Fréttablaðið - 10.10.2017, Qupperneq 17
Nú er verið að kjósa enn og aftur og stjórnmálaflokkarnir hafa valið sína frambjóðendur.
Ef við skoðum aldur alþingismanna
í gegnum tíðina, má sjá að það er
frekar sjaldgæft að fólk sem komið er
á efri ár sitji á þingi. Kannski einn og
einn. Nú er það hins vegar svo að fólk
eldist og lifir lengur en áður. Og það
við góða heilsu með reynslu, þekk-
ingu og starfsorku. Ég er þeirrar skoð-
unar, með allri virðingu fyrir yngra
fólki, að á löggjafarþinginu eigi að
fjölga alþingismönnum, konum sem
körlum, sem komin eru til ára sinna
og geta miðlað af reynslu sinni út frá
sjónarhorni langrar lífsgöngu.
Ég, væntanlega sem formaður
eldri borgara í Reykjavík, var beðinn
um að gefa kost á mér, á framboðs-
listum, sjálfsagt vegna þess að málefni
eldri borgara hafa verið í sviðsljósinu
Alþingi þarf að endurspegla þjóðina
Ellert B. Schram
4. sæti í Reykja-
vík Suður, á lista
Samfylkingar-
innar
2017 undanfarna mánuði. Umræða um hag eldri borgara, kjör og þátttöku þeirra
í landsmálum hefur verið opinská
og áberandi. Ég hef orðið við þeirri
beiðni Samfylkingarinnar í Reykjavík
að taka fjórða sæti á framboðslista
hennar, ekki síst með það í huga að
aldraðir eigi erindi á Alþingi, að elsta
kynslóðin eigi sína fulltrúa og raddir
í stjórnmálavafstrinu, í lagasetningu,
umræðum og atkvæðagreiðslum, sem
snerta hag landsmanna og fullorðinna.
Eldri borgarar eru rúmlega fjörutíu
þúsund talsins og auðvitað eiga þeir
að eiga sína talsmenn á þingi. Með alla
sína reynslu. Er ekki einmitt kominn
tími til að brjóta þennan aldursmúr?
Vekja stjórnmálaflokka til umhugs-
unar um þennan fjölda eldri borgara
sem hafa bæði elju og vit, til að standa
vörð um hagsmuni elstu kynslóðar-
innar. Hvað þá um aðrar ákvarðanir,
sem snerta lífið og tilveruna.
Ekki það að ég sé kominn alla leið á
þing, þótt ég sé á framboðslista. Kjós-
endur ráða því. En með framboði mínu
vil ég sýna í verki, að karlar og konur,
komin á efri ár, eigi fullt erindi inn á
Alþingi, svo að þeim kveði og rödd
þeirra heyrist. Alþingi þarf að endur-
spegla þjóðina. Allir aldursflokkar,
konur og karlar, eiga að taka þátt í
umræðum og ákvörðunum sem varða
fólkið í landinu
Ég leyfi mér að fullyrða að mál-
efni sem varða eldri borgara, hafa
mörg hver gleymst, verið vanrækt og
afskrifuð og það veitir ekki af, svo það
sé sagt, að brjóta ísinn, gefa kost á sér,
vera með, sýna fram á og minna á, að
við, elsta kynslóðin, erum ekki komin
fram yfir síðasta söludag.
Eldri borgarar eru rúmlega
fjörutíu þúsund talsins og
auðvitað eiga þeir að eiga
sína talsmenn á þingi. Með
alla sína reynslu.
Mörgum landsmönnum blöskraði nýlega frétt um að erfingjar Nóbelsskáldsins
ættu að borga himinháan skatt af
áætluðu virði höfundarréttar. Það er
ekki að undra því þarna fara saman
tvær hæpnar skattareglur. Í fyrsta lagi
er hæpið að ríkið gleypi eignir í dánar-
búum og í öðru lagi er galið að áætlað
verðmæti eignar myndi skattstofn. Í
þessu tilfelli var um að ræða eign sem
ekki var seld í tengslum við andlát og
því engu greiðsluflæði eða söluhagn-
aði til að dreifa.
Fasteignaskattur á Íslandi grund-
vallast á jafn undarlegum skattstofni.
Það er talið réttlæta skattahækkun
að eign hafi hækkað í verði þó svo
not af eigninni hafi ekkert breyst og
skattþegninn hafi ekki bætt við sig
tekjum. Opinberum stofnunum er
falið að áætla söluverðmæti eignar og
síðan er stjórnvöldum gefið veiðileyfi
í samræmi við það. Það er undir duttl-
ungum sveitarstjórna hvort og hvernig
þau útfæra veiðileyfið, til dæmis með
því að skattleggja mismunandi eftir
aldri eigenda. Í afkomu sumra fyrir-
tækja, til dæmis Hörpu tónlistarhúss,
er tekjuflæðið aukastærð og fasteigna-
skattur aðalstærð. Í bæjum eins og
Húsavík og Keflavík getur hækkun
fasteignaverðs vegna þess að fjölgun
íbúa spennir upp fasteignaverð hækk-
að skatta á íbúana sem fyrir eru og eiga
sér einskis ills von.
Spakmæli segir að það sem aðgreini
hinn viti borna mann frá dýrum sé
hæfnin til að læra af eigin mistökum
og að gáfaður maður geti lært af mis-
tökum annarra. Fyrir hrunið 2008
höfðu íslensk sveitarfélög blásið út
skattstofna sína með skattlagningu á
eignabólu húsnæðis. Mörg erlend ríki
hafa rofið tengsl skattlagningar eigna
við áætlað verðmæti þeirra. Geta
Íslendingar lært af mistökum sínum
frá árunum fyrir 2008? Í ljósi reynsl-
unnar má efast um hæfni þeirra til að
læra af reynslu annarra þjóða. Ætla
einhverjir stjórnmálamenn að vera
gáfaðir og laga þetta á næsta kjör-
tímabili? Hver er staða eignarréttar í
stjórnarskránni?
Skaðlegir
skattstofnar
Helgi
Tómasson
prófessor í hag-
rannsóknum og
tölfræði
Mánudaginn 16. október standa Íbúðalánasjóður og
velferðarráðuneytið fyrir fyrsta árlega húsnæðisþinginu
hér á landi. Þingið verður haldið á Hilton Nordica við
Suðurlandsbraut frá kl. 10:00–16:30.
Vinnustofur
10:00 Fundarstjóri opnar daginn
Brynja Þorgeirsdóttir, fundarstjóri
10:05 Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
Sigrún Ásta Magnúsdóttir, verkefnastjóri
húsnæðisáætlana hjá ÍLS
10:25 Umræður í sal
10:50 Kahlé
11:00 Húsnæðissáttmáli:
Aðgerðir í húsnæðismálum
Guðrún Ingvarsdóttir, verkefnastjóri
Húsnæðissáttmála hjá velferðarráðuneytinu
11:15 Byggingagátt:
Hvers vegna, hvenær og hvernig?
Jón Guðmundsson, fagstjóri bygginga
hjá Mannvirkjastofnun
11:30 Hvernig fáum við sem
estar íbúðir
fyrir 80 milljarðana?
Elmar Erlendsson, byggingafræðingur
á húsnæðissviði ÍLS
11:40 Umræður í sal
12:00 Hádegishlé
Veitingar verða seldar á ráðstefnusvæðinu
og einnig er hægt að bóka borð á Vox
Húsnæðisþing
13:00 Opnunarávarp ráðherra húsnæðismála
Þorsteinn Víglundsson,
félags- og jafnréttismálaráðherra
13:15 Er aðgangur að húsnæði mannréttindi?
Hermann Jónasson, forstjóri ÍLS
13:55 Hvernig horr húsnæðisvandinn
við sveitarfélögum?
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga
14:10 Leigumarkaðurinn: Nauðsyn eða val?
Una Jónsdóttir, hagfræðingur í hagdeild ÍLS
14:30 Að komast yr þröskuldinn:
Fólk talar um húsnæðisvandann
Örinnlegg frá einstaklingum sem hafa
staðið frammi fyrir húsnæðisvanda
14:50 Kahlé
15:05 Fólk með hamar og sög
Örinnlegg frá einstaklingum og félögum
sem eru að byggja
15:30 Umræður í sal
15:55 Samantekt fundarstjóra
16:00 Er vandinn að leysast?
Pallborðsumræður
16:30 Kokteill
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15Þ R I Ð J U D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-0
D
9
4
1
D
E
F
-0
C
5
8
1
D
E
F
-0
B
1
C
1
D
E
F
-0
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K