Fréttablaðið - 10.10.2017, Page 13
S PÁN N Stjórnvöld í Frakk-
landi munu ekki viðurkenna sjálf-
stæði Katalóna frá Spáni fari svo að
héraðsstjórn þeirra lýsi því yfir á
næstu dögum.
Nathalie Loiseau, Evrópumála-
ráðherra Frakka, staðfesti þetta í
gær og ítrekaði skoðun stjórnvalda
í Frakklandi um að leysa þurfi deil-
una sem upp er komin með viðræð-
um milli katalónskra og spænskra
yfirvalda. Einhliða sjálfstæðisyfir-
lýsing muni jafngilda brottrekstri úr
Evrópusambandinu (ESB). Útlit er
fyrir að forseti heimastjórnar Kata-
lóníu, Carles Puigdemont, muni
ávarpa katalónska þingið í dag og
lýsa yfir sjálfstæði. – hg
Katalónar fá
ekki stuðning
frá Frökkum
BANDARÍKIN Donald Trump Banda-
ríkjaforseti lýsti í gær yfir ánægju
sinni með ákvörðun varaforsetans
Mike Pence um að yfirgefa leik í
bandarísku NFL-deildinni, ameríska
fótboltanum, á sunnudag. Trump
sagðist hafa hvatt Pence til að ganga
út ef leikmenn neituðu að standa á
meðan bandaríski þjóðsöngurinn
var leikinn.
Atvikið átti sér stað á leik Indi-
anapolis Colts og San Francisco
49ers í Indiana, heimaríki Pence.
Nokkrir leikmenn síðarnefnda
liðsins ákváðu þá að krjúpa á kné
og mótmæla þannig kynþáttahatri
og harkalegum lögregluaðgerðum
gegn minnihlutahópum í Banda-
ríkjunum. Pence sagðist í kjölfarið
ekki geta verið viðstaddur viðburð
þar sem hermenn landsins og fáni
væru virtir að vettugi. – hg
Trump ánægður
með Mike Pence
sem rauk á dyr
Donald Trump hvatti Pence til að
ganga út af leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Carles Puigdemont. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Mike Pence,
varaforseti
Bandaríkjanna
al.is
Öflug þjónusta
við leigjendur
Langtímaleiga
Sveigjanleiki
24/7 Þjónusta
Samstarf Almenna leigufélagsins og
Securitas tekur til allra íbúa félagsins.
Almenna leigufélagið býður viðskiptavinum sínum
upp á hátt þjónustustig, langtímaleigu og sveigjanleika.
Þannig tökum við þátt í að byggja upp faglegan
og traustan leigumarkað.
TYRKLAND Það andar köldu milli
Bandaríkjanna og Tyrklands þessa
dagana en bæði ríki hafa stöðvað
vegabréfsáritanir til ríkisborgara hins.
Tyrknesk yfirvöld biðluðu til þeirra
bandarísku að endurskoða ákvörðun
sína eftir að líran og hlutabréfamark-
aðir hríðféllu í verði við fréttirnar.
Deilurnar eiga rætur sínar að
rekja til ársins í fyrra þegar valda-
ránstilraun var gerð gegn Erdogan
forseta. Tilraunin var gerð af hluta
Tyrklandshers en 260 manns létust í
átökunum og að minnsta kosti 2.196
slösuðust.
Í kjölfarið fóru Tyrkir fram á að
klerkurinn Fethullah Gülen yrði
framseldur til landsins, frá Banda-
ríkjunum, en yfirvöld í Tyrklandi
telja hann hafa staðið að baki valda-
ránstilrauninni.
Bandaríkjamenn hafa hins vegar
ekki viljað framselja klerkinn án
sannanna þar að lútandi, þrátt fyrir
formlega beiðni frá Tyrklandsforseta.
Gülen, sem býr í borginni Saylors-
burgh í Bandaríkjunum, neitar allri
aðild.
Í kjölfar valdaránstilraunarinnar
voru þúsundir manna handteknar
grunaðar um að tengjast byltingar-
tilrauninni. Þeirra á meðal voru
bandarískir ríkisborgarar. Þá hefur
ekki bætt úr skák að Bandaríkin
hafa stutt ýmsar sjálfstæðishreyf-
ingar Kúrda.
Upp úr sauð síðan í síðustu
viku þegar Tyrkir handtóku Metin
Topuz, tyrkneskan ríkisborgara sem
starfaði í sendiráði Bandaríkjanna í
Istanbúl. Var hann sakaður um að
vera tengdur samtökum klerksins
Gülens.
Bandaríkjamenn brugðust við
handtökunni á sunnudag með því
að hætta að veita vegabréfsáritanir
frá Tyrklandi. Skömmu síðar brugð-
ust Tyrkir við með sömu aðgerð.
Mikil óvissa ríkir varðandi hvað
framtíðin ber í skauti sér í sam-
skiptum ríkjanna. Staðan er hins
vegar nánast óþekkt enda hafa
löndin tvö, Bandaríkin og Tyrk-
land, verið bandamenn lengi. Báðar
þjóðir eru í NATO en þær eiga tvo
fjölmennustu heri í bandalaginu.
Erdogan hefur gegnt embætti
forseta Tyrklands frá árinu 2014,
en var forsætisráðherra frá árinu
2003. – jóe
Andar köldu milli Bandaríkjanna og Tyrklands
Deilan snýst meðal annars um
Fethullah Gülen en Bandaríkjamenn
hafa neitað að framselja hann til
Tyrklands. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-1
C
6
4
1
D
E
F
-1
B
2
8
1
D
E
F
-1
9
E
C
1
D
E
F
-1
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K