Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 10
SAMGÖNGUR Rúmlega helmingur
þeirra sem afstöðu taka segjast
ekki vera reiðubúnir til að greiða
vegtolla ef stofnbrautir frá Reykja-
vík verða tvöfaldaðar. Þetta kemur
fram í nýrri skoðanakönnun Frétta-
blaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Um 44
prósent segjast vera reiðubúin til
þess að greiða vegtolla. Munurinn
er vel umfram vikmörk sem er 3,44
prósent.
Samgöngu- og sveitarstjórna-
ráðherra hefur sagt nauðsynlegt
að leita annarra leiða en í ríkissjóð
til að fjármagna samgöngubætur á
höfuðborgarsvæðinu. „Verkefnin
eru mjög stór og knýjandi. Það er
alveg ljóst að ef við ætlum okkur
að ná alvöru átaki á næstu fimm
til tíu árum, sem um munar til að
ná í skottið á okkur í uppbyggingu
í vegakerfinu, munum við þurfa að
leita að mínu mati eftir fjármagni
annars staðar en úr ríkissjóði,“
sagði Jón Gunnarsson í samtali við
Stöð 2 hinn 13. júlí síðastliðinn.
Á þingmálaskrá ráðherrans, sem
opinberuð var þegar þing var sett
um miðjan september, var frum-
varp um stofnun félaga um vega-
framkvæmdir á stofnæðum frá
höfuðborgarsvæðinu.
Í Fréttablaðinu hinn 28. septem-
ber kom fram að kostnaður sam-
félagsins sem hlaust af umferðar-
slysum á helstu stofnæðum út frá
höfuðborgarsvæðinu var tæpir 16
milljarðar á árunum 2012 til 2016.
Tölur um þetta voru kynntar á
umferðarþingi sem fram fór á Sel-
fossi.
„Þessar tölur byggja á aðferða-
fræði sem áætlar kostnað sam-
félagsins frekar varlega,“ segir
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður
starfshóps sem fjallar um fjármögn-
un samgöngubóta. Tölurnar ná
yfir kostnað vegna starfa lögreglu,
slökkviliðs og sjúkraflutninga-
manna og kostnað vegna eigna-
tjóns, sjúkrahúskostnað, vinnutap
og þess háttar.
Könnunin var gerð þannig að
hringt var í 1.354 manns þar til
náðist í 800 samkvæmt lagskiptu
úrtaki 2. og 3. október. Svarhlut-
fallið var 59,1 prósent. Þátttakend-
ur voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir
búsetu og aldri. Spurt var: Ertu til-
búin(n) að greiða vegtolla ef stofn-
brautir frá Reykjavík verða tvöfald-
aðar? Alls tóku 86 prósent afstöðu,
13 prósent sögðust óákveðin en eitt
prósent svaraði ekki.
jonhakon@frettabladid.is
Rúmur helmingur
leggst gegn veggjöldum
Einungis tæplega helmingur svarenda í nýrri könnun væri til í að greiða vegtolla
fyrir samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Samgönguráðherra hefur sagt að
alvöru átak í samgöngum krefjist þess að leitað sé annað og víðar en í ríkissjóð.
Hvalfjarðargöngin voru opnuð hinn 11. júlí 1998 og hafa veggjöld verið innheimt þar frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
✿ Ertu tilbúin(n) að greiða veg-
tolla ef stofnbrautir frá Reykja-
vík verða tvöfaldaðar?
Já
Nei
56%
44%
Verkefnin eru mjög
stór og knýjandi.
Jón Gunnarsson, samgöngu- og
sveitastjórnarráðherra
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
sala@olafsson.is
LED lausnir frá
Lýsing við göngustíga
og á bílastæði
Ráðgjöf og nánari upplýsingar
má fá hjá sölumönnum.
Jóhann Ólafsson & Co
Ítölsk
hönnun
LLA-308
PRO álstigi 3x8 þrep
2,27-5,05 m
18.990
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Tröppur og stigar
LLA-211
PRO álstigi/trappa
2x11 þrep
16.990
Áltrappa 4 þrep 4.940
5 þrep 6.390
Áltrappa 3 þrep
3.990
Í ÖLLUM
STÆRÐUM
OG GERÐUM
A015-105
Áltrappa fyrir fagmaninn
m/vinnuborði. 5 þrep.
16.790
6 þrepa 19.750,-
7 þrepa 21.730,-
Finnski ísbrjóturinn
MSV Nordica
13. – 15. október
milli klukkan 10:00 – 14:00
Gamla Höfnin, Miðbakki
BOÐ TIL ALMENNINGS
MSV Nordica hefur siglt bæði norðaustur
og norðvestur leiðirnar í gegnum íshafið
og verður til sýnis fyrir almenning.
Ísbrjóturinn kemur í tilefni alþjóðaþings
Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle,
sem haldið er í Hörpu, 13.-15. október, 2017.
Allir velkomnir
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-3
E
F
4
1
D
E
F
-3
D
B
8
1
D
E
F
-3
C
7
C
1
D
E
F
-3
B
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K