Fréttablaðið - 06.10.2017, Síða 62

Fréttablaðið - 06.10.2017, Síða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is TÓNLISTARMENN Zakki og Ísak PLAY FOLLOW Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna á Spotify undir notandanafninu Vísir. Föstudags- playlisti Lífsins Tónlistarmennirnir Zakarías Hermann Gunnarsson og Ísak Örn Guðmundsson úr hljómsveitinni Babies settu saman föstudagsplaylista Lífsins að þessu sinni. LAG FLYTJANDI You never knew HAIM All I Do Stevie Wonder Pony Ginuwine It´s Tricky Run DMC Vera Ég Geisha Runnig up That Hill Kate Bush On The Level Mac Demarco Saw the Light Todd Rundgren Drive The Cars Rasperry Beret Prince Þetta er fyrsti singúllinn af plötunni sem ég er að vinna núna – síðan er ég að spila á Stúdenta-kjallaranum á laugar-daginn og þar mun ég frumflytja það sem ég er komin með af plötunni,“ segir Ragna Kjartansdóttir, betur þekkt sem Cell7, en hún mun frumsýna glæ- nýtt myndband við nýjasta lagið sitt City Lights í kvöld. Á laugardaginn verða svo upphitunartónleikar fyrir Airwaves en þar spilar Cell7 ásamt Auði og Two Toucans. „Birgir Karl Auðunsson er mað- urinn bak við þetta myndband – hann er búinn að sinna mikilli klippivinnu fyrir þetta myndband og hann er eiginlega að gera allt varðandi það.“ Cell7 gaf út plötuna Cellf árið 2013 svo það má tala um ákveðna endurkomu frá henni núna. „Ég byrjaði að vinna að henni á síðasta ári – ég var ólétt þá og tók mér eiginlega svona fæðingarorlof. Það var svolítið strembið að vera með hálfan heila, ósofin og ólétt að vinna að rappplötu – þannig að ég var ekkert að drepa mig þá. Þetta kom nú bara svona mest á þessu ári, þá var aðeins meiri keyrsla. Þetta er komið hálfa leið hjá mér myndi ég segja. Ég er að vinna með nýjum pródúser sem heitir Helgi Lárusson og við erum búin að vera að gera allavega síðustu lög af plötunni, en svo er það hann Gnúsi Yones sem er að pródúsera þetta lag. Við gerðum auðvitað síðustu plötu saman, eða svona mestmegnis, þannig að þetta lag kemur eiginlega í beinu fram- haldi af henni.“ Þannig að þetta verður svolítið í svipuðum gír og síðast? „Nei, samt ekki. Mér finnst jafnvel mjög skrítið að fara í fyrri lögin mín því að hug- urinn er kominn á allt annan stað núna. Maður er að reyna að finna annað „sánd“, annan hljóðheim og pælingar. Þannig að mér finnst það persónulega aðeins öðruvísi. Það sem er enn þá meira öðruvísi er svo það sem ég er að gera með Helga – það er mjög frábrugðið fyrri plötunni.“ Hún segist vera komin með nokkrar gestasöngkonur á plötuna en ekki neina gestarappara enn sem komið er. Tónleikarnir á laugar- daginn verða svo ákveðið próf fyrir þessi nýju lög sem hún ætlar að taka þar. „Þegar maður byrjar að spila lögin sín sér maður hvernig fílingurinn er og hvort maður er að fara í rétta átt með lögin sín. Maður getur aldrei vitað það fyrr en maður spilar live og hvort og hvernig maður fílar sig í þeim aðstæðum.“ Myndbandið City Lights verður frumsýnt í kvöld klukkan tíu en síðan verða tónleikarnir í Stúdenta- kjallaranum klukkan níu á laugar- dagskvöld. stefanthor@frettabladid.is Cell7 er komin aftur Cell7, sem var meðal annars í hinni goðsagnakenndu rappsveit Sub- terranean, frumsýnir glænýtt lag og myndband af komandi plötu. Annað kvöld prufukeyrir hún svo nýtt efni í Stúdentakjallaranum. Ragna gaf út plötuna Cellf árið 2013 og er núna að gíra sig aftur í gang. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þegar maður byrjar að spila lögin sín sér maður hvernig Fílingurinn er og hvort maður er að Fara í rétta átt með lögin sín. maður getur aldrei vitað Það Fyrr en maður spilar live og hvort og hvernig maður Fílar sig í Þeim aðstæðum. gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is VAKÚMVÉLAR Mikið úrval af vakúmvélum sem henta einstaklingum og fyrirtækjum PÖKKUNARVÉLAR - BRETTAVAFNINGSVÉLAR - BINDIVÉLAR BAKKALOKUNARVÉLAR - FLÆÐIPÖKKUNARVÉLAR FILMUPÖKKUNARVÉLAR - KASSALOKUNARVÉLAR FÁÐU TILBOÐ Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur tannlæk nar mæla m eð GUM tannvör um ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum allar upplýsingar á www.icecare.is ára Starfsmanna- og munaskápar www.rymi.is Hágæða amerísk heilsurúm sem auðvelt er að elska Sofðu rótt í alla nótt 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r38 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E A -6 1 7 8 1 D E A -6 0 3 C 1 D E A -5 F 0 0 1 D E A -5 D C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.