Fréttablaðið - 10.10.2017, Side 32
Ása Gunnlaugsdóttir gullsmiður hannaði Bleiku slaufuna í ár. MYND/VILHELM
Ég hafði ljóðlínur Einars Ben í huga, „Bros getur dimmu í dagsljós breytt“ og vann
slaufuna út frá orðunum Hlýja,
væntumþykja og stuðningur. Þetta
eru atriði sem skipta máli þegar
einstaklingur greinist með krabba-
mein,“ segir Ása Gunnlaugsdóttir,
gullsmiður en hún er höfundur
Bleiku slaufunnar í ár. Samkeppni
um hönnun slaufunnar er haldin
af Krabbameinsfélagi Íslands og
Félagi gullsmiða, nú í sjötta sinn
og var tillaga Ásu valin úr níu inn-
sendum tillögum.
Slaufa Ásu hverfist utan um
bleikan stein.
„Slaufan umlykur steininn og er
eins og stuðningur kringum hann,
eins og þarf að vera ef einhver er
veikur,“ útskýrir Ása. „Steinninn er
aðalatriði og slaufan sjálf látlaus.
Hann er fyrir miðju og hönnunin
er einnig vísun í að það skiptir máli
að hugsa inn á við. Þá er formið
á steininum dropalaga og vísar í
tár sem eflaust falla oft á þessum
stundum.“
Ása hefur starfað sem hönnuður
á Íslandi, Finnlandi og í S-Kóreu
og setti á fót eigið verkstæði, ASA
árið 2009. Þetta er í fyrsta sinn sem
Ása sendir tillögu í samkeppnina
um Bleiku slaufuna. Hugmyndin
féll vel að
áherslum
Krabba-
meinsfélags-
ins í ár en
söfnunarfénu
verður varið í
ráðgjafarþjón-
ustu Krabba-
meinsfélagsins.
„Formið á
slaufunni þróaðist
eitthvað þegar
kom að lokaút-
færslu og urðu
að lokum tvær
aðskildar vörur,
næla sem flestir
kaupa og hálsmen
úr silfri sem fram-
leitt er í takmörkuðu
upplagi. Þá bættist við
skemmtilegt verkefni
en Krabbameinsfélagið
fól mér að aðlaga eina
útgáfu af slaufunni sem
hægt er að hengja við
Rubs armböndin, en
þau eru hluti af átakinu
í ár. Þetta hefur verið afar
skemmtilegt ferli og heiður að hafa
verið valin. Mér finnst frábært að
geta lagt eitthvað af mörkum. Það
fylgir því góð tilfinning.“
Vísun í
væntumþykju
og stuðning
Ása Gunnlaugsdóttir, gullsmiður er höfundur Bleiku
slaufunnar í ár. Stuðningur, hlýja og væntumþykja
eru skilaboðin að baki hönnuninni.
Baby Foot er stoltur
styrktaraðili Bleiku Slaufunnar
Baby Foot er fótaumhirðuvara sem fjarlægjir dauðar húðfrumur
og harða húð, þannig að fæturnir verða silkimjúkir.
af hverri seldri
pakkningu renna
til Bleiku
Slaufunnar
200 kr.
202620211976 20162011200620011996199119861981
5000
10000
15000
20000
✿ Fjöldi einstaklinga á lífi eftir krabbameinsgreiningu
Laufey (lengst til hægri) ásamt öðru starfsfólki Krabbameinsskrár.
Tæplega 14.000 manns voru á lífi eftir krabbameinsgrein-ingu á Íslandi um áramótin
2015/2016, heldur fleiri konur en
karlar. Af þessum 14.000 höfðu yfir
8.000 greinst 10 árum áður eða fyrr.
Að sögn Laufeyjar Tryggvadóttur,
framkvæmdastjóra Krabbameins-
skrár Krabbameinsfélagsins, má
reikna með að meirihluti hópsins
sé læknaður en jafnframt að hluti
hópsins þurfi enn á heilbrigðis-
þjónustu og ráðgjöf að halda.
Áætlað er að yfir 18.000 einstakl-
ingar sem fengið hafa krabbameins-
greiningu verði á lífi árið 2026.
Einn af hverjum þremur
Íslendingum greinist með krabba-
mein á lífsleiðinni en horfur þeirra
sem greinast hafa batnað jafnt og
þétt frá því að Krabbameinsfélag
Íslands hóf að skrá öll krabbamein
þjóðarinnar fyrir 60 árum. „Þá dóu
yfir 75 prósent innan fimm ára frá
greiningu en nú er ástandið gjör-
breytt og aðeins tæp 30 prósent
deyja innan fimm ára. Staðan er því
orðin þannig að flestir annaðhvort
læknast eða lifa lengi með sjúk-
dóminn,“ segir Laufey.
Margar skýringar eru á batnandi
horfum krabbameinssjúklinga. Þær
veigamestu eru stór stígar framfarir í
meðferð og mikil aukning í snemm-
greiningu. „Hið síðarnefnda tengist
skipulagðri leit að krabbameinum
og bættri greiningartækni. Þá hefur
bætt næringarástand og betra
heilsufar almennings, sem tengist
meðal annars því hve mikið hefur
dregið úr reykingum síðustu ára-
tugi, jákvæð áhrif á horfur krabba-
meinsgreindra.
Hægt er að nálgast margvíslegan
fróðleik um lífshorfur, orsakir,
einkenni, greiningar og meðferðir
allra helstu tegunda krabbameina
á krabb.is.
Hröð fjölgun einstaklinga sem lifa
lengi eftir krabbameinsgreiningu
6 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-0
D
9
4
1
D
E
F
-0
C
5
8
1
D
E
F
-0
B
1
C
1
D
E
F
-0
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K