Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 2
Vikublað 21.–23. febrúar 20172 Fréttir
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
kjúklinga
vefjur og borgarar
Fordæmir rafmagnsofn
Eldsmiðjunnar
Í
mínum huga eru þetta vörusvik
eða að minnsta kosti villandi mark-
aðssetning,“ segir Eyjólfur Karl Eyj-
ólfsson, fyrrverandi viðskiptavinur
Eldsmiðjunnar. Eyjólfur Karl býr
við hliðina á útibúi keðjunnar á
Bragagötu og segist hafa verið við-
skiptavinur fyrst um sinn. Allt hafi
hins vegar breyst til verri vegar þegar
Foodco hf. keypti keðjuna. „Þá settu
þeir upp rafmagnsofn, sem er ekki í
augsýn viðskiptavina, sem varð þess
valdandi að pizzurnar urðu þurrar
og óspennandi,“ segir Eyjólfur Karl á
Facebook-síðu sinni og birti mynd af
ofninum til staðfestingar.
Talsmaður Eldsmiðjunnar svaraði
kvörtun Eyjólfs á þá leið að rafmagns-
ofninn hafi verið í notkun frá upphafi
á staðnum og væri aðeins notaður
þegar mesta
álagið er á
veitingastaðn-
um. Þá eru píts-
urnar forbakaðar í
rafmagnsofninum en síðan kláraðar
í eldofninum. Þess ber að geta Eld-
smiðjan auglýsir grimmt að staðurinn
noti eingöngu alvöru eldofna og ís-
lenskt birki úr Hallormsstaðaskógi við
baksturinn. Á heimasíðu fyrirtækisins
má lesa: „Það krefst kunnáttu að eld-
baka pizzu því þar eru engin færibönd
eða stafrænir, sjálfstýrðir hitablásar-
ar, heldur aðeins reynsla og þekking
pizzubakarans sem sér um að þú
fáir pizzuna rjúkandi heita, brakandi
stökka og bragðmikla úr eldofninum.
Alvöru handverk eins og það hefur
verið stundað frá upphafi.“ n
VG mælast
stærst
Vinstri græn eru stærsti flokkur
landsins samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun MMR. Tæp 35 prósent
aðspurðra segjast styðja ríkis-
stjórnina.
Skoðanakönnunin var gerð
dagana 10. til 15. febrúar og var
heildarfjöldi svarenda 904. Vinstri
græn mælast með 27 prósenta
stuðning sem er sama hlutfall og í
síðustu könnun fyrirtækisins sem
lauk 5. febrúar síðastliðinn. Sjálf-
stæðisflokkurinn er næststærstur
og mælist með um 24,4 prósenta
fylgi, litlu meira en í síðustu
könnun. Munurinn milli flokk-
anna tveggja er ekki marktækur.
Fylgi Pírata dregst lítillega
saman og mælist nú 11,9 prósent.
Framsóknarflokkurinn mælis
með 10,7 prósent, Samfylkingin
með 10 prósent, Viðreisn með 6,2
prósent og Björt framtíð með 5,4
prósent.
Með barnaklám
í vélinni
Karlmaður hefur verið dæmdur
til þess að greiða 200 hundruð
þúsund krónur í sekt, eða sæta
14 daga fangelsi, fyrir kynferðis-
brot. Maðurinn var handtekinn
í október síðastliðnum en hann
reyndist vera með bæði myndir
og myndbönd sem innihéldu
barnaklám í vörslu sinni. Dómur
féll í Héraðsdómi Norðurlands
eystra síðastliðinn föstudag.
Lögreglu bárust í september
síðastliðnum upplýsingar um
að maðurinn væri með gróft
barnaklám í tölvu sinni. Í kjölfarið
haldlagði lögreglan tölvu manns-
ins og flakkara. Í tölvu mannsins
fundust 40 klámfengnar mynd-
ir og ein myndbandaskrá. Um var
að ræða myndir og myndskeið af
börnum sem sýnd voru á kynferð-
islegan og klámfenginn hátt eða
sams konar myndir af einstakling-
um sem orðnir voru 18 ára, sem
voru í hlutverki barns.
„Vil ekki bíða eftir að
þetta gerist aftur“
n Hróp gerð að Christian og hann eltur n Biður fólk um að setja sig í spor fatlaðra
M
ér hefur alltaf fundist
magnað að búa í samfé-
lagi þar sem strákurinn
minn, svona viðkvæm-
ur og opinn fyrir stríðni
eins og hann er, getur farið út um allt
óáreittur,“ segir Sigríður Aðalsteins-
dóttir, móðir hins þrítuga Christ-
ians Bjarka en Christian glímir við
fæðingargalla auk þess sem hann
er greindur með einhverfu. Í kjölfar
þess að Christian Bjarki varð fyrir að-
kasti og stríðni af hálfu ókunnugra
ritaði Sigríður hugvekju á Facebook-
síðu sína þar sem hún hvatti fólk til
að sýna nærgætni í samskiptum sín-
um við þá sem eru minni máttar.
Christian Bjarki er mörgum
kunnur í litla samfélaginu á Akureyri.
Hann býr í dag á íbúðarsambýli og
fer flestra sinna ferða án aðstoðar
annarra. Í samtali við blaðamann
segir Sigríður að undanfarið hafi
nokkur atvik átt sér stað þar sem
einstaklingar hafi kallað og hrópað á
eftir syni hennar úti á götu, og jafn-
vel tekið upp á því að elta hann á
bíl. Sumir flokka þetta kannski sem
fíflagang eða stríðni, líkt og Sigríður
bendir á, en svo er ekki í augum
Christians Bjarka sem tekur hlutina
oft afar bókstaflega.
„Þessi hegðun hjá fólki getur
sett allt úr skorðum hjá honum og
valdið því að hann verður afskaplega
órólegur og kvíðinn og spennist allur
upp.“
Sigríður sá sig knúna til að tjá sig
um málið og vekja fólk til umhugs-
unar.
„Ég vissi að ef ég myndi vekja
athygli á þessu á Facebook þá myndi
boðskapurinn ná til réttra aðila. Þó
svo að þetta sé kannski einangrað
tilvik þá vil ég ekki bíða eftir því að
þetta gerist aftur,“ segir hún og bætir
við að henni hafi hreinlega vöknað
um augu þegar hún sá hversu gífur-
lega jákvæð og góð viðbrögð færsla
hennar fékk. Í athugasemdum er
Christian Bjarka meðal annars lýst
sem yndislegum og brosmildum
ungum manni og „algjörum
demanti“.
Sigríður segir Christian vissulega
sérstakan í framkomu en það hafi
sjaldnast valdið nokkrum vand-
ræðum. Þvert á móti sé hann hvers
manns hugljúfi.
„Ég fer til dæmis aldrei með hann
út í búð án þess að hann fari að heilsa
öllum í kringum sig. Það þykir öllum
vænt um hann. Christian er mikill
húmoristi og bara dásamlegur strák-
ur sem vill öllum vel, en getur verið
mikill prakkari þegar þannig liggur á
honum.“
Margir ljósir punktar
Sigríður bendir á að það
ekki megi hunsa það já-
kvæða sem hefur átt sér
stað í málefnum fatlaðra
á undanförnum árum.
Hún nefnir sem dæmi um-
boðsmenn fatlaðra í hverj-
um landsfjórðungi, auk
þess sem rödd fólks með
þroskahömlun heyrist
nú betur en áður, meðal
annars í gegnum sjón-
varpsþættina „Með okkar
augum“.
Hún vill koma á framfæri þökk-
um til allra þeirra sem sent hafa hlý-
legar kveðjur undanfarna daga:
„Við drengina sem óku framhjá
honum og hrópuðu að honum vil
ég segja þetta: „Sumir fatlaðir eru
með þroska á við lítil börn þó að þeir
gangi um götur og líti út fyrir að vera
bara dálítið „ skrýtnir“. Þessir einstak-
lingar eru berskjaldaðir og varnar-
lausir gagnvart fullheilbrigðum
einstaklingum. Flest höfum við ein-
hvern tímann á lífsleiðinni strítt og
kannski sært fólk ómeðvitað á yngri
árum. Refsingin fyrir það er sú að
maður gleymir ekki eigin framkomu.
Það besta sem þið gerið ef þið haf-
ið hugsað ykkur að stríða fötluðu
fólki til að hræða það: reynið að setja
ykkur í þeirra spor. Verum góð hvert
við annað.“ n
Mæðgin Christian er mjög sjálfstæður og
fer flestra sinna ferða án aðstoðar.
„ Christian
er mikill
húmoristi og bara
dásamlegur strákur.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is