Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 6
Vikublað 21.–23. febrúar 20176 Fréttir
Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum
iP
one í úrvali
Erum flutt á Grensásveg 14
Allskyns
aukahlutir
Grensásvegur 14
s: 534 1400
Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast
Harðræði gegn fötluðum
ekki aðeins fortíðarvandi
Óli Hilmar varð vitni að óforsvaranlegri framkomu konu gagnvart stúlku með Downs-heilkenni
Þ
essi nöturlega reynsla sýndi
mér að það er ekki bara
langt aftur í fortíðinni sem
varnarlaus börn verða fyrir
illri meðferð. Það er að ger-
ast líka í dag,“ segir Óli Hilmar Briem
Jónsson arkitekt í samtali við DV um
atvik sem rifjaðist upp fyrir honum á
ný í umfjöllun um skýrslu vistheim-
ilanefndar um aðstæður barna á
Kópavogshæli. Það var fyrir tæpum
tveimur árum í Fossvogskirkju-
garði sem Óli Hilmar hafði afskipti
af konu sem gekk hart fram og með
svívirðingum gagnvart ungri fatlaðri
stúlku. Atvikið fékk mikið á hann og
sýndi honum að sögn að ekki sé vert
að álíta að ill framkoma í garð fatl-
aðra barna sé bundin við fyrri tíma,
slíkt eigi sér einnig stað í dag, þó að
vonandi heyri það til undantekn-
inga. En eitt skipti sé of mikið.
Heyrði óp og grát
„Ég var á rölti í Fossvogskirkjugarði
þar sem ég hafði verið að setja blóm
á leiði og var einn á ferð. Veður
var hryssingslegt og gekk á með
skúrum. Allt í einu heyrði ég óp og
grát. Ég varð hissa og rann á hljóðið.
Þegar ég nálgaðist ólætin sá ég glitta
í tvær manneskjur í gegnum runna.
Önnur, sú stærri, hrinti hinni minni
áfram á undan sér og danglaði í
hana öðru hverju. Þess á milli jós
hún yfir hana ókvæðisorðum,“ segir
Óli Hilmar sem kveðst á sínum tíma
hafa skrifað atvikið hjá sér með það
fyrir augum að vekja á því athygli.
Það sé honum því í fersku minni.
Hrollvekjandi uppgötvun
„Sú minni reyndi að flýta sér en
það gekk hægt því hún var með
snúna fætur. Ég starði forviða á
þetta í augnablik en flýtti mér svo
á vettvang og spurði þá stærri, sem
var kona um tvítugt á að giska, hvort
henni þætti rétt að koma svona
fram.“
Óli Hilmar segir að konunni hafi
augljóslega brugðið að sjá hann
koma þarna að en hafi tjáð honum
að stelpan „væri svo óþæg“.
„Ég gekk til litlu stúlkunnar, sem
mér sýndist vera um 10 ára, til að
kanna hvort hún væri ómeidd. Hún
var blaut, köld og með ekkasog og
þorði ekki að líta upp. Það var þá
sem ég sá að hún var með Downs-
heilkenni.“
Nísti inn að hjarta
Óli Hilmar segir að það hafi
níst hann inn að hjarta
að sjá þetta. Hann hafi
tjáð konunni, sem
hann gerði ráð fyrir að
væri einhvers konar
gæslumaður á heim-
ili fyrir fatlaða, að
hún gæti ekki komið
svona fram við stúlk-
una. Hann hafi því næst
spurt hvort
hann mætti
gefa stúlk-
unni
súkkulaðibita sem hann var með
í vasanum en fengið þau svör að
„þau mættu ekki fá sælgæti“.
„Ég sá að ég gat ekkert meira gert
en áminnti þá eldri að koma fram
við stúlkuna af meiri manngæsku.
Hún kvaðst ætla að gera það og von-
andi stóð hún við þau orð.“
Ekki bara fortíðarvandi
Óli Hilmar kveðst hafa lesið það
úr atburðarásinni að stúlkan hefði
annaðhvort villst úr hópi sem verið
hafði í gönguferð í garðinum eða
hreinlega stungið af og starfsmað-
urinn orðið svona reiður.
Hann kveðst fyrst hafa ætlað að
gera meira úr málinu, rita grein
í blöðin en hætt við það.
Reynslan hafi hins vegar
síðar kennt honum að ill
meðferð á börnum sem
þessum væri ekki bara for-
tíðarvandi á Íslandi.
„Það er ekki að efa að
svona meðferð á fötluðum
og þroskaskertum heyri til
undantekninga, en
eitt skipti er einu
skipti of mikið.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Þess á milli jós
hún yfir hana
ókvæðisorðum.
Fossvogskirkjugarður Óli Hilmar segir að sjónin hafi níst inn að hjarta.
Óli Hilmar
Briem
Jónsson
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á
góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Sportgleraugu
Red Bull sólgleraugu
kr. 14.950,-
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is