginu
hér á landi. Þingið verður haldið á Hilton Nordica við
Suðurlandsbraut frá kl. 10:00–16:30.
Vinnustofur Húsnæðisþings he
ast kl. 10:00
með erindum og pallborðsumræðum sem höfða
sérstaklega til þeirra sem vinna að húsnæðismálum.
Húsnæðisþingið sjálft hefst svo klukkan 13:00
með opnunarávarpi félags– og jafnréttismálaráðherra.
Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, mun
í kjölfarið alla um stöðu húsnæðismarkaðarins
og fara yr húsnæðisstuðning hins opinbera.
Nánari dagskrá verður kynnt á næstu dögum.
Skráning á ils.is/husnaedisthing
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 6 . o k T ó B e R 2 0 1 7
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
A
-5
7
9
8
1
D
E
A
-5
6
5
C
1
D
E
A
-5
5
2
0
1
D
E
A
-5
3
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K