Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 8
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
ALFA ROMEO STELVIO
EKKI BARA JEPPI. ALFA ROMEO.
SÝNING
LAUGARDAGINN
14. OKTÓBER
OPIÐ FRÁ 12 - 16
HEILBRIGÐISMÁL Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir telur að það geti
reynst nánast ómögulegt að finna
orsök þriggja listeríusýkinga sem
kostuðu þrjá lífið fyrr á þessu ári. Af
þeim sem létust var einn nýburi sem
lést í ágúst síðastliðnum og virðist
hafa sýkst í móðurkviði. Hinir tveir
voru eldri einstaklingar með undir
liggjandi alvarlega sjúkdóma sem
létust í maí og júní.
Greint var frá því í Farsóttafrétt
um, fréttabréfi sóttvarnalæknis, í
gær að það sem af er ári hafi sex
einstaklingar greinst með listeria
monocytogenes sem veldur listeríu
sýkingu, þar af móðir og nýburi.
Bakteríuna má finna í ógeril
sneyddri mjólk og afurðum hennar
og í hráum fiski. Sýkingin getur
verið skæð þeim sem eru með skert
ónæmiskerfi, nýburum og eldra
fólki. Engin tilfelli voru skráð árin
2015 og 2016. Fram kemur í Far
sóttafréttum að rannsókn á dauðs
föllunum standi yfir. Þórólfur er
þó ekki bjartsýnn. „Við héldum að
við gætum kannað þetta betur en
það er þannig með sýkingar sem
berast með matvælum að það þarf
að fara snemma af stað, fá vitneskj
una nánast strax og þetta gerist og
fara af stað með rannsóknir. En
það er eiginlega ekki hægt þegar
svona langt er liðið frá og ég held
að í þessum tilvikum sé það nánast
ómögulegt.“
Þórólfur segir að hlutfall látinna
af völdum sýkingarinnar á árinu sé
mjög há, eða 50 prósent af þeim til
fellum sem komið hafa upp.
„Það skiptir máli ef þeir sem sýkj
ast eru með undirliggjandi sjúkdóm
eða undirliggjandi vandamál sem
gera þá veikari fyrir. Það var þannig
í þessum tilfellum. Svo getur þetta
verið mjög alvarleg sýking hjá þung
uðum konum. Þar geta sýkingar
verið mjög bráðar og mjög hættu
legar eins og reyndist því miður vera
í þessu eina tilfelli þarna.“ – smj
Rannsókn á orsökum dauðsfalla nær ómöguleg
Þórólfur
Guðnason
sóttvarnalæknir
BLÖNDUÓS „Fæstir þéttbýlisstaðir á
Íslandi geta státað af slíkum bæjar
kjarna og því er mikilvægt að varð
veisla hans og uppbygging takist
vel til,“ segir í frétt á vef Blönduóss
þar sem boðað er til íbúafundar á
morgun til að ræða tillögu um að
gamli bæjarkjarninn á Blönduósi
verði gerður að „verndarsvæði í
byggð“ eins og þau eru skilgreind í
lögum frá 2105.
„Gamli bæjarhlutinn á Blöndu
ósi (innan ár) á sér langa sögu, sem
varðveitt er í gömlum húsakosti og
heildstæðu svipmóti byggðarinnar,“
segir á vef Blönduóss þar sem sagt er
frá hugsanlegri varðveislu bæjarhlut
ans. „Slíkt gæti falið í sér fjölbreytt
tækifæri fyrir íbúa á Blönduósi og
styrkt bæjarfélagið í heild sinni.“ – gar
Vilja varðveita
gamla bæinn
STJÓRNSÝSLA Íslenskir kjósendur
erlendis þurfa að leita til sendiráða
eða ræðismanna til að kjósa í kom
andi alþingiskosningum. Í Búlgaríu
munu þeir hitta fyrir Tsvetelinu
Borislavovu, sem gerð var að heið
ursræðismanni fyrir Ísland haustið
2006. Viðskiptasamband var með
henni og Björgólfi Thor Björgólfs
syni á umræddum tíma en þau áttu
saman búlgarska bankann Econo
mic and Investment Bank (EIBank).
Borislavova hefur þráfaldlega
verið orðuð við skipulagða glæpa
starfsemi í fjölmiðlum í Búlgaríu
og víðar. „Borislavova er klassískt
dæmi um það sem gerðist hér eftir
að kommúnisminn leið undir lok.
Þá var landið í rauninni tekið yfir
af skipulögðum glæpaklíkum. Við
skiptaelítan auðgaðist gríðarlega
á þessum árum með ólöglegum
aðferðum og keypti sér svo frið
helgi. Spillingin í Búlgaríu er mjög
mikil og dómskerfið er í molum
vegna þess,“ segir Atanas Tchob
anov, búlgarskur rannsóknarblaða
maður hjá Bivol.
Borislavova er fyrrverandi unn
usta Boykos Borisov, forsætisráð
herra Búlgaríu. Um hann og tengsl
hans við skipulagða glæpastarfsemi
hafa verið skrifaðir margir greina
flokkar, bæði í Búlgaríu og Banda
ríkjunum. Í leynilegum skeytum
til Leyniþjónustu Bandaríkjanna
(CIA) og fleiri stofnana, sem lekið
var á vefsíðu Wikileaks árið 2010,
lýsti John Beyrle, sendiherra Banda
ríkjanna í Búlgaríu, áhyggjum af
framgangi Boykos Borisov í stjórn
málum, en hann var borgarstjóri
Sofiu á umræddum tíma. Í skeyt
unum er farið yfir vafasama fortíð
Ræðismaður fyrir Ísland orðuð
við skipulagða glæpastarfsemi
Heiðursræðismaður Íslands í Búlgaríu, Tsvetelina Borislavova, sem var viðskiptafélagi Björgúlfs Thors
Björgúlfssonar, hefur ítrekað verið orðuð við peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Bandarísk
stjórnvöld voru vöruð við henni og fyrrverandi unnusta hennar, Boyko Borisov, forsætisráðherra Búlgaríu.
Við undirritun 200 milljóna evra styrks uppbyggingarsjóðs EES til Búlgaríu í desember 2016. Tsvetelina Borislavova
ræðismaður Íslands, Tove Westberg, sendiherra Noregs í Búlgaríu, og Tomislav Donchev, varaforsætisráðherra búlgaríu.
Borisovs og tengsl hans við skipu
lagða glæpastarfsemi. Vísað er til
Borislavovu í tveimur skeytum
frá árinu 2006, sama ári og hún er
gerð að heiðurskonsúl fyrir Ísland.
Í öðru þeirra segir að hún stjórni
stórum banka í Búlgaríu og hafi
verið sökuð um peningaþvætti fyrir
ýmis glæpasamtök. Í síðara skeytinu
lýsir Beyrle áhyggjum af starfsemi
bankans bæði vegna hæpinnar
lánastarfsemi og grunsamlegs upp
runa fjármuna Borisov sem renni í
gegnum bankann.
Borislavova er heiðursræðis
maður og þiggur ekki laun fyrir starf
sitt í þágu Íslands. Ræðismenn halda
utan um utankjörfundar atkvæði
í kosningum og sinna annarri
borgaraþjónustu fyrir Íslendinga í
Búlgaríu auk aðstoðar við viðskipta
tengsl milli ríkjanna.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu nýta sendiráð
tengsl í gistiríkinu til að fá ábending
ar um ákjósanlega aðila sem gegnt
gætu hlutverki ræðismanns. Meðal
ákjósanlegra eiginleika sem getið
er um í handbók um ræðismenn
(e. Manual for Honorary Consuls)
er að viðkomandi sé áreiðanlegur
einstaklingur sem njóti almennrar
virðingar í gistiríkinu.
Aðspurður segist Atanas ekki
sjá merki þess að Borislavova njóti
þeirrar virðingar í Búlgaríu sem
þarna er krafist, enda séu fortíð og
viðskiptahættir hennar vel þekkt
meðal allra sem fylgjast með fjöl
miðlum í Búlgaríu.
adalheidur@frettabladid.is
Fortíð og viðskipta-
hættir hennar eru
vel þekktir meðal allra sem
fylgjast með fjölmiðlum í
Búlgaríu.
Atanas Tchobanov
rannsóknarblaða-
maður
LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á
Vesturlandi stöðvaði í gær gjald
töku á vegum einkaaðila á vegi að
Hraunfossum og Barnafossi í Hvítá
í Borgarfirði. Var það gert að beiðni
Vegagerðarinnar.
Gjaldtaka hófst í lok síðustu viku
í trássi við nágranna og yfirvöld.
Umhverfisstofnun, Vegagerðin,
Borgarbyggð og fleiri töldu að gjald
takan stæðist ekki náttúruverndar
lög og vegalög. Aðstandendur gjald
tökunnar vísuðu öllu síku á bug og
ætluðu að halda henni til streitu.
Gjaldtakan var stöðvuð með
vísun í vegalög. Þjóðvegir séu opnir
almennri umferð og vegahaldari,
það er Vegagerðin, hafði ekki veitt
heimilt fyrir gjaldtökunni. Beindi
stofnunin því þeim tilmælum til
lögreglunnar að stöðva gjaldtökuna.
Lögreglan varð við þessari beiðni.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni á Vestur
landi segir enn fremur að hún telji
að gjaldtakan hafi verið til þess fallin
að skapa hættu við þjóðveginn. – bo
Stöðvuðu
gjaldtöku við
Hraunfossa
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-4
3
E
4
1
D
E
F
-4
2
A
8
1
D
E
F
-4
1
6
C
1
D
E
F
-4
0
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K