Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 16
Vikublað 21.–23. febrúar 201716 Fréttir Erlent
Skammvinn gleði
n Ögmundur leggur pólitískum fanga í Tyrklandi lið n Vildi rannsókn á fjöldamorðum
Á
föstudag fyrir rúmri viku birti
ég grein í DV þar sem ég fjall-
aði um stöðu mannréttinda-
mála í Tyrklandi. Ég gerði þar
sérstaklega að umræðuefni
tiltekinn pólitískan fanga, þingmann
Lýðræðisfylkingarinnar, HDP, sem er
flokkur Kúrda. Hann var fangelsaður
í byrjun nóvember ásamt tólf öðrum
þingmönnum og fjölda stjórnmála-
manna sem starfa á sveitarstjórnar-
stiginu.
Þessi maður, sem ég valdi nánast
af handahófi til að grennslast fyr-
ir um, heitir Ferhat Encü, 32 ára
aldri. Í greininni í DV fjallaði ég um
baráttu þessa manns fyrir því að fá
opin bera og óvilhalla rannsókn á
fjöldamorðum sem framin voru í des-
ember árið 2011 en flestir þeirra sem
þá féllu fyrir sprengjuregni tyrkneska
lofthersins í fjallahéruðum sem liggja
að Írak, voru á unglingsaldri og flestir
í fjölskyldu Ferhats, þar á meðal ung
systkini hans. Í kjölfar þessara atburða
bauð Ferhat sig fram til þings og hlaut
kosningu í júníkosningunum 2015, en
þá vann HDP-flokkurinn stórsigur.
Fengum ekki að heimsækja
fangelsi
Tveimur dögum eftir að þessi grein
birtist hélt ég til Tyrklands þar sem
ég slóst í hóp stjórnmálamanna, fyrr-
verandi og núverandi, blaðamanna,
fræðimanna og einstaklinga sem beita
sér í þágu mannréttinda. Erindið var
að krefjast þess að fá að hitta Öcalan,
leiðtoga Kúrda, sem haldið hefur verið
í einangrunarfangelsi síðan 1999 á
Imrali-eyju undan ströndum Tyrk-
lands. Við gerðum einnig kröfu um að
fá að heimsækja aðra pólitíska fanga.
Ekki var slíkt leyfi veitt. Við létum hins
vegar ekki segjast fyrr en hermenn lok-
uðu á okkur fyrir utan fangelsismúr-
ana.
Ástandið fer versnandi
Hópurinn hefur farið víða um og safn-
að upplýsingum um stöðu mann-
réttindamála og eru niðurstöðurnar
vægast sagt hrikalegar. Sífellt fleiri eru
hnepptir í varðhald og má geta þess
að 155 blaðamenn sitja nú í tyrknesk-
um fangelsum fyrir þær sakir einar að
reyna að segja satt og rétt frá ástandinu.
720 fréttaveitum hefur verið lokað.
Sumt af þessu þekkjum við úr frétt-
um en veruleikinn er þó að mínu mati
miklu verri en þær fréttir almennt lýsa.
Halda þarf til austurhéraða Tyrklands,
í byggðir Kúrda, til að sjá verstu dæm-
in um mannréttindabrot. Hittum við
fjölda fólks sem hafði misst ættingja
í árásum hersins, hafði verið rekið úr
vinnu eða hafði setið í fangelsi, sumt í
áratugi. Enn fleiri áttu ættingja í fang-
elsi. Við vorum viðstödd réttarhöld
í Diyarbakir, höfuðborg Kúrda. Ekki
sögðu þau góða sögu af réttarríki.
Ferhat Encü leystur úr haldi …
Í ljósi alls þessa voru það mér, og okk-
ur öllum, mikil gleiðtíðindi þegar frétt-
ir bárust af því að Ferhat Encü hefði
verið látinn laus. Það gerðist undir lok
síðustu viku og hafði ég þá strax sam-
band við hann. Ferhat kom að bragði
á fund nefndarinnar og brosti hann
breitt þegar ég sýndi honum stuðn-
ingsgrein mína í DV. Sagði hann það
ylja honum um hjartarætur að vita að
fólk í fjarlægum löndum fylgdist með
honum og öðrum félögum hans sem
ekki nytu mannréttinda.
… en fangelsaður á ný!
En ánægjan varði stutt. Fáeinum
klukkustundum síðar þegar Ferhat
Encü hugðist halda flugleiðis til sinn-
ar heimabyggðar í austanverðu Tyrk-
landi, var hann á ný tekinn höndum
og situr að nýju í fangelsi. Aldrei stóð
til að sleppa honum við réttarhöld en
menn gerðu sér vonir um að hann
gæti komið fyrir dómstól sem frjáls
maður. Eitt er víst að áfram verður
fylgst með framvindu hans mála og
stöðu mannréttinda almennt í Tyrk-
landi. n
Í Tyrklandi
Ögmundur og
Ferhat Encü
skoða DV.
Ferhat Encü Ásamt
velunnurum, á hóteli
í Istanbúl rétt eftir að
hann losnaði úr fangelsi.
Laus um stund Hér er
mynd sem tekin er fyrir
utan fangelsið í Edirne.
Ögmundur Jónasson
skrifar
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook