Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 16
Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LÍFIÐ: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
Karlalands-
liðið hefur nú
fært okkur
aðra sögu í
ríkulegan
sagnaarf
okkar.
Í einfaldleika sínum eru íþróttir heillandi fyrirbæri. Þetta á sannarlega við í tilfelli fót-boltans þar sem ellefu leikmenn mæta jafn mörgum á rétthyrndum velli og freista þess að koma knetti í markið hjá hinum. Reglurn-ar í fótbolta eru 17 talsins, ekki fleiri en það.
Það er í þessum einfaldleika sem töfrarnir eiga sér
stað og við sáum þessa galdra eiga sér stað á Laugar-
dalsvelli í gær þegar íslensku leikmennirnir unnu
sem ein heild, innan ramma reglnanna, og tryggðu
sér þátttökurétt á Heimsmeistaramóti landsliða í
knattspyrnu. Það var ástríða þeirra, hæfileikar og
liðsheild, sem tryggðu þeim sigur.
Til góðs eða ills þá eru íþróttir rótgróinn hluti af
samfélagi mannanna. Við vitum að fornmenn öttu
kappi í grösugum hæðum fyrir fimmtán þúsund
árum á svæði sem í dag er kennt við Lascaux í Frakk-
landi. Þeir sem fylgdust með kapphlaupinu hrifust
svo af að þeir ristu og máluðu myndir af hetjunum.
Í dag er í raun ómögulegt að ímynda sér samfélag
án íþrótta. Í þeim sjáum við hvers megnug við erum,
hvert andlegt þrek okkar er, hve sterk við raunveru-
lega erum. Við sjáum hvernig einstaklingur, eða
hópur einstaklinga, getur gert eitthvað sem áður
þótti ómögulegt. Jafnvel eitthvað sem þótti aðeins á
færi guðanna.
Þannig endurtaka ævafornar sögur sig í íþrótt-
unum og við erum minnt á ákveðin grunngildi sem
skilgreina okkar nútíma samfélag. Í árangri karla- og
kvennalandsliðanna er nefnilega að finna kunnug-
legt stef þar sem hetjurnar svara kalli ævintýrsins
og þurfa að etja við ofurefli áður en þær snúa heim
á ný. Þessar hetjur snúa heim sem breyttar mann-
eskjur, ögn fróðari um heiminn.
Það má margt læra af velgengni karlalandsliðsins
í fótbolta, en í grunninn sýnir þessi árangur fram á
mikilvægi samheldninnar, og það á öllum stigum
samfélagsins. Sem ein heild er liðið margfalt betra
en stakir hlutar þess. Þessi samtakamáttur er okkur
lífsnauðsynlegur. Hann leggur línurnar í þeim
verkefnum sem við tökum okkur fyrir hendur og
sker úr um það hvort okkur heppnast ætlunarverkið
eða ekki.
Það sama á við um samfélag okkar, þar sem við
lútum öll sömu reglum en kappkostum að auðga og
bæta tilvist okkar innan þess ramma sem við höfum
í sameiningu sett okkur. Og við þekkjum það mæta
vel hvað það getur gert okkur þegar reglurnar, skrif-
aðar og óskrifaðar, eru brotnar á kostnað annarra.
Goðsögurnar eru stór hluti af því mikla verkefni
að styrkja samfélag okkar. Þær blása mönnum
móð í brjóst og gera okkur vongóð um framhaldið.
Karlalandsliðið hefur nú fært okkur aðra slíka sögu
í ríkulegan sagnaarf okkar. Þessi gjöf strákanna er
dýrmætari en nokkur bikar, og við stöndum í ævin-
legri þakkarskuld við þá. Áfram Ísland!
Ómetanleg
gjöf strákanna
Græni flokkurinn
Rósa Björk Brynjólfsdóttir
var í samtali við Vísi í gær um
kosningabaráttuna. Rósa segir
flokkinn leggja áherslu á heil-
brigðismál, byggingu nýs spítala
og sálfræðiþjónustu í framhalds-
skólum. Það ber að fagna þessum
áherslumálum hjá frambjóðanda
flokks sem lítur út fyrir að verði
í lykilstöðu eftir kosningar. Hins
vegar segir Rósa að flokkurinn
sé á móti því að almenningur
borgi fyrir að njóta náttúrunnar,
en tali fyrir komugjöldum og
gistináttagjaldi. Það er miður ef
talsmaður græns flokks er á móti
gjaldtöku við viðkvæmar nátt-
úruperlur. Því gjaldtakan er ein-
mitt ein forsenda þess að stýra
ágangi að þeim og vernda þær.
Takk strákar
Það hefur verið ótrúlegt að
fylgjast með íslenska karla-
landsliðinu í fótbolta undan-
farið. Þeir hættu ekki eftir glæsta
frammistöðu á EM heldur héldu
áfram að leggja sig fram og unnu
sér þátttökurétt á HM í knatt-
spyrnu í gær. Í samfélagi sem við
Íslendingar búum við, í pólitísku
landslagi þar sem fullkomið van-
traust ríkir og karpað nánast upp
á hvern einasta dag er gríðarlegt
fagnaðarefni að við getum fundið
sameiningartákn í íþróttafólkinu
okkar. Og kannski verðum við
einhvern tímann jafn stolt af
stjórnmálamönnunum okkar og
knattspyrnumönnunum. Takk
strákar! jonhakon@frettabladid.is
Almenn eining ríkir um að gera þurfi betur í heil-brigðismálum. Þverpólitísk sátt náðist á Alþingi í vor þegar samþykkt var þingsályktunartillaga
Framsóknarflokks um gerð heilbrigðisáætlunar. Þrjú
verkefni þola ekki bið. Hjúkrunarheimilum þarf að
fjölga, reisa þarf þjóðarsjúkrahús og efla þarf heilsugæslu.
Fjölga hjúkrunarheimilum: Sjúklingar liggja lengur
inni á Landspítalanum (LSH) en gengur og gerist annars
staðar. Reisa verður fleiri hjúkrunarheimili til að fækka
biðsjúklingum á LSH. Stór fjöldi sjúklinga sem lokið
hefur meðferð bíður eftir því að komast að á hjúkrunar-
heimili. Legudeildarpláss er dýrara en pláss á öldrunar-
stofnun og það fer ekki eins vel um þessa sjúklinga á LSH,
þar sem áreitið er meira. Það er hagur allra að bæta úr á
þessu sviði og fellur undir heildstæða heilbrigðisáætlun.
Framtíðarþjóðarsjúkrahúsið: Ein stærsta og merkileg-
asta framkvæmd á teikniborðinu er þjóðarsjúkrahúsið.
Þjóðin eldist og þörfin eykst fyrir fyrsta flokks þjónustu.
Þjóðarsjúkrahús á að vera miðsvæðis á höfuðborgar-
svæðinu þar sem rými er fyrir stækkun í tímans rás.
Ljóst er að fyrirhuguð uppbygging við Hringbraut byggir
á margra ára gömlum hugmyndum og þarfagreiningu
sem er hugsanlega ekki í takt við þarfir framtíðar. Mestu
skiptir að nýtt sjúkrahús uppfylli þarfir þjóðarinnar.
Eflum heilsugæslu: Ráðgjafafyrirtækið McKinsey vann
úttekt um heilbrigðiskerfið haustið 2016. Heilbrigðiskerf-
ið byggir á nokkrum samhangandi þáttum, m.a. heilsu-
gæslu, sérfræðilæknum, LSH og hjúkrunarheimilum. Skil
milli þessara þátta eru óljós. Sjúklingar liggja lengur á
sjúkrahúsum hér en annars staðar, sérfræðilæknar gætu
læknað sjúklinga sem heldur leita til LSH og heilsugæsl-
an ætti að annast sjúklinga sem leita lækninga annars
staðar í kerfinu. Með öðrum orðum vantar skipulag í
kerfið og hægt væri að veita sömu þjónustu á hagkvæm-
ari hátt. Ég vil nýta fjármunina sem sparast til að veita
betri þjónustu. Velferðarsamfélagið okkar krefst þess að
við gerum betur. Sýnum það í verki. Vinnum heildstæða
heilbrigðisáætlun fyrir Ísland.
Fyrsta flokks heilbrigðis-
þjónustu á Íslandi
2017
Lilja
Alfreðsdóttir
þingmaður Fram-
sóknarflokksins
Velferðarsam-
félagið okkar
krefst þess að
við gerum
betur. Sýnum
það í verki.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-0
3
B
4
1
D
E
F
-0
2
7
8
1
D
E
F
-0
1
3
C
1
D
E
F
-0
0
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K