Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 34
Það breytist margt í sam-bandi við kynlíf og nánd þegar kona fær krabbamein.
Við vitum að það geta orðið
breytingar á nánd, missir á kyn-
löngun og ýmiss konar erfiðleikar
í sambandi við kynörvun, og ef
ekkert er að gert geta kynlífs-
tengdir erfiðleikar þróast út í
langvinnan kynlífsvanda. Við
viljum helst koma í veg fyrir það,“
segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir,
sem nú vinnur að rannsóknar-
verkefni sem ber titilinn: Þróun
meðferðarúrræða fyrir konur
með krabbamein og maka, og
áhrif samræðna og aðlögun tengd
kynlífi og nánd. Verkefnið er hluti
af doktorsnámi Jónu Ingibjargar.
„Þetta er pararannsókn þar
sem konan er með krabbamein,“
útskýrir Jóna Ingibjörg en úrtakið
er tilviljunarkennt. „Ég leita að
áttatíu pörum og er þegar byrjuð
að tala við pör. Ég er með til-
raunahóp og samanburðarhóp
og pörin draga sjálf um í hvorum
hópnum þau lenda. Pörin sem
lenda í samanburðarhópnum
fá alveg sömu meðferð en byrja
hana aðeins seinna og þannig
getur maður borið saman hvort
munur sé á þeim sem fara strax
í meðferðina og þeim sem bíða
aðeins.“
Rannsóknin felst í þremur sam-
tölum með parinu og aðgangi að
fræðslu sem geymd er inni á læstu
vefsvæði um kynferðislegar auka-
verkanir krabbameinsmeðferða
og helstu úrræði.
„Upplýsingarnar á vefsvæðinu
eru byggðar á gagnreyndri þekk-
ingu. Á netinu er nefnilega hægt
að finna aragrúa upplýsinga en
fólk veit ekki hverju má treysta.
Því set ég þetta fram á einfaldan
en traustverðugan hátt þannig að
upplýsingunum megi treysta.“
Jóna Ingibjörg talar við konur
með allar gerðir krabbameins.
„Krabbamein eitt og sér getur
haft mikil áhrif á kynlíf og það
eru ekki síst krabbameinsmeð-
ferðirnar sjálfar sem hafa áhrif
á kynlíf og nánd; skurðaðgerðir,
geislameðferðir, krabbameinslyf
og andhormónameðferðir. Óbein
áhrif krabbameinsmeðferðar geta
líka haft áhrif, eins og áhyggjur yfir
daglegu lífi og fjárhag, breytingar
í sambandi við atvinnuþátttöku,
kvíði, óvissa, depurð, þreyta og
slen. Einnig skiptir staðsetning og
útbreiðsla sjúkdómsins máli en
rannsóknarspurning mín snýst um
hvort meðferðin, sem ég er að þróa
og meta, hjálpi konum og mökum
þeirra að takast á við breytingar
sem verða á kynlífi og nánd í kjöl-
far krabbameins og þá sérstaklega
í kjölfar krabbameinsmeðferðar.“
Niðurstöðurnar munu nýtast
á margan hátt, að sögn Jónu Ingi-
bjargar.
„Þarna verður til ný þekking
á nýrri meðferð og hvernig hún
hjálpar. Þetta hefur ekki verið
rannsakað áður á meðal kvenna
en niðurstöðurnar gefa okkur
upplýsingar um hverjar fræðslu-
og stuðningsþarfir kvenna með
krabbamein eru í sambandi við
kynlíf og nánd.“
Hjúkrunarfræðingar og geisla-
fræðingar á fjórum samstarfs-
deildum Landspítala kynna
rannsóknina fyrir mögulegum
þátttakendum sem uppfylla inn-
tökuskilyrðin.
„Konurnar kynna svo rann-
sóknina fyrir mökum sínum og
spyrja hvort hann eða hún vilji
taka þátt. Þau skrifa svo undir
upplýst samþykki sem ég fæ í
hendur og nú þegar er ég komin
með sex pör, en ég þarf áttatíu,
sem vonandi tekst,“ segir Jóna
Ingibjörg.
Rannsóknin er opin öllum
konum sem uppfylla inntöku-
skilyrði.
„Ef konan býr á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, er í krabbameins-
meðferð á Landspítala, í nánu
sambandi og orðin 18 ára, er
henni velkomið að leita sér
nánari upplýsinga um þátttöku,“
segir Jóna Ingibjörg.
Í vor hlaut hún styrk frá
Vísindasjóði KÍ.
„Styrkurinn er ómetanlegur
og gerir mér kleift að hafa minni
áhyggjur af fjárhagslegum útlát-
um. Fyrir utan launakostnað eru
ótal hlutir sem útheimta fjármuni
í tengslum við rannsóknina, eins
og tölfræðileg úrvinnsla, þýðingar
og prentun spurningalista. Ég er
því afar þakklát.“
Breyting á kynlífi og nánd
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, vinnur nú að doktorsverkefni sínu um
þróun meðferðarúrræða fyrir konur með krabbamein og maka þeirra, tengd kynlífi og nánd.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, með Erlu Kolbrúnu Svavarsdóttur, prófessor og leiðbeinanda sínum í doktorsnáminu. MYND/ANTON BRINK
Science through nature
Liljonia
Mjúk hylki við óþægindum í leggöngum.
florealis.com
Rosonia
Froða við óþægindum á kynfærasvæði.
8 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-1
2
8
4
1
D
E
F
-1
1
4
8
1
D
E
F
-1
0
0
C
1
D
E
F
-0
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K