Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 44
FÓTBOLTI „Það er svolítið erfitt
að tala núna því maður hugsar
bara í tilfinningum en ekkert með
hausnum,“ sagði sigurreifur og
glaður Heimir Hallgrímsson, þjálfari
íslenska landsliðsins í fótbolta, eftir
sigurinn á Kósóvó í gærkvöldi sem
fleytti strákunum okkar á HM 2018 í
Rússlandi. Ísland á HM í fyrsta sinn.
Íslensku strákarnir tóku I-riðilinn
með trompi og enduðu í efsta sæti.
Riðilinn má auðveldlega kalla þann
sterkasta í allri undankeppninni.
„Fyrst og fremst er ég stoltur af
strákunum. Við erum búnir að
hrósa þeim fyrir samheldni og góða
liðsheild í þessu verkefni og sérstak-
lega fólkinu í kringum liðið. Svo ef
við tökum þetta enn þá lengra hafa
stuðningsmennirnir verið geggj-
aður,“ sagði Heimir og hélt áfram:
Ótrúlega stoltur
„Ég er ótrúlega stoltur yfir að vera
hluti af þessum geggjaða hópi sem
er að afreka eitthvað sem ég held að
við skiljum ekki alveg hvað er stórt.
Ég held ég sé bara að segja einhverja
bölvaða þvælu en ég er aðallega
ótrúlega stoltur.“
Það voru ekki allir sem bjuggust
við því að íslenska liðið gæti endur-
tekið fyrri árangur enda liðið að ná
ótrúlegum hæðum á EM á síðasta
ári.
„Ég vissi að þetta yrði erfitt því
það er alltaf erfitt að byrja aftur
eftir velgengni. Leikmenn náðu sér
virkilega ekki á strik með sínum
félagsliðum þannig að við vorum
Var hvattur til að hætta
Heimir Hallgrímsson kom Íslandi á Heimsmeistaramótið í fótbolta í gærkvöldi,
fyrstur manna. Eftir allt partíið sem var í kringum EM í fyrra hvöttu meira að
segja hans nánustu Eyjamanninn til að láta gott heita og gera eitthvað annað.
Markaskorararnir Jóhann Berg og Gylfi fagna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Þjóðirnar 17 sem eru
komnar á HM 2018
Evrópa (8 af 13): Rússland,
Belgía, Þýskaland, England,
Spánn, Pólland, Ísland og Serbía.
Suður-Ameríka (1 af 4): Brasilía.
Asía (4 af 4): Íran, Japan, Suður-
Kórea, Sádi-Arabía.
Norður og Mið-Ameríka: (2 af
3): Mexíkó, Kosta Ríka.
Afríka (2 af 5): Nígería, Egypta-
land.
Að auki verða tvö umspilssæti í
keppni milli álfa.
í basli til að byrja með en náðum
samt úrslitum. Ég var samt alveg viss
um að þetta ár yrði betra heldur en
í fyrra vegna þess að við komumst
í gegnum síðasta ár,“ sagði Heimir.
Hefur haft kjark og þor
Eyjamaðurinn tók miklum fram-
förum sjálfur sem þjálfari í þessari
keppni en það voru ekki allir vissir
um að hann gæti haldið áfram að ná
góðum árangri án Lars Lagerbäck og
hvað þá að gera liðið betra. Hann
hefur haft kjark og þor til að gera
breytingar og flestar hafa virkað
eins og staða liðsins endurspeglar.
„Ég er gríðarlega stoltur af þeim
ákvörðunum sem ég hef tekið en ég
er ekki einn að taka þær. Við rífumst
oft um þetta. Auðvitað hefur fleira
heppnast heldur en ekki. Staða
okkar segir það,“ sagði Heimir, sem
var meira að segja hvattur til þess að
láta gott heita með íslenska liðið og
ekki taka áhættuna á að fara með
allt í vaskinn.
Hafði bullandi trú
„Það voru margir sem sögðu mér að
taka ekki við liðinu eftir alla þessa
velgengni og þetta risastóra partí
sem var í Frakklandi. Ég var spurður
af hverju ég tæki ekki bara spila-
peningana og færi að gera eitthvað
annað. Það var fólk sem stóð mér
nærri sem hvatti mig til að hætta en
ég hafði bullandi trú á að við gætum
tekið þetta lengra. Þetta lið er orðið
betra en það var. Það er bara allt
sem segir það; allur árangur. Við
erum að vinna HM-riðil sem var
sá sterkasti í þessari undankeppni.
Við erum að gera verulega margt
rétt,“ sagði Heimir Hallgrímsson.
tomas@365.is
Vilt þú vinna áritaðan skó
frá Gylfa Sigurðssyni!
Ísbúðin Hafis ætlar að gefa áritaða skó frá Gylfa Sigurðsyni
Til að vera með og eiga möguleika á að
vinna, þarf að fara á Facebooksíðu Hafís
og lika og deila með opnum prófil.
Ísbúðin Hafís • Bæjarhrauni 2 • Hafnarfirði
Ég hafði bullandi
trú á að við gætum
tekið þetta lengra.
Þetta lið er
orðið betra en
það var.
Heimir
Hallgrímsson
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-3
5
1
4
1
D
E
F
-3
3
D
8
1
D
E
F
-3
2
9
C
1
D
E
F
-3
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K