Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 12

Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 12
Frá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis. Auglýsing um viðtöku framboða og fleira. Framboðsfrestur til alþingiskosninga, sem fram eiga að fara þann 28. október 2017, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 13. október nk. Framboð í Suðvesturkjördæmi skal tilkynna skrif- lega til yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis, sem veitir þeim viðtöku í Íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnarfirði, föstudaginn 13. október 2017 milli kl. 10.00 og 12.00 fyrir hádegi. Á framboðslista skulu vera nöfn 26 frambjóðenda, eða tvöfalt fleiri frambjóðenda en nemur þingsætum í kjördæminu, hvorki fleiri né færri. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Suðvesturkjördæmi um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórn- málasamtök listinn er boðinn fram. Tilgreina skal nafn meðmæl- anda, kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 390 hið fæsta og eigi fleiri en 520. Sami kjósandi má ekki mæla með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir, verður kjósandinn ekki talinn meðmælandi neins þeirra. Loks skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Vakin er sérstök athygli á að afhenda skal yfirkjörstjórn frumrit meðmælendalista. Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til þess að meðmælendalistar verði skráðir með rafrænum hætti á þar til gerðu vefstæði á www.island.is áður en þeim er skilað til yfirkjörstjórnar. Fundur yfirkjörstjórnar til að úrskurða um gildi framboða, þar sem umboðsmönnum framboðslista gefst kostur á að vera viðstaddir, verður haldinn í Íþróttahúsinu Kaplakrika, laugardaginn 14. október 2017, kl. 12.00 á hádegi. Meðan kosning fer fram, laugardaginn 28. október 2017, verður aðsetur yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis í Íþrótta- húsinu Kaplakrika í Hafnarfirði, þar sem talning atkvæða fer fram að loknum kjörfundi kl. 22:00. Fyrstu kjörkassar verða opnaðir kl. 18:30 og hefst þá flokkun atkvæða. 3. október 2017. Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis, Ástríður Sólrún Grímsdóttir, Huginn Freyr Þorsteinsson, Helga Sigrún Harðardóttir, Herdís Hallmarsdóttir, Eysteinn Jónsson. Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís Íslenskur ís með ítalskri hefð Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is og fyrir. En ef við færum að rífast hérna um persónu hvort annars, þá skilar það í fyrsta lagi engu fyrir pólitíkina og náttúrulega yrðum við ekki sömu vinir á eftir,“ útskýrir Sig- mundur. Þórdís segist óska þess allra helst að fá að ræða málefnin og pólitík þessa daga fram að kosningum. „Málefni og stöðu Sjálfstæðisflokks- ins, hvað hefur hann gert, fyrir hvað stendur hann, hvernig sér hann samfélagið byggjast upp. Í hvað for- gangsröðum við og hvernig sjáum við fram á að eiga fjármuni til þess að setja í mál sem ríkið ætlar að sjá til að séu almennilega unnin. Það er ekki bara gert með því að einblína á útgjöldin, það þarf líka að búa til verðmætin. Hver býr þau til? Hvað er sanngjarnt að þeir sem búa þau til haldi eftir fyrir sig? Þetta er oft spurning um hvernig þú talar. Og þá get ég alveg tekið undir með Sig- mundi, ég held að fólk nenni miklu frekar að hlusta á hvaða afstöðu við tökum til ákveðinna mála, heldur en hvaða persónulegu skoðun ég hef á hinum eða þessum.“ Einn maður bjargaði úr hruninu Talið berst að ferðaþjónustu, en Þórdís segir mikla stefnumótunar- vinnu hafa farið fram í ferðamálum en það þurfi að gera betur. „Við erum að taka á móti tveimur milljónum ferðamanna og við erum að gera það mjög vel, langflestir eru ánægðir. Það er hins vegar mikið verk að vinna og það sem skiptir máli í þessu er að við horfum til langs tíma og við byggjum upp framúrskarandi ferðaþjónustu- land þar sem við verndum náttúruna og höldum uppi góðum gæðum. Það verður alltaf dýrt að koma til Íslands. Ferðamenn eru ekki að koma hingað eins og þeir koma til Alicante til að fá ódýran bjór og liggja í sólinni. Það er ekki mikil sól hérna og bjórinn verður aldrei ódýr. Við verðum bara að ganga út frá því,“ segir Þórdís. Eitt af því sem verið er að vinna þessa dagana eru þolmarkarann- sóknir, þar sem verið er að kanna efnahagsleg þolmörk, þolmörk á náttúruna, en líka samfélagsleg þolmörk. Þórdís segir að það muni reyna fyrst á samfélagslegu þol- mörkin en hins vegar þurfi líka að ræða það hvað ferðaþjónustan hafi gefið okkur. „Það er sagt að einn maður hafi bjargað okkur upp úr hruninu og það er ferðamaðurinn,“ segir Þórdís. Krónan setji strik í reikninginn Fjárlagafrumvarp fyrir 2018 gerir ráð fyrir því að ferðaþjónustutengd starf- semi verði færð úr neðra þrepi virðis- aukaskatts í hið almenna í upphafi árs 2019. Þau Sigmundur, Þórdís og Björt hafa ólíkar skoðanir á þessum fyrirætlununum. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki rétt að hækka virðisaukaskatt- inn á ferðaþjónustuna núna,“ segir Sigmundur og bætir við að ferða- þjónustan búi núna við sterka krónu og hætta sé á því að sá fókus sem verið hefur á Íslandi færist annað. Sigmundur leggur áherslu á að fjárfesta þurfi verulega í innviðum vegna þessa mikla vaxtar í ferða- þjónustunni. „Menn hafa eytt mörg- um árum í að ræða um það hvernig eigi að taka gjald af ferðamönnum og þá er kannski verið að tala um millj- arð hér og milljarð þar en líta á sama tíma fram hjá því að ferðamenn eru auðvitað að skila milljörðum og jafnvel tugum milljarða í ríkissjóð. Þetta er fjármagn sem ekki kæmi ef það væri ekki þessi mikli straumur ferðamanna. Þar af leiðandi væri eðlilegt að nýta eitthvað af því til að byggja upp innviði. En það þarf að gera meira en að laga salernisað- stöðu og göngustíga og slíkt,“ segir Sigmundur. Hann segir að stjórnvöld þurfi að búa til hvata fyrir verkefni sem eru þess eðlis að þau bæti við upplifun ferðamanna. Þar verði skipulagsyfir- völd að koma að en líka ríkisstjórn og Alþingi varðandi skattaumhverf- ið. „Þessir aðilar verða að stuðla að því að ferðaþjónustan geti nýtt með- byrinn núna til þess að byggja upp fjárfestingu til framtíðar og vonandi mun ferðaþjónustan þá halda áfram að skila okkur tekjum,“ segir Sig- mundur og bætir við að það sé ekki sjálfgefið að ferðamannastraumur- inn hingað til lands verði áfram eins og hann hefur verið. Þórdís og Sigmundur eru sammála um að stór hluti í framtíðarstefnu- mótun sé að nýta landið allt betur. „Og ef það tækist betur að fylgja því eftir sem við unnum að, að koma beinu flugi inn á Akureyri og Egils- staði þá myndi það náttúrlega strax hafa gríðarlega jákvæð áhrif,“ segir Sigmundur. Þórdís segir að það sé ekki spurn- ing hvort, heldur hvenær þetta ger- ist. Hingað til hafi verið unnið að þessu með Flugþróunarsjóði, en á endanum verði flugið að reka sig á markaðslegum forsendum. Ekkert „Back to the future-dæmi“ Björt segir það skipta miklu máli að atvinnulífið starfi á jafnréttisgrund- velli. „Það finnst mér mjög skiljanleg krafa, og ég tek undir hana, að ferða- þjónustan sé í hinu almenna skatt- þrepi,“ segir Björt. Kannanir hafa sýnt að allt upp undir 80 prósent ferðamanna koma hingað til þess að njóta náttúrunnar og Björt segir að við verðum að vanda okkur þegar kemur að ferðaþjónust- unni. „Kolefnisfótsporið okkar er að stækka og það er meira álag á landið út af ferðaþjónustunni. en við getum fundið leiðir og erum að finna leiðir til þess að höndla með það. Ég vil tala um framtíðarsýn í þessu sem er ekki það löng framtíðarsýn; rafbíla- væðingu samgangna. Bara það að túristarnir hætti að nýta sér þessa bílaleigubíla sem ganga fyrir jarð- efnaeldsneyti myndi skila rosalegum árangri í loftslagsmálum fyrir Ísland og fyrir náttúruna og við værum ekki að kaupa endalaust af jarðefnaelds- neyti úti í heimi. Við eigum að vera sjálfum okkur næg með orku. Þetta er nálæg framtíð og gæti gerst á næstu tíu árum,“ segir Björt. Þessir hlutir skipti máli og sjálfkeyrandi bílar skipti líka máli. „Það er ekki eitthvert Back to the future-dæmi,“ segir Björt. Opinberar stofnanir verði að huga að þessum málum. Þórdís segir mestu máli skipta að tekjur Íslendinga af ferðaþjónust- unni séu þegar gríðarlega miklar. Hún segist þó ekki útiloka það að í framtíðinni geti virðisaukaskattur á ferðaþjónustu færst upp í almennt þrep. En það sé ekki forgangsverkefni í hennar huga. „Þessi áform um að færa ferða- þjónustuna í hið almenna þrep voru ekki mín hugmynd. Þau urðu ekki til á mínu borði. Ég var upp- tekin í öðru og fyrir mér var þetta ekki stóra málið. Hins vegar er það þannig að þegar þú starfar í ríkis- stjórn þá gengur það út á að finna málamiðlanir og þegar ráðherrar leggja fram mál fer betur á því að ráðherrar vinni mál saman en reyni ekki að rífa hver annan niður,“ segir hún. Hinn stóri veikleiki þessara áforma sé sá að hækkun virðisauka- skatts komi misjafnlega niður á mis- munandi landsvæðum. „Það er himinn og haf sem skilur landsvæðin að,“ segir Þórdís og að nýtingin sé miklu minni á Vest- fjörðum, fyrir austan og fyrir norðan. Sveitarfélögin komi að borðinu Þau Þórdís, Sigmundur og Björt leggja öll áherslu á að sveitarfélögin taki virkan þátt í uppbyggingu ferða- þjónustunnar á sínum svæðum. Þór- dís bendir á að Alþingi hafi heimilað sveitarfélögum að leggja á bílastæða- gjöld í sínu landi. Þetta sé sjálfsagt mál í hennar huga. „Ég get ekki séð sanngirni í því að útsvarsgreiðendur í litlum sveitar- félögum séu að kosta bílastæði við náttúruperlur. Markmiðið er að gera sem flesta staði sjálfbæra, ekki bara út frá umhverfissjónarmiðum heldur líka efnahagslega. Það gerir þú með sérgjöldum sem eru þjónustugjöld; bílastæðagjöld, salernisgjöld eða gjöld fyrir hvers konar uppbyggingu sem þarf að fara í,“ segir Þórdís. „Þú gleypir ekkert fílinn í heilu lagi heldur tekurðu bita fyrir bita og sveitarfélögin verða að hafa mis- munandi tól sem þau nota á sínum forsendum,“ bætir hún við. Sum sveitarfélögin séu stór og með mörg gistirými en ekki náttúruperlur. Önnur sveitarfélög séu með náttúru- perlur en ekki gistingu og í slíkum til- fellum myndi gistináttagjaldið ekki nýtast þeim. Enn önnur sveitarfélög séu fámenn og þar sé erfitt að standa undir framkvæmdum og fjármagna þær. Ekki réttindi að búa í miðbænum Björt bendir á mikilvægi þess að ferðaþjónustan sé ný stoð í íslensku efnahagslífi og góð viðbót við sjávar útveg og orkusölu. „Ég held að Íslendingar átti sig á því að þetta var það sem bjargaði okkur upp úr hrun- inu. Hins vegar má sjá ruðningsáhrif af ferðaþjónustunni, meðal annars í því að leiga á íbúðum til ferðamanna dregur úr framboði á íbúðum fyrir unga kaupendur. „Það vantar framboð á íbúðum. Verðið hækkar út af skorti,“ segir Björt. Hins vegar þurfi íbúðakaup- endur á höfuðborgarsvæðinu að líta til fleiri staða en bara miðborgarinn- ar. Ég átti heima í miðbænum sem ung kona og vildi ekki eiga heima annars staðar,“ segir Björt. Þetta sé að breytast í stórborgum erlendis þar sem fólk leitar í úthverfi vegna mik- illa verðhækkana í miðborgunum. „Ég myndi líka vilja sjá það gerast í Reykjavík. Og það er að gerast hægt og hægt. En við verðum eiginlega líka að segja að það eru ekkert endilega mín mannréttindi, eða annarra, að búa á Grettisgötunni. Það eru frábær hverfi annars staðar í bænum, eins og bara í Breiðholti.“ Ferðamenn eru ekki að koma hingað eins og þeir koma til Alicante til að fá ódýran bjór og liggja í sólinni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir iðnaðar- ráðherra Það eru ekkert endilega mín mannréttindi, eða annarra, að búa á Grettisgötunni. Það eru frábær hverfi annars staðar í bænum, eins og bara í Breiðholti. Björt Ólafsdóttir umhverfisráð- herra Stjórnmálamenn hafa verið alltof hræddir við að taka ákvarð- anir eða gera eitthvað eða segja eitthvað sem orkar tvímælis eða gæti orðið umdeilt. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokks- ins 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E A -7 5 3 8 1 D E A -7 3 F C 1 D E A -7 2 C 0 1 D E A -7 1 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.