Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Page 6
Vikublað 21.–23. febrúar 20176 Fréttir Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum iP one í úrvali Erum flutt á Grensásveg 14 Allskyns aukahlutir Grensásvegur 14 s: 534 1400 Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast Harðræði gegn fötluðum ekki aðeins fortíðarvandi Óli Hilmar varð vitni að óforsvaranlegri framkomu konu gagnvart stúlku með Downs-heilkenni Þ essi nöturlega reynsla sýndi mér að það er ekki bara langt aftur í fortíðinni sem varnarlaus börn verða fyrir illri meðferð. Það er að ger- ast líka í dag,“ segir Óli Hilmar Briem Jónsson arkitekt í samtali við DV um atvik sem rifjaðist upp fyrir honum á ný í umfjöllun um skýrslu vistheim- ilanefndar um aðstæður barna á Kópavogshæli. Það var fyrir tæpum tveimur árum í Fossvogskirkju- garði sem Óli Hilmar hafði afskipti af konu sem gekk hart fram og með svívirðingum gagnvart ungri fatlaðri stúlku. Atvikið fékk mikið á hann og sýndi honum að sögn að ekki sé vert að álíta að ill framkoma í garð fatl- aðra barna sé bundin við fyrri tíma, slíkt eigi sér einnig stað í dag, þó að vonandi heyri það til undantekn- inga. En eitt skipti sé of mikið. Heyrði óp og grát „Ég var á rölti í Fossvogskirkjugarði þar sem ég hafði verið að setja blóm á leiði og var einn á ferð. Veður var hryssingslegt og gekk á með skúrum. Allt í einu heyrði ég óp og grát. Ég varð hissa og rann á hljóðið. Þegar ég nálgaðist ólætin sá ég glitta í tvær manneskjur í gegnum runna. Önnur, sú stærri, hrinti hinni minni áfram á undan sér og danglaði í hana öðru hverju. Þess á milli jós hún yfir hana ókvæðisorðum,“ segir Óli Hilmar sem kveðst á sínum tíma hafa skrifað atvikið hjá sér með það fyrir augum að vekja á því athygli. Það sé honum því í fersku minni. Hrollvekjandi uppgötvun „Sú minni reyndi að flýta sér en það gekk hægt því hún var með snúna fætur. Ég starði forviða á þetta í augnablik en flýtti mér svo á vettvang og spurði þá stærri, sem var kona um tvítugt á að giska, hvort henni þætti rétt að koma svona fram.“ Óli Hilmar segir að konunni hafi augljóslega brugðið að sjá hann koma þarna að en hafi tjáð honum að stelpan „væri svo óþæg“. „Ég gekk til litlu stúlkunnar, sem mér sýndist vera um 10 ára, til að kanna hvort hún væri ómeidd. Hún var blaut, köld og með ekkasog og þorði ekki að líta upp. Það var þá sem ég sá að hún var með Downs- heilkenni.“ Nísti inn að hjarta Óli Hilmar segir að það hafi níst hann inn að hjarta að sjá þetta. Hann hafi tjáð konunni, sem hann gerði ráð fyrir að væri einhvers konar gæslumaður á heim- ili fyrir fatlaða, að hún gæti ekki komið svona fram við stúlk- una. Hann hafi því næst spurt hvort hann mætti gefa stúlk- unni súkkulaðibita sem hann var með í vasanum en fengið þau svör að „þau mættu ekki fá sælgæti“. „Ég sá að ég gat ekkert meira gert en áminnti þá eldri að koma fram við stúlkuna af meiri manngæsku. Hún kvaðst ætla að gera það og von- andi stóð hún við þau orð.“ Ekki bara fortíðarvandi Óli Hilmar kveðst hafa lesið það úr atburðarásinni að stúlkan hefði annaðhvort villst úr hópi sem verið hafði í gönguferð í garðinum eða hreinlega stungið af og starfsmað- urinn orðið svona reiður. Hann kveðst fyrst hafa ætlað að gera meira úr málinu, rita grein í blöðin en hætt við það. Reynslan hafi hins vegar síðar kennt honum að ill meðferð á börnum sem þessum væri ekki bara for- tíðarvandi á Íslandi. „Það er ekki að efa að svona meðferð á fötluðum og þroskaskertum heyri til undantekninga, en eitt skipti er einu skipti of mikið.“ n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Þess á milli jós hún yfir hana ókvæðisorðum. Fossvogskirkjugarður Óli Hilmar segir að sjónin hafi níst inn að hjarta. Óli Hilmar Briem Jónsson Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Sportgleraugu Red Bull sólgleraugu kr. 14.950,- Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.