Fréttablaðið - 10.10.2017, Side 62
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAKÞANKAR
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Mér þykir Spánn óskaplega spennandi eins og hann er með sín þrjú tungumál og
óteljandi mállýskur. Svo er það þessi
margfrægi núningur milli borga
og landshluta sem virkar á mig
eins og uppörvandi andstæða við
einsleitnina í mínu heimalandi þar
sem Stór-Reykjavíkursvæðið er alfa,
ómega og amen eftir efninu.
Mér þykir líka óendanlega vænt
um lýðræðið þannig að ég hef lengi
verið að vonast eftir því að íbúar
Katalóníu fái að ákveða framtíð sína
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er því
nokkuð daufur í dálkinn þessa dag-
ana þegar ýmislegt bendir til þess að
Katalónía sverji sig frá Spáni án þess
að Katalóníumenn fái að útkljá það
mál með lýðræðislegum hætti.
Þá ber þess fyrst að geta að „þjóð-
aratkvæðagreiðslan“ sem fór fram
þann fyrsta þessa mánaðar stendur
ekki undir nafni en það var síður en
svo lýðræðislega að henni staðið.
Hún var undirbúin með leyndar-
hyggju og af þvermóðsku; lög um
hana samþykkt með ónægum meiri-
hluta og stór hluti Katalóníumanna
taldi hana fúsk og sat því heima.
Til að bæta gráu ofan á svart mætti
Rajoy forsætisráðherra þessu með
þjóðaröryggislögreglunni, grárri
fyrir járnum, svo úr varð hin hræði-
legasta niðurlæging fyrir gjörvalla
þjóðina. Það sorglega í þessu er að
líklegast myndi hann leggja drög
að alvöru þjóðaratkvæðagreiðslu í
Katalóníu ef hreðjum og lýðræðis-
vitund væri fyrir að fara. Það ætlar
því að vera þvergirðingsháttur
stjórnmálamanna sem tvinna örlög
Katalóníu og eflaust munu stórfyrir-
tæki og bankar hafa sitt að segja en
íbúarnir fá engu um ráðið.
En til hvers er ég nú að masa
þetta? Jú, svo að fólk vandi sig nú við
að kjósa því, eins og dæmin sanna,
getur það leitt hinar bestu þjóðir í
hrikaleg öngstræti þegar kosnir eru
forhertir ónytjungar til forystu.
Gráttu fyrir mig
Katalónía
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI, ARNARBAKKA,
GLÆSIBÆ OG STAÐARBERGI
FOSSBERG
bæklingur fylgir
Fréttablaðinu í dag.
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-1
7
7
4
1
D
E
F
-1
6
3
8
1
D
E
F
-1
4
F
C
1
D
E
F
-1
3
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K