Fréttablaðið - 10.10.2017, Page 28
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Þórdís segist hafa farið í brjóstamyndatöku hjá Leitar-stöðinni í desember í fyrra
þar sem meinið greindist. Þetta
var síðasta myndatakan þar sem
Leitarstöðin hættir að boða konur
þegar þær hafa náð 69 ára aldri.
„Það var svolítið skrítið en þegar
ég mætti í myndatökuna fór ég að
hugsa um hvernig ég myndi bregð-
ast við ef eitthvað fyndist. Mér datt
samt ekki í hug að eitthvað væri
að mér enda fullfrísk. Þegar ég
var boðuð aftur í Leitarstöðina til
frekari rannsókna ákvað ég að taka
fréttunum með ró hvernig sem þær
yrðu. Þá fór ég í ástungu og fann
að hugurinn var ekki alveg rólegur
þótt ég léti líta þannig út á yfir-
borðinu. Ég var virkilega ákveðin
að láta engan bilbug á mér finna
þótt vissulega væri þetta áminn-
ing um að alvara væri á ferð,“ segir
Þórdís.
Tárin brutust fram
„Ég var boðuð í þriðja skiptið og
þá til að ræða við lækna. Ég var
fyrst spurð hvort ég hefði komið
ein á fundinn en þá fór nú svolítið
um mig. Hjúkrunarfræðingur tók
utan um axlirnar á mér og sagðist
geta verið með mér en ég hafði
ekki áttað mig á því að betra hefði
verið að hafa einhvern með sér
á fundinn. Þarna var naglinn ég
farin að bogna. Ég reyndi engu að
síður að standa mig vel. Læknarnir
tilkynntu mér að fundist hefði
mein í brjósti sem þyrfti að skera
burt. Fundurinn var ekki langur
en á heimleiðinni hugsaði ég með
mér, já, einmitt. Nú er ég komin á
þennan stað. Hvað verður næst?
Mér var vissulega brugðið en hef
lært það í lífinu að reyna að láta
ekki á slíku bera. Tárin brutust
samt fram þótt ég hefði ákveðið
innra með mér að þetta væri verk-
efni sem ég þyrfti að takast á við
með jákvæðni,“ segir Þórdís sem
greinilega er ekki vön að tala um
veikindi sín.
Frekari rannsóknir leiddu í ljós
að meinið var verra en hún hafði
búist við. „Ég fékk fréttirnar á
Þorláksmessu,“ segir Þórdís sem
starfar á Landspítalanum og hafði
boðið eiginmanni sínum, Konráð
Fjeldsted, í skötuveislu í vinnunni.
„Ég segi stundum í gríni að brjóstið
hafi farið með síðasta bitanum af
skötunni,“ segir hún. Það var ekki
fyrr en í febrúar sem Þórdís fór í
brjóstnám. „Ég vann öll jólin og
reyndi að gleyma sjúkdómnum.
Mér líður vel í vinnunni og þykir
vænt um samstarfsfélaga mína.
Þetta er álagsdeild, lokuð deild
þar sem eru heilabilaðir einstakl-
ingar. Að vinna með góðu fólki
dreifir huganum. Það er gríðarlega
dýrmætt þegar maður gengur í
gegnum svona erfitt ferli að vera
umvafinn kærleiksríkum og skiln-
ingsríkum vinnufélögum.“
Drep í húðinni
Þegar brjóstið var fjarlægt var
ákveðið að gera uppbyggingu í
leiðinni. Það voru Jens Kjartansson
lýtalæknir og Þorvaldur Jónsson
skurðlæknir sem komu að aðgerð-
inni en sérstakur vefjaþenjari
var settur undir húðina. „Hálfum
mánuði eftir aðgerðina leit sárið
ekki vel út og komið svart drep í
húðina. Ég þurfti því að fara í aðra
aðgerð þar sem vefjaþenjarinn var
fjarlægður. Það tók sinn tíma fyrir
sárið að gróa sem var ansi ljótt.
Ég fór í Pollýönnuleikinn á fullu,
þakkaði fyrir að meinið væri farið
og ég þurfti ekki að fara í geisla.
Eftir þessa lífsreynslu ákvað ég að
gera eitthvað skemmtilegt. Ég fór í
þrjár utanlandsferðir og heimsótti
vinafólk í Englandi, Þýskalandi og
Danmörku. Það gerði mér mjög
gott,“ segir Þórdís sem byrjaði aftur
í vinnu í júní eftir veikindaleyfi.
„Núna er ég aftur byrjuð í upp-
byggingaferli hjá Jens sem gengur
mjög vel,“ segir Þórdís.
Missti ekki hárið
Þótt hún hafi losnað við lyfja- og
geislameðferð þar sem meinið var
allt skorið burtu, þarf hún engu
að síður að taka hormónabælandi
lyf. „Ég var tekin af hormónalyfi
sem ég hafði tekið inn í nokkur
ár vegna tíðahvarfa. Ég fékk því
breytingaskeiðið tvöfalt í hausinn
með tilheyrandi svitakófi. Krabba-
meinið sem ég fékk er hormóna-
tengt. Ég tel mig heppna að hafa
ekki þurft að fara í lyfjameðferð né
heldur missa hárið. Þessi veikindi
hafa þroskað mig og eflt í mér
baráttuandann.“
Dásamlegt starfsfólk
Þórdís segir að hún hafi verið
greind með þunglyndi þegar hún
var 46 ára. „Það kenndi mér meðal
annars að svefninn er afar mikil-
vægur til að halda geðheilsunni í
lagi. Ég leitaði mér strax stuðnings
eftir að ég greindist með krabba-
mein og aflaði mér alls kyns upp-
lýsinga á netinu. Í leiðinni skoðaði
ég hvað væri í boði fyrir fólk sem
greinist með svona alvarlegan
sjúkdóm. Þar sá ég að ráðgjöf væri
í boði hjá Krabbameinsfélaginu
og ákvað að panta tíma. Þannig
komst ég í dásamlegt utanum-
hald hjá Lóu Björk Ólafsdóttur
hjúkrunarfræðingi þar sem ég
fékk að rasa út og grenja úr mér
augun. Einnig hitti ég Þorra Snæ-
björnsson sálfræðing sem var mér
mjög dýrmætt. Ég get ekki nóg-
samlega lofað það hversu frábært
það er að hafa svona bakland.
Þeir sem greinast ættu ekki að
hika við að nota þessa þjónustu í
Skógarhlíð og hjá Ljósinu. Einnig
verð ég að minnast á félaga mína
í Boðunarkirkjunni í Hafnarfirði.
Frá því ég var 38 ára hef ég átt
lifandi trú sem þýðir að ég fór að
lesa Biblíuna sem rannsóknarefni
með innihald sem ætti erindi inn
í mitt líf. Ég er enn að læra og hef
verið virk í söfnuðinum. Trúin
getur gefið kjark og óttaleysi. Þá
voru þeir Þorvaldur læknir og
Jens einstaklega nærfærnir og
elskulegir. Sömu sögu má segja
um Þóri S. Njálsson, lýtalækni á
Brjóstamóttökunni. Það er aldrei
ofmetið hve mikilvægt það er að
læknir sem hefur líf þitt og heilsu
í hendi sér sýni hlýju og virðingu
í samskiptum. Ég er óendanlega
þakklát fyrir allt þetta fólk, bæði á
Brjóstamóttökunni á Landspítal-
anum og í Skógarhlíð.“
Með bjartsýnina að vopni
Þórdís tók stúdentspróf 62 ára auk
þess að útskrifast sem sjúkraliði.
„Mér fannst ég skulda sjálfri mér
hvíta húfu. Að ljúka einhverjum
áfanga var mér dýrmætt þótt seint
væri. Það er aldrei of seint að bæta
við sig menntun eða þekkingu.
Mitt mottó er að gefast aldrei upp.
Ég á þrjú uppkomin börn og sjö
barnabörn. Það er fullt af fallegu
og skemmtilegu fólki í kringum
mig.“
Þórdís og eiginmaður hennar,
Konráð, giftu sig árið 2004. Hann
var ekkjumaður en fyrri kona
hans lést úr krabbameini. „Hann
er yfirvegaður og rólegur, tryggur
vinur sem alltaf er til staðar. Ég
hef engu að síður forðast að væla
í honum,“ segir Þórdís. „Bata-
horfur krabbameinssjúkra eru
alltaf að batna og ég kvíði engu en
vissulega er mikið áfall að veikjast.
Ég legg áherslu á hollt og gott
mataræði en mætti vera duglegri
í ræktinni. Ég er þakklát fyrir þá
hjálp sem ég hef fengið, lífið er
ekki búið þótt maður greinist með
krabbamein. Maður velur sjálfur
hvernig brugðist er við mótlæti í
lífinu,“ segir Þórdís.
Eiginmaður hennar, Konráð,
segist vera viss um að Þórdís eigi
eftir að ná sér að fullu. „Við erum
alltaf bjartsýn,“ segir hann. Bata-
horfur eru mun meiri núna en
þegar fyrri kona hans, Anna Soffía
Jóhannsdóttir, veiktist. „Hún
barðist við krabbann í níu ár og
við vorum alltaf í mikilli afneit-
un,“ segir hann. „Við Þórdís erum
opnari gagnvart sjúkdómnum og
samstíga. Það sem bjargar mér í
gegnum þetta er trú mín á Jesú.
Þetta eru erfiðir tímar á meðan
þetta stendur yfir en við stöndum
þetta af okkur,“ segir hann.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Framhald á síðu 2 ➛
Þórdís hefur allt frá því hún greindist tekist á við sjúkdóminn með jákvæðni
að leiðarljósi. MYND/ERNIR
DAG LEG
A
BÚ
IÐ TIL TERIYAKI KJÚKLINGUR
MEÐ HVERJUM KEYPTUM BAKKA AF RÚLLU MÁNAÐARINS FYLGIR
1/2 LÍTRI AF KRISTAL MEÐ LÍMÓNU- OG JARÐARBERJABRAGÐI.
BAKKI
MÁNAÐARINS!
AF HVERJUM SELDUM
BAKKA RENNA 100 KR
TIL BLEIKU SLAUFUNNAR
2 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-3
5
1
4
1
D
E
F
-3
3
D
8
1
D
E
F
-3
2
9
C
1
D
E
F
-3
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K